Innlent

Gefur meiri­hlutanum fall­ein­kunn

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Kári Sigurðsson, formaður stéttarfélagsins Sameykis, segist hafa verulegar áhyggjur af framhaldinu í kjölfar hópuppsagnarinnar.
Kári Sigurðsson, formaður stéttarfélagsins Sameykis, segist hafa verulegar áhyggjur af framhaldinu í kjölfar hópuppsagnarinnar. SÝN

Formaður stéttarfélagsins Sameykis gefur meirihlutanum í Reykjavík falleinkunn. Hann býst við því að svipuðum fjölda verði sagt upp í dag og í síðustu skipulagsbreytingum borgarinnar.

Um helmingur starfsmanna Reykjavíkurborgar er í stéttarfélaginu Sameyki. Kári Sigurðsson formaður félagsins er bundinn trúnaði um sitt félagsfólk en gagnrýnir meirihlutann í Reykjavík fyrir samráðsleysi. Hann segist gera ráð fyrir að skipulagsbreytingar hafi verið lagðar fram á aukafundi borgarstjórnar í morgun.

„Ég geri þá ráð fyrir því að núna sé ferlið þá formlega hafið. Ég geri ráð fyrir að þær hafi verið samþykktar þessar tillögur eins og seinustu tvö skipti á undan,“ segir Kári og vísar í síðustu skipulagsbreytingar hjá borginni.

Þú gerir þá ráð fyrir að nú sé verið að segja fólki upp... kalla fólk inn á fundi núna og í dag?

„Já, ég geri bara fastlega ráð fyrir því að þetta sé að gerast núna.“

Ljóst er að uppsagnir eru hafnar en Ingi Þór Jónsson hefur greint frá starfslokum sínum á Facebook. 

„Lélegasta afmælisgjöf allra tíma,“ segir hann.

Aðspurður hvort hann viti hve mörgum verði sagt upp segist Kári ekki geta sagt til um það.

„En ég held að þetta sé kannski bara svona einhvers staðar á svipuðum nótum.“

Meirihlutinn fái ekki háa einkunn hjá Kára.

„Ég gef bara meirihlutanum algjöra falleinkunn í kringum allt þetta ferli. Ég er búinn að flagga því ítrekað að þau eru til að mynda ekki búin að svara beiðnum okkar varðandi rökstuðning um uppsagnirnar. Helmingurinn af þeim beiðnum liggur ósvarað og það eru núna að detta í hundrað dagar síðan fyrstu aðgerðirnar fóru í gang. Þetta er auðvitað óboðlegt á sama tíma og þeir sögðu að þetta væri allt svo skýrt og fagmannlega gert.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×