Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Jakob Bjarnar skrifar 6. október 2026 12:49 Bjarni segir Brynjar Karl fara með fleipur þegar hann heldur því fram að verið sé að úthýsa Aþenu eða skerða tíma og aðgang þeirra að húsnæðinu. Vísir Bjarni Guðjónsson, sem fer fyrir íþrótta- og útilífsráði Reykjavíkurborgar, hefur svarað Brynjari Karli Sigurðssyni körfuboltaþjálfara og segir það úr vegi að verið sé að hrekja íþróttafélagið Aþenu úr Austurbergi.
Brynjar Karl var ómyrkur í máli og sendi Bjarna harðort skeyti í gær. Hann segir framgöngu Bjarna vera mikil vonbrigði og megi hann þá heldur biðja um Skúla Helgason forvera Bjarna í íþróttaráðinu. Aþenu sagði hann í andaslitrum eftir að borgin neitaði að endurnýja samning við félagið. Bjarni segir þetta ekki rétt. „Vegna umfjöllunar um málefni Aþenu þá er mikilvægt að koma réttum upplýsingum á framfæri. Síðasta föstudag samþykkti Íþrótta- og útilífsráð að borgin tæki yfir rekstur á íþróttamannvirkinu í Austurbergi 3 en húsnæðið var rekið af forsvarsmanni Aþenu ásamt Brynjari Karli,“ segir Bjarni í færslu á Facebook. Bjarni segir borgina ekki vera að segja upp æfingaaðstöðu Aþenu né skerða tíma/aðgang þeirra að húsnæðinu. „Félagið heldur áfram að hafa aðgang að sinni aðstöðu og áhersla er lögð á það að Aþena fái nægjan fjölda æfingatíma og aðstöðu til að starfrækja og efla sína starfsemi áfram. Ákvörðunin snýr eingöngu um breytt fyrirkomulag á rekstri mannvirkis sem er í eigu borgarinnar með það að markmiði að efla íþróttastarf barna og ungmenna í efra Breiðholti í góðri samvinnu við þau félög sem eru með starfsemi þar. Þessi breyting á þannig að styðja við það að fjölga þátttakendum sem geta nýtt húsnæðið,“ segir Bjarni. Brynjar Karl og Aþena hefur boðað til fundar í Austurbergi í kvöld klukkan tuttugu þar sem til stendur að ræða stöðuna.
Reykjavík Íþróttir barna Aþena Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Sjá meira