Loka sendiráðinu örfáum dögum eftir veitingu Nóbelsverðlauna Yfirvöld í Venesúela hafa lokað sendiráði sínu í Ósló einungis nokkrum dögum eftir að stjórnarandstæðingurinn María Corina Machado hlaut friðarverðlaun Nóbels. Enginn rökstuðningur hefur verið veittur fyrir lokuninni. Erlent 13.10.2025 23:39
Fyrsta konan sem verður forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar Kirsty Coventry frá Simbabve hefur verið kosin forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC). Hún verður fyrsta konan til að gegna því embætti. Sport 20.3.2025 15:55
Þitt nafn bjargar Justynu Hin árlega og alþjóðlega herferð, Þitt nafn bjargar lífi, hefst í dag. Amnesty segir herferðina hafa breytt lífi þolenda mannréttindabrota frá því henni var komið á fót árið 2001. Innlent 16.11.2023 11:59
Óljóst hvar Mugabe verður grafinn Harðstjórans var minnst í Simbabve í dag. Erlent 12. september 2019 19:00
Frelsishetjan sem varð kúgari Robert Mugabe, frelsishetja og síðar harðstjóri Simbabve, lést í gær, 95 ára að aldri. Dánarorsök hefur ekki verið gerð opinber en frá því í apríl hafði hann sótt sér læknisþjónustu í Singapúr vegna veikinda. Erlent 6. september 2019 19:00
Robert Mugabe er látinn Robert Mugabe fyrrum forseti Zimbabve er látinn níutíu og fimm ára að aldri. Erlent 6. september 2019 07:15
Mugabe í fjárhagsörðugleikum Robert Mugabe, fyrrverandi forseti Simbabve, hefur auglýst fimm þreskivélar auk annarra framleiðslutækja til sölu á uppboði. Erlent 10. maí 2019 22:11
Gaf þjóðarleiðtogum stóla gerða úr fílafótum Mokgweetsi Masisi, forseti Botsvana, færði kollegum sínum frá Namibíu, Sambíu og Simbabve kolla gerða úr fílafótum að gjöf, á fundi leiðtoganna um framtíð dýranna. Erlent 7. maí 2019 22:04
Lægðin í Simbabve dýpkar enn Brauðverð tvöfaldaðist í Harare, höfuðborg Simbabve, á einum degi í gær. Erlent 17. apríl 2019 08:30
Háreysti í Harare eftir hárkollukaup Fréttaflutningur af hárkollukaupum simbabvesku ríkisstjórnarinnar hefur fallið í grýttan jarðveg meðal stjórnarandstæðinga sem annarra í landinu. Erlent 5. apríl 2019 20:00
Stuðningsmaður lét lífið fyrir utan þjóðarleikvang Simbabve Stuðningsmaður lést í troðningi fyrir utan þjóðarleikvang Zimbabwe fyrir leik Simbabve og Kongó-Brazzaville í undankeppni Afríkubikarsins. Fótbolti 25. mars 2019 08:30
Kólera greinist í Mósambík eftir fellibylinn Idai Þarmasýkingin Kólera hefur greinst í Afríkuríkinu Mósambík í kjölfar fellibylsins Idai sem fór yfir landið í síðustu viku Erlent 22. mars 2019 20:47
Þjóðarsorg eftir mannskætt ofviðri Hundruð liggja í valnum í Mósambík, Simbabve og Malaví og tala látinna hækkar enn þegar vika er liðin frá því að hitabeltislægðin Idai gekk á land. Heilu þorpin og hverfin eru á floti og von er á frekara regni á næstu dögum. Erlent 21. mars 2019 07:15
Gríðarlegt manntjón og eyðilegging vegna fellibyljarins Forseti Mósambík segir yfir þúsund manns hafa látist. Erlent 19. mars 2019 22:09
Eyðilegging í Mósambík og Simbabve eftir fellibylinn Idai Rauði krossinn telur að alllt að 90% hafnarborgarinnar Beira í Mósambík hafi skemmst eða eyðilagst í fellibylnum í síðustu viku. Erlent 18. mars 2019 14:28
Að minnsta kosti 24 látnir í Simbabve eftir ofsaveður Hið minnsta 24 eru látnir eftir að fellibylurinn Idai skall á suðaustur Simbabve í gær. Brýr hrundu og heimili fuku í burt vegna fellibyljarins. Erlent 16. mars 2019 11:19
Loka á netið á ný í Simbabve Stærsta fjarskiptafyrirtæki Simbabve, Econet Wireless, hefur tilkynnt að yfirvöld þar í landi hafi fyrirskipað að tímabundið loka fyrir internetið í landinu. Erlent 18. janúar 2019 13:12
Handtökuskipun gefin út á hendur Grace Mugabe Fyrrverandi forsetafrú Simbabve er grunuð um að hafa ráðist á fyrirsætu á hótelherbergi í Suður-Afríku í ágúst 2017. Erlent 19. desember 2018 13:38
Fjórir finnskir ferðamenn fórust í flugslysi í Simbabve Fjórir finnskir ferðamenn létust ásamt flugmanni sínum í flugslysi í afríkuríkinu Simbabve í dag. För mannanna var heitið að Viktoríufossum. Erlent 23. nóvember 2018 20:17
Veiðiþjófar höggva andlit og loppur af ljónum sem þeir eitra fyrir Þjóðgarðsverðir og dýraverndunarsinnar reyna nú allt hvað þeir geta til þess að berjast gegn veiðiþjófum sem herja á ljón víða um Afríku. Erlent 5. nóvember 2018 11:15
Þýskur ferðamaður traðkaður af fíl í Simbabve Embættismenn í Simbabve segja ekki ljóst hvers vegna dýrið hafi orðið styggt og málið sé til rannsóknar. Erlent 27. september 2018 23:42
Stjórnarandstæðingur ákærður í Simbabve Simbabvesk yfirvöld hafa ákært stjórnarandstæðing fyrir að kynda undir ofbeldi. Hann hafnar sök. Bandaríkin gagnrýna aðgerðir gegn stjórnarandstöðunni og SÞ segja að Sambía gæti hafa framið lögbrot með framsali mannsins. Erlent 11. ágúst 2018 09:30
Biti tekinn við landamærin Lögreglan í Simbabve náði rétt að bíta í hælana á fyrrverandi fjármálaráðherranum Tendai Biti á landamærunum við Sambíu er hann reyndi að flýja land í gær. Erlent 9. ágúst 2018 06:00
Stjórnvöld í hart gegn stjórnarandstöðu Hátt settir stjórnarandstæðingar eftirlýstir. Sakaðir um að kynda undir ofbeldi. Mannréttindavaktin fordæmir aðför að stjórnarandstæðingum. Segir lögreglu og her berja á þeim. Erlent 8. ágúst 2018 06:00