„Þetta verða mjög spennandi kosningar“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 27. febrúar 2026 22:32 Ólafur Þ. Harðarson rýndi í stöðuna í aðdraganda borgarstjórnarkosninga í benni útsendingu í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Vísir/Einar Það eru verulega spennandi kosningar í vændum í Reykjavík að sögn Ólafs Þ. Harðarsonar stjórnmálafræðings, en spennan gæti magnast enn frekar eftir að kosningaúrslitin liggja fyrir í vor. Sjálfstæðisflokkur og Samfylking tróna yfir aðra flokka í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu á fylgi flokkanna í borginni og hið nýja Vinstri gæti náð inn að minnsta kosti tveimur fulltrúum úr röðum VG og Vors til vinstri. „
Þetta verða mjög spennandi kosningar,“ segir Ólafur sem rýndi í niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu í beinni útsendingu í kvöldfréttum Sýnar. Mesta spennan verði að sjá, þegar kosningaúrslitin liggja fyrir, hvaða flokkum tekst að mynda meirihluta. Væri afrek að ná í 30% atkvæða Könnunin var gerð í febrúar, eftir að fyrir lá að Pétur Marteinsson og Hildur Björnsdóttir muni leiða flokkana. Ólafur segist ekkert geta fullyrt um það hvort Pétur höfði jafnvel til meira til hægrisinnaðra jafnaðarmanna en til dæmis Heiða Björg Hilmisdóttir og Dagur B. Eggertsson, líkt og einhverjir hafa velt vöngum yfir. „Ég hef ekki séð nein gögn sem benda til þess. Undanfarið hefur það verið þannig að það er mjög lítið fylgi sem að streymir á milli Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins, þannig ef það gerðist núna þá væri það nýtt,“ segir Ólafur. Flokkarnir tveir séu turnar í þeim skilningi að þeir mælast langstærstir í könnunum, en aftur á móti mælist þeir báðir með innan við fjórðung af fylginu. „Í Gallup-könnunum nýlega var Sjálfstæðisflokkurinn að mælast með yfir 30% og Samfylkingin líka stærri heldur en í þessari könnun. En þegar við lítum á þetta nýja flokkalandslag á Íslandi, núna sjáum við til dæmis að það eru átta flokkar sem kæmust inn í borgarstjórnina miðað við þessa könnun og sá níundi, hann vantar mjög lítið. Þannig það að komast yfir 30% í þessu nýja landslægi það væri mikið afrek, hvort heldur væri hjá Samfylkingunni eða Sjálfstæðisflokknum,“ segir Ólafur. „Það yrði gríðarlegur kosningasigur.“ Miðflokkurinn gæti átt inni en Framsókn „að hrynja“ En það er fleira forvitnilegt í könnuninni séu niðurstöðurnar bornar saman við úrslit síðustu borgarstjórnarkosninga. Nokkrar breytingar er til að mynda að sjá á fylgi Viðreisnar og Miðflokksins, en fylgi Miðflokksins hefur aukist talsvert á landsvísu. Gæti það verið til marks um að hann bæti við sig í borginni? „Hann var náttúrlega með nánast ekkert fylgi 2022, hann er ennþá ekki nema hálfdrættingur í borginni á við það sem hann er á landsvísu. Nú er það reyndar þannig að það er ekki alltaf fullt samræmi milli þess hvað gerist í borginni og hvað gerist í landinu, en miðað við þær tölur þá gæti hann átt eitthvað inni,“ segir Ólafur. Könnun Maskínu fór fram dagana 1. til 27. febrúar 2026 og voru 1.015 svarendur sem tóku afstöðu til flokks.Vísir/Maskína Á sama tíma sé Framsókn „að hrynja“ að sögn Ólafs, en flokkurinn hefur tapað um 75% fylgisins sem hann fékk í síðustu kosningum. „En það er ekkert nýtt og Viðreisn er í rauninni að koma mjög vel út. Miðað við síðustu kosningar þá er Viðreisn hátt í að þrefalda fylgið,“ segir Ólafur þegar hann rýnir í niðurstöður könnunarinnar og ber saman við útkomuna úr kosningunum 2022. Góður árangur hjá Vinstrinu Þá gæti verið tilefni fyrir Vinstrið, nýtt sameiginlegt framboð VG og Vors til vinstri, til að fagna. „Miðað við þetta væru þau með tvo fulltrúa, það vantar ekkert mikið í þriðja fulltrúann þess vegna, það er frekar knappt. En ég held að þetta sé mjög góður árangur hjá Vinstrinu. Í síðustu kosningum var VG með 4% og Sósíalistaflokkurinn undir forystu Sönnu var með 7,7 eða 7,8%, samanlagt eru það tæp 12%. Núna eru þeir að mælast með um 9%, þeir virðast vera að fá meginpartinn af fylginu,“ segir Ólafur. „Það verður mjög fróðlegt að sjá hvort að Vinstrinu takist að höggva eitthvað meira í fylgi Sósíalistanna eins og það mælist núna, og kannski líka Samfylkingarinnar.“
Skoðanakannanir Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarstjórn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Sjá meira