Ríki íslams og loftslagsbreytingar taldar stærstu ógnirnar Flestir nefna íslömsku hryðjuverkasamtökin Ríki íslams og loftslagsbreytingar sem helstu hætturnar sem steðja að heiminum í nýrri skoðanakönnun sem gerð var í 38 löndum. 1.8.2017 21:34
NATO stöðvaði rússneskar herþotur nærri Eistlandi Orrustuþotur frá Spáni og Finnlandi voru sendar til móts við þrjár rússneskar herflugvélar sem voru á flugi nærri lofthelgi Eistlands. Árekstrar á milli Rússa og NATO-ríkja af þessu tagi hafa orðið tíðari með vaxandi spennu á milli þeirra. 1.8.2017 20:10
„Latur anarkisti“ gabbaði Hvíta húsið með gervipóstum Heimavarnaráðgjafi Trump og nýrekinn samskiptastjóri Hvíta hússins voru á meðal þeirra sem bitu á agn bresks tölvuþrjóts um helgina. Sá fyrrnefndi fer meðal annars með netöryggismál. Hann gaf tölvuþrjótinum upp persónulegt tölvupóstfang sitt að fyrra bragði. 1.8.2017 19:16
Kushner: Framboð Trump var of óskipulagt til að eiga samráð við Rússa Tengdasonur Donalds Trump Bandaríkjaforseta útskýrði fyrir hópi lærlinga í Bandaríkjaþingi að forsetaframboð tengdaföður síns hafi verið of glundroðakennt til að það hafi getað staðið í samráði við rússnesk stjórnvöld. Blaðafulltrúi Hvíta hússins segir að forsetinn hafi komið að misvísandi yfirlýsingu sem sonur hans gaf út um umdeildan fund með rússneskum lögmanni. 1.8.2017 18:38
Stjórnarandstöðuleiðtogar í Venesúela handteknir Tveir áberandi leiðtogar stjórnarandstöðunnar í Venesúela voru teknir höndum á heimilum sínum um miðja nótt. Andstæðingar Nicolasar Maduro forseta saka hann um einræðistilburði. 1.8.2017 17:59
Mannfall í sprengingu í mosku í Afganistan Tuttugu manns í það minnsta eru látnir eftir sprengingu í mosku sjíamúslima í borginni Herat í Afganistan. Embættismenn í borginni telja líklegt að tala látinna eigi eftir að hækka. 1.8.2017 17:24
Trump las fyrir misvísandi yfirlýsingu sonar síns Bandaríkjaforseti las sjálfur fyrir misvísandi yfirlýsingu sem sonur hans gaf út um umdeildan fund með rússneskum lögmanni. Ráðgjafar forsetans óttast að hann hafi komið sér í bobba að óþörfu. 1.8.2017 00:09
Trump var að grínast þegar hann hvatti til lögregluofbeldis Bandaríkjaforseti hvatti lögreglumenn til að fara ekki of vel með grunaða menn í varðhaldi og lögregluembætti hafa afneitað ummælunum. Hvíta húsið segir að hann hafi verið að grínast. 31.7.2017 23:25
Möguleikarnir á að forðast hættulega hlýnun hverfandi Niðurstöður nýrra rannsókna benda til þess að líkurnar á að mönnum takist að halda hlýnun jarðar innan hættumarka séu afar litlar. Ekki er þó öll nótt úti enn grípi þjóðir heims til markvissra aðgerða. 31.7.2017 22:27
Dagar „kjaftæðisins“ í Hvíta húsinu sagðir liðnir Hvíta húsið segir að Donald Trump forseti hafi talið orðfæri fyrrverandi samskiptastjóra síns ekki viðeigandi fyrir mann í hans stöðu. Heimildamenn CNN segja þó að forsetanum hafi aðallega mislíkað að samskiptastjórinn hafi orðið miðpunktur athygli fjölmiðla frekar en hann sjálfur. 31.7.2017 21:19