fréttamaður

Telma Tómasson

Telma er fréttamaður og fréttaþulur á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Það er svo­lítið seint í rassinn gripið“

„Nú virðist öldin vera önnur. Við erum húsnæðislausar. Ég var á fundi með Barna- og fjölskylduráði fyrir nokkrum vikum þar sem ég lagði þetta fram en engin svör hafa borist.“

Tjónið á Sel­tjarnar­nesi hlaupi lík­lega á milljónum

Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir lögreglu hafa fengið tilkynningu snemma morguns um skemmdarverk á ökutækjum á Seltjarnarnesi og þar í kring. Hann segir um 30 bíla hafa orðið fyrir tjóni og ýmist hafi verið búið að brjóta eina eða tvær rúður í bílunum. 

Kjara­samningar kennara í upp­námi

Kjarasamningar kennara eru í uppnámi vegna túlkunar á ákvæði um gerð virðismats. Stjórnvöld eru sögð hafa lagt fram tillögu sem fer út fyrir þann ramma sem samningur gerir ráð fyrir. Náist ekki samkomulag fyrir sunnudag gætu samningar kennara losnað í mars. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum á Bylgjunni.

Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael

Talningu atkvæða eftir þingkosningarnar í Ísrael er lokið. Niðurstöður sýna að Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels og bandalagsflokkar hans hlutu 53 sæti og Gadi Eisenkot, helsti keppinautur hans, hlaut, ásamt stuðningsflokkum, 48 þingsæti. 

Feginn að verð­bólga stendur í stað og meiri­hluti mót­fallinn þátt­töku í Euro­vision

Fjármála- og efnahagsráðherra segir mjög ánægjulegt að sjá verðbólgu standa í stað og að hún sé helst drifin áfram af utanaðkomandi þáttum. Hagstofa Íslands birti verðbólgutölur fyrir október í morgun, sem sýna að hún er óbreytt frá fyrri mánuði og stendur í 5,9 prósentum. Rætt er við Daða Má Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra í hádegisfréttum Bylgjunnar. 

Þriggja daga þjóðar­sorg hafin á Spáni

Þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir á Spáni í kjölfar þess að minnst 68 létu lífið og tugir slösuðust í alvarlegu lestarslysi í gær. Viðbragðsaðilar unnu á vettvangi slyssins í alla nótt í leit að fleiri fórnarlömbum, en svæðið var lýst upp með sterkum flóðljósum til að auðvelda vinnuna.

Grunuðum of­beldis­mönnum vísað frá landinu og lestar­slys á Spáni

Fjögurra manna hópi var snúið við á Keflavíkurflugvelli og vísað úr landi vegna gruns um að fólkið hefði verið ráðið til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi. Fjöldi virkra brotahópa á Íslandi hefur tvöfaldast á áratug og í nýrri löggæsluáætlun er lagt til að stofnuð verði ný eining innan lögreglunnar sem fari með rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grinda­vík

Búist er við að tugum starfsmanna Reykjavíkurborgar verði sagt upp í dag í nýrri hrinu hagræðingar og niðurskurðar. Málin voru rædd á aukafundi borgarstjórnar í ráðhúsi Reykjavíkur sem lauk á ellefta tímanum en niðurskurðurinn nær til allra sviða borgarinnar fyrir utan skóla- og frístundasvið og velferðarsvið sem urðu fyrir hnífnum í sumar, samkvæmt heimildum fréttastofu. Borgarstjórnarfulltrúar hafa ekki veitt viðtöl vegna málsins og trúnaður ríkir um efni aukafundarins þar til fundargerð verður birt síðar í dag. Farið verður yfir nýjustu vendingar í hádegisfréttum.

Kjörstaðir opnir í Ísrael

Kjörstaðir voru opnaðir í Ísrael í morgun í fyrstu þingkosningum frá árás Hamas-liða 7. október 2023, sem leiddi til blóðugra átaka á Gaza. Flestar skoðanakannanir benda til þess að stjórnarbandalag Benjamins Netanyahu forsætisráðherra muni missa meirihluta sinn á ísraelska þinginu, Knesset, sem telur 120 þingsæti.

Sjá meira