Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Fallið verður frá áformum um að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps og alvarlegra líkamsárása í þjónustu við fatlað fólk. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hyggst fella breytinguna úr frumvarpsdrögum til að mæta áhyggjum fatlaðs fólks af öryggi sínu. 22.10.2026 16:01
Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Eftirsjá er af Eggerti Eyjólfssyni hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir að hann réð sig til Litla spítalans. Forstjóri stofnunarinnar segir hann hafa unnið frábært starf við að styrkja bráðamóttökuna. Ráðningu yfirlæknis hennar sé að ljúka um mánaðamótin. 22.10.2026 14:10
Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Dóttir formanns velferðarnefndar er meðal undirritenda gagnrýninnar umsagnar Seðlabankans um leigubremsu ríkisstjórnarinnar. Bankinn varar við því að breytingarnar geti fækkað leiguíbúðum og dregið úr húsnæðisöryggi. Móðir hennar er framsögumaður nefndarinnar í málinu. 22.10.2026 13:50
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Farþegasalurinn í Mjódd verður tekinn í gegn og undirbúnar eru umfangsmiklar endurbætur á strætóstöðinni sjálfri. Skipta á öllu ofnakerfi salarins, endurnýja sætisaðstöðuna og setja upp nýja lýsingu og öryggiskerfi. Ofbeldi á svæðinu og slæmt ástand aðstöðunnar eru meðal ástæðna framkvæmdanna. 22.10.2026 11:57
Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Reykjavíkurborg ætlar að segja upp 34 bílastæðaáskriftum á efstu hæð Bergstaða og opna stæðin almenningi. Bílahúsið skilaði rúmlega tíu milljóna króna tapi í fyrra og mælingar sýna að flest stæði efstu hæðarinnar standa auð yfir daginn. 22.10.2026 11:16
Vantar sex milljónir til að halda Edduna Leitað er til Alþingis um sex milljóna króna styrk vegna Edduhátíðarinnar í febrúar á næsta ári. Hátíðin í ár var haldin með halla þrátt fyrir niðurskurð og þrjár milljónir króna vegna hennar eru enn ógreiddar. 22.10.2026 10:59
Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir fá mál á dagskrá Alþingis skýrast af því hversu mörg mál kláruðust síðasta vor. Diljá Mist Einarsdóttir segir skýringuna hjákátlega og telur innanflokksátök tefja ríkisstjórnina. 21.10.2026 15:01
Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Nýr fyrsti varaformaður hefur verið kosinn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í stað Jóns Gnarr. Eiríkur Björn Björgvinsson, þingmaður Viðreisnar, tekur við embættinu en Jón situr áfram í nefndinni sem almennur nefndarmaður. 21.10.2026 13:53
Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Boðuð einföldun á jafnlaunareglum hefur aukið vinnu og kostnað fyrirtækja, að mati Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hún efast um að verið sé að fylgja vilja Alþingis og vill að ný framkvæmd Jafnréttisstofu verði sett á bið. 21.10.2026 12:30
Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Þingmenn vilja að sérstök rannsóknarnefnd kanni hvort réttindi sakborninga hafi verið virt við rannsókn mála eftir bankahrunið. Meðal annars verði farið yfir hleranir, handtökur og varðveislu rannsóknargagna hjá sérstökum saksóknara. 21.10.2026 11:05