Tvö sóttu um embætti ríkislögmanns Forsætisráðuneytinu bárust tvær umsóknir um embætti ríkislögmanns en umsóknarfrestur rann út 15. janúar. Umsækjendur voru Fanney Rós Þorsteinsdóttir, lögmaður hjá embætti ríkislögmanns, og Þórhallur Haukur Þorvaldsson hæstaréttarlögmaður. 18.1.2022 18:26
Líf gefur áfram kost á sér í oddvitasætið Líf Magneudóttir gefur aftur kost á sér í oddvitasæti Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Líf hefur verið borgarfulltrúi flokksins og áður varaborgarfulltrúi frá árinu 2014. 18.1.2022 17:26
Hvetja til notkunar #landsbyggðafyrirtæki Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) standa fyrir samfélagsmiðladeginum #landsbyggðafyrirtæki miðvikudaginn 19. janúar. Sem hluti af átakinu er fólk hvatt til að segja frá uppáhalds fyrirtækinu sínu í heimabyggð eða deila sinni starfsemi með því að nota myllumerkið #landsbyggðafyrirtæki eða #ruralbusinessday. 18.1.2022 00:05
Æddi niður að brú þar sem hans beið geysilegt sjónarspil Byggingartæknifræðingurinn Orri Jónsson var í eftirlitsferð vegna vegaframkvæmda í Þverárhlíð í Borgarfirði í dag þegar hann varð vitni að miklu ísstífluflóði. 17.1.2022 23:32
Um einn af hverjum hundrað fær óljósa niðurstöðu Um tíu prósent þeirra sem fá jákvæða niðurstöðu úr hraðprófi hjá heilsugæslunni fá annað svar úr PCR-prófi strax í kjölfarið. Þetta hlutfall hefur farið lækkandi en í upphafi voru um það bil helmingur PCR-prófa neikvæður eftir jákvætt hraðpróf. 17.1.2022 21:50
Kæra starfshætti SÁÁ til héraðssaksóknara Embætti héraðssaksóknara hefur borist kæra frá eftirlitsdeild Sjúkratrygginga Íslands vegna máls sem varðar starfshætti SÁÁ. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari í samtali við Vísi en kæran barst embættinu í seinustu viku. 17.1.2022 17:23
Breyti engu ef fólk breyti ekki hegðun sinni Formaður farsóttanefndar Landspítalans bindur vonir við að hertar samkomutakmarkanir komi til með að skila árangri og draga úr álagi á spítalann. Þær muni þó engu breyta ef fólk breyti ekki hegðun sinni. 14.1.2022 18:50
Lagði til að öllu yrði skellt í lás í tíu daga Til greina kemur að beita víðtækum lokunum í samfélaginu sem ná til fyrirtækja, stofnana og skóla í takmarkaðan tíma til að ná fjölda kórónuveirutilfella hratt niður, að mati sóttvarnalæknis. Gætu slíkar lokanir til að mynda staðið í tíu daga og í kjölfarið verið aflétt í skrefum. 14.1.2022 14:48
Meiri neysla við hápunkt faraldursins en árið 2019 Kortavelta innlendra greiðslukorta jókst um 14% í desember miðað við sama mánuð árið 2020. Kortavelta Íslendinga erlendis nam tæplega 18 milljörðum króna og jókst um 90% milli ára miðaða við fast gengi. 14.1.2022 13:32
Stjórnvöld taka á móti 35 til 70 manns til viðbótar frá Afganistan Ríkisstjórnin hefur samþykkt að taka á móti 35 til 70 manns frá Afganistan til viðbótar við þann hóp sem tekið var á móti í haust. Ákvörðunin var tekin í ljósi þeirrar ólgu og upplausnar sem ríkir í landinu í kjölfar valdatöku talibana. 14.1.2022 12:58