Fréttamaður

Elín Margrét Böðvarsdóttir

Elín Margrét er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Lauf­ey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar

Feðginin Aura V og Harold Simmons II, betur þekktur undir listamannsnafninu Fyütch, unnu Grammy-verðlaun á dögunum fyrir bestu barnaplötu ársins fyrir plötuna Harmony. Aura V, sem er átta ára gömul, varð þannig yngsti handhafi Grammy-verðlauna í sögunni og sló þannig met Blue Ivy Carter. Aura V nýtti tækifærið í þakkarræðu sinni til að hrósa íslensku tónlistarkonunni Laufeyju og óskaði henni til hamingju með sín verðlaun.

Yfir átta­tíu starfs­mönnum við fisk­eldi sagt upp sem þó fá á­fram boð um vinnu

Alls var 84 starfsmönnum sagt upp í tveimur hópuppsögnum sem tilkynnt var um til Vinnumálastofnunar í janúar. Hópuppsagnirnar voru báðar tengdar starfsemi á sviði fiskeldis og gert ráð fyrir að öllum verði boðið starf að nýju. Í síðustu viku bárust fréttir af því að fiskeldisfyrirtækin Arnarlax og Arctic fish á Vestfjörðum ætli að ráðast í breytingar á kjörum starfsfólks í sjódeildum fyrirtækjanna.

Þjóðin klofin gagn­vart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu

Stuðningur þjóðarinnar við veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu hefur aukist frá því í fyrra en ríflega 78% segjast hlynnt aðild Íslands að bandalaginu. Nokkur hreyfing er einnig á afstöðu þjóðarinnar til Evrópusambandsaðildar, en þjóðin skiptist nokkurn vegin í tvennt í afstöðu sinni til málsins, þar sem 42% segjast hlynnt því að Ísland gangi í ESB og sama hlutfall er andvígt.

Breið sam­staða á Al­þingi og Mið­flokkurinn aftur kominn um borð

Alþingi samþykkti í gær fyrstu formlegu varnar- og öryggisstefnu Íslands með stuðningi þingmanna allra flokka á Alþingi sem viðstaddir voru atkvæðagreiðsluna. Í umræðu um atkvæðagreiðsluna kepptust þingmenn við að koma upp í pontu og fagna þessum áfanga og hrósa hver öðrum fyrir samstarfið og þá vinnu sem lögð var í að ná breiðri sátt um málið.

Borgar­stjórn vill að börn fái frítt í Strætó

Frá og með 1. maí næstkomandi munu börn á grunnskólaaldri í Reykjavík ekki þurfa að greiða fargjald í Strætó, nái áform borgarstjórnar fram að ganga. Tillaga meirihlutans í Reykjavík þess efnis var samþykkt á borgarstjórnarfundi í dag. Markmiðið er að með þessu verði aðgengi barna og ungmenna að almenningssamgöngum bætt og þannig hægt að draga úr foreldraskutli í skóla-, íþróttir- og frístund og um leið draga úr umferðarþunga.

Tók Indriða í pontu og upp­skar hláturs­kast í þing­sal

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, gerði verulegar athugasemdir við tæknibúnað Alþingis í umræðu um störf þingsins á Alþingi í dag. Jón kvartaði meðal annars yfir gömlum tæknibúnaði, atkvæðagreiðslutökkum sem eigi það til að klikka og lélegri hljóðvist sem komi sér afar illa fyrir fólk eins og hann sem heyrir illa. Tónninn í ræðunni minnti allnokkuð á persónuna Indriða, sem Jón Gnarr lék sjálfur í Fóstbræðrum á sínum tíma, en undir lok ræðunnar tók Jón líkindin alla leið og rifjaði upp þekktar línur Indriða um bank í ofnum. Ræða Jóns uppskar mikil hlátrasköll í þingsal og forseti þingsins kvaðst taka undir athugasemdirnar.

Mið­flokkurinn býður fram í Vest­manna­eyjum

Miðflokkurinn ætlar að bjóða fram lista í Vestmannaeyjum í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þetta verður í fyrsta sinn sem flokkurinn býður fram í sveitarfélaginu en flokkurinn lýsir nú eftir áhugasömum til að taka sæti á lista flokksins í Eyjum fyrir kosningarnar í vor.

Á­kærður í 38 liðum og löng bið­röð fyrir utan réttinn í Osló

Í dag hefjast réttarhöld í Noregi yfir Mariusi Borg Høiby, syni norsku krónprinsessunnar Mette Marit, en hann sætir ákæru 38 liðum fyrir ýmis brot, meðal annars nauðgun og önnur ofbeldisbrot. Hann neitar sök vegna alvarlegustu ákæruliðanna. Löng biðröð myndaðist fyrir utan héraðsdóminn í Osló í morgun þar sem réttarhöld fara fram en bæði norskir og erlendir fjölmiðlar hafa sýnt málinu mikinn áhuga.

Sjá meira