Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Við verðum að fá fólk heim aftur“

Grindvískt fjölskyldufyrirtæki vinnur nú að því að fylla upp í allt að 15 metra djúpa sprungu við íþróttahúsið í Grindavík. Framkvæmdastjórinn segir verkið snúast um að gera bæinn öruggan á ný fyrir börn og fjölskyldur.

Inga kemur Ingó til varnar

Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, kom tónlistarmanninum Ingó Veðurguð til varnar í Brotkasti, hlaðvarpi Frosta Logasonar. Hún gagnrýnir það sem hún kallar slaufunarmenningu og dómstól götunnar í garð hans.

Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir ekki þurfa nýja ákvörðun af hennar hálfu vegna hvalveiða í sumar. Veiðarnar byggi á reglugerð sem Bjarni Benediktsson, þáverandi matvælaráðherra, setti fyrir árslok 2024 og nýrri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Hennar framtíðarsýn sé að draga úr og að lokum hætta hvalveiðum.

Fjölgar í hópi sak­borninga og ráðist í hús­leit

Fjórir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á ætluðum innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með gámaflutningaskipinu Dettifossi. Lögregla hefur ráðist í húsleit hjá tveimur þeirra.

Raforkureikningur í dreif­býli gæti lækkað strax í júlí

Raforkureikningur meðalstórs kúabús gæti lækkað um 400 til 500 þúsund krónur á ári verði frumvarp um jöfnun raforkukostnaðar samþykkt á Alþingi. Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax 1. júlí verði frumvarpið að lögum.

Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórn­sýslan ekki staðist prófið

Ríkisendurskoðun segir að varnargarðarnir á Reykjanesi hafi sannað gildi sitt og sýnt með afgerandi hætti hvað Íslendingar geti verið úrræðagóðir á raunastundu. Um leið sé ljóst að stjórnsýslan utan um verkefnið hafi ekki verið nógu sterk, ábyrgð óskýr og fjármögnun of veik. Nú verði að draga af því skýran lærdóm áður en næsta vá skellur á, en ekki í miðju hraunflóði.

Segir ráð­herra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum

Ný sóttvarnalög veita heilbrigðisráðherra heimild til að setja reglur um opinberar sóttvarnaráðstafanir, meðal annars um ónæmisörvanir á borð við bólusetningar, notkun hlífðarbúnaðar, afkvíun svæða, lokun skóla, stöðvun atvinnurekstrar og samkomubann. Brot gegn slíkum reglum getur varðað sektum eða allt að eins árs fangelsi. Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir Alþingi með þessu hafa fært ráðherra of víðtækar heimildir.

Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur í Dettifossmálinu

Gæsluvarðhald yfir þremur sakborningum í rannsókn lögreglu á innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips, hefur verið framlengt. Einn þeirra sætir varðhaldi í tvær vikur til viðbótar en hinir tveir, sem eru starfsmenn Eimskips, í eina viku hvor.

Prent­smiðjan Ísa­fold gjald­þrota: „Þetta er bara von­laus business"

Prentsmiðjan Ísafold hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta og sautján starfsmenn missa vinnuna. Prentsmiðja Ísafoldar var elsta prentsmiðja landsins og jafnframt sú næststærsta en Ísafold sá hér áður fyrr um að prenta Fréttablaðið og prentaði 105 þúsund eintök 7 daga vikunnar þegar mest lét.

Bak við lás og slá grunaður um risa­stórt kókaín­smygl

Einn hefur verið úrskurðaður í sex vikna gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á ætluðum innflutningi á miklu magni af fíkniefnum með Norrænu í lok mars. Lögregla heldur þétt að sér spilunum varðandi efnisatriði málsins. Verð á kókaíni hefur farið hækkandi undanfarin ár.

Sjá meira