Fréttamaður

Kjartan Kjartansson

Kjartan er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Vonar að þre­menningarnir sjái að hreyfingin þurfi á öllum að halda

Ólöf Helga Adolfsdóttir, frambjóðandi til forseta ASÍ, segist vona að verkalýðsleiðtogarnir þrír sem strunsuðu út af þingi sambandsins í gær sjái að hreyfingin þurfi á öllum að halda. Ásakanir þremenninganna um persónuárásir komi henni þó spánskt fyrir sjónir.

Sviptir réttindum í tíð eldri laga þurfa ekki að sitja nám­skeið

Ökumenn sem voru sviptir ökuréttindum áður en umferðarlögum var breytt fyrir þremur árum þurfa ekki lengur að sitja námskeið hjá Samgöngustofu til að geta fengið réttindin aftur eftir að sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu breytti lagatúlkun sinni. Innviðaráðuneytið vísaði frá kæru vegna slíks máls.

Íhuga að skattleggja beljurop

Ríkisstjórn Nýja-Sjálands lagði til að skattleggja losun gróðurhúsalofttegunda frá húsdýrahaldi í dag. Búfjárbændur hafa brugðist ókvæða við tillögunni sem þeir fullyrða að leiddi til atgervisflótta úr stéttinni.

Sögulegar sættir í landamæradeilu Ísraels og Líbanons

Yair Lapid, forsætisráðherra Ísraels, segir að sögulegt samkomulag hafi náðst við Líbanon sem bindur enda á áratugalangar deilur ríkjanna um markalínur á sjó á milli nágrannaríkjanna tveggja. Ríkin hafa verið svarnir óvinir um árabil.

Telja sig geta varist flugskeytum frá nágrönnum sínum

Suðurkóreski herinn fullyrðir að hann sé fær um að koma auga á og stöðva flugskeyti sem Norðurkóreumenn hafa gert tilraunir með upp á síðkastið. Alvarleg hætta stafi engu að síður af kjarnorkubrölti nágrannanna í norðri.

Fjölskylda Amini fær líflátshótanir

Hótunum hefur rignt yfir fjölskyldu Möhsu Amini, 22 ára gamallar konu sem lést í haldi siðgæðislögreglu Íran. Fjölskyldan segir að klerkastjórnin beiti hana þrýstingi að ræða ekki við mannréttindasamtök eða koma nálægt mótmælunum sem brutust út vegna dauða Amini.

Fylltist sorg yfir hlut­skipti jarðarinnar í geim­ferðinni

Kanadíski leikarinn William Shatner segist aldrei hafa upplifað eins mikla sorg og í geimferðinni sem hann fór í fyrir ári. Að sjá jörðina í köldum geimnum vitandi að mannkynið sé að rústa henni hafi gert ferðina líkari jarðarför en hátíð.

Sagðir hafa rætt um að drepa sósíal­ista­leið­toga

Tveir karlmenn sem eru í haldi lögreglu vegna gruns um að þeir hafi unnið að skipulagningu hryðjuverka ræddu um að drepa Gunnar Smára Egilsson, formann Sósíalistaflokksins, og Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar. Þau voru bæði kölluð í skýrslutöku vegna rannsóknar málsins.

Sjá meira