Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Gætu lagt 757-þotunum í haust

Icelandair ætlar að draga flugframboð sitt saman um tæp fimm prósent í haust vegna hækkandi eldsneytisverðs. Samdrátturinn verður hlutfallslega meiri á Norður-Ameríkumarkaði en í Evrópu. Félagið hafði þegar brugðist við kostnaðarhækkunum með því að skera framboð niður um tvö prósent á öðrum ársfjórðungi, hækka fargjöld og herða aðhald í rekstri.

Setja skýr skil­yrði fyrir meiri­hluta­sam­starfi í Reykja­vík

Samkvæmt nýjustu kosningaspá Vísis er Sjálfstæðisflokkurinn líklegastur til að fá sjö borgarfulltrúa og Samfylkingin sex. Vinstrið mælist áfram þriðji stærsti flokkurinn og gæti fengið þrjá menn, en þar fyrir neðan er hörð barátta um þriðja fulltrúann hjá Viðreisn og Miðflokki. Þorvaldur Davíð Kristjánsson í þriðja sæti Viðreisnar mælist með 46 prósent líkur á kjöri en Lárus Blöndal í þriðja sæti Miðflokksins með 43 prósent.

Úti­loka ekki sam­starf en sjá djúpa gjá í mál­efnunum

Eini tveggja flokka meirihlutinn sem nú blasir við í Reykjavík er meirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Hvorugt framboðið vill setja slíkt samstarf fremst á blað, en hvorugt lokar heldur dyrunum alveg. Svör oddvitanna sýna þó að bilið á milli flokkanna er talsvertog snýst ekki síst um leikskóla, samgöngur, húsnæði og sjálfa stefnu borgarinnar.

Hafa reist leik­skóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins

Reitir og Hýsi hafa hafið viðræður við sveitarfélög um nýja lausn í leikskólamálum. Forstjóri Reita segir hægt að afhenda níutíu barna leikskóla á um sex mánuðum og að kostnaðurinn geti numið um helmingi þess sem þekkist í Reykjavíkurborg.

Að ó­breyttu muni um­ferðin halda á­fram að þyngjast

Ferðatími á tíu kílómetra leið á milli Hafnarfjarðar og Háskóla Íslands getur þrefaldast þegar framhaldsskólar og háskólar hefja starf að nýju síðsumars. Leið sem annars tekur um sextán mínútur á bíl getur tekið fimmtíu mínútur í morgunumferðinni.

Urðu fyrir von­brigðum með húsnæðispakka tvö

Samtök iðnaðarins segja annan húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar valda vonbrigðum. Pakkinn boði 1.200 til 1.400 íbúðir á ríkisreitum í Reykjavík, en taki ekki á boðuðum skattahækkunum, háum álögum eða erfiðum lánþegaskilyrðum sem halda aftur af sölu nýbygginga.

Sjá meira