Innlent

Auka­fundur borgar­full­trúa: Rætt um frekari hag­ræðingu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Ráðhús Reykjavíkur.
Ráðhús Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm

Auka borgarstjórnarfundur stendur nú yfir í ráðhúsi Reykjavíkur. Þar er verið að ræða frekari hagræðingaraðgerðir og mögulegar uppsagnir starfsfólks.

Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Samkvæmt heimildum fréttastofu er umfjöllunarefni fundarins hagræðingaraðgerðir og uppsagnir starfsfólks. 

Ekki hafa fengist svör frá borgarstjórnarfulltrúum vegna málsins. Samkvæmt því sem fréttastofa kemst næst verða viðtöl ekki veitt um málið fyrr en síðar í dag.

Hátt í tuttugu manns var sagt upp hja borginni í júní og tugum í ágúst. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur sagði í ítarlegu viðtali við fréttastofu í byrjun september að frekari uppsagnir og skipulagsbreytingar væru fram undan hjá Reykjavíkurborg.


Tengdar fréttir

Fleiri upp­sagnir og óvissa um Borgar­línuna

Frekari uppsagnir og skipulagsbreytingar eru fram undan hjá Reykjavíkurborg. Sjóðir eru tómir og því gæti komið til frekari gjaldskrárhækkana. Framtíð samgöngusáttmálans veltur á því að ríkið standi við gefin loforð og óvissa ríkir um Borgarlínuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×