Svona gekk að flytja vindmyllurnar Fyrstu flutningar á risastórum vindmyllum í nótt um þjóðvegi Suðurlands gengu framar vonum og tók það flutningalestina um fimm klukkustundir að aka farminum frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Innlent 7.5.2026 21:02
Beygjur og hringtorg mesta áskorunin fyrir vindmyllulestina Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkefnastjóri vindmyllugarðs Landsvirkjunar við Vaðölduver, segir hafa gengið mjög vel að flytja hluta vindmylla í Vaðölduver í nótt. Lögregla segir beygjur og hringtorg mestu áskorun en flutningarnir hafi gengið vel í nótt. Innlent 7.5.2026 14:05
Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Einhverjir viðamestu þungaflutningar í sögu íslenska vegakerfisins hefjast í kvöld þegar risastórir vindmylluhlutar verða fluttir frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Kristján Már Unnarsson fréttamaður var í beinni frá Þorlákshöfn í kvöld. Innlent 6.5.2026 22:33
Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Úrskurðarnefnd kosningamála segir kosningalög alveg skýr um framboðsfrest og ekki sé gert ráð fyrir því í lögum að tekin sé til greina tilkynning um framboð sem berst utan frests þótt framboð hafi misskilið reglur um tilkynningu framboða. Innlent 14. apríl 2026 15:20
Miðflokkurinn úr leik í Árborg Miðflokkurinn mun ekki bjóða fram lista í Árborg í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þingmaður flokksins í Suðurkjördæmi segir ástæðuna þá að enginn hafi mætt fyrir hönd flokksins í persónu til að staðfesta framboðið. Hann segir skorta sveigjanleika hjá fulltrúum yfirkjörstjórnar sem séu skipaðir af núverandi fulltrúum í sveitarstjórn. Innlent 13. apríl 2026 16:41
Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Jónas Welding Jónasson, íbúi á Stokkseyri, segist hafa frétt af hvalreka við afleggjara að Skipum í morgun. Hann og afastelpurnar hans hafi þá ákveðið að rölta að hvalnum í hádeginu. Innlent 11. apríl 2026 12:27
Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þungaflutningar vegna nýrrar Ölfusárbrúar hófust í gærkvöldi og munu standa yfir að kvöld- og næturlagi fjóra daga til viðbótar fram til 15. apríl í næstu viku. Innlent 9. apríl 2026 10:20
Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Krían er komin til landsins um tveimur vikum á undan áætlun. Fuglafræðingur segir líklega um met að ræða. Kríur hafa sést bæði við Stokkseyri og Grindavík. Innlent 9. apríl 2026 09:11
Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Fólksfjölgun var minni í fyrra en spár gerðu ráð fyrir og þannig náðist að vinna upp skuld í íbúðauppbyggingu. Enn eru þó langir biðlistar eftir leigu- og félagslegu húsnæði og mikil þörf á frekari uppbyggingu hjúkrunarrýma og leikskólaplássa. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á húsnæðisáætlunum sveitarfélaga á Íslandi. Innlent 9. apríl 2026 09:01
Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Félagar í Verkalýðsfélagi Suðurlands hafa innan við fjóra daga til þess að bjóða sig fram til stjórnar eftir að sitjandi stjórn lét frest til þess byrja að tikka við lokun skrifstofu félagsins fyrir páska. Fyrrverandi starfsmaður sem sitjandi formaður rak hefur boðað mótframboð. Innlent 7. apríl 2026 11:31
Sárt fyrir aðstandendur að enginn taki ábyrgð Friðjón B. Gunnarsson, lögfræðingur fjölskyldu sem telur að mistök hafi verið gerð hjá Neyðarlínunni, segir málið mögulega ekki einsdæmi. Fjölskylda konu á Selfossi hafi haft samband við hann í gær vegna svipaðs máls. Hann vinni nú að því að afla gagna en segir þar konu hafa látist og sjúkrabíll hafi verið tuttugu mínútur á leiðinni. Rætt var við Friðjón í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 1. apríl 2026 10:16
Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Væntanlegur mótframbjóðandi formanns Verkalýðsfélags Suðurlands til tíu ára var rekinn sem bókari félagsins um síðustu mánaðamót. Hann gagnrýnir að formanns- og stjórnarkjör hafi enn ekki verið auglýst þrátt fyrir að formaðurinn hafi þegar lýst yfir framboði. Innlent 31. mars 2026 14:00
Forvarnir eru fjárfesting – ekki sparnaður Ég hef setið í bæjarstjórn Árborgar síðastliðin fjögur ár og starfa jafnframt sem verkefnastjóri frístundaþjónustu og forvarnarfulltrúi. Í þessum hlutverkum hef ég séð vel hversu miklu máli skiptir að grípa snemma inn og byggja upp sterkt samfélag fyrir börn og ungmenni. Skoðun 31. mars 2026 13:31
Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Þær notuðu bækur sem Bjarni bóksali Harðarson í Bókakaffinu tekur við í tonnatali komast, eðli málsins samkvæmt, ekki allar í endursölu og enda í Sorpugámum. Með Bjarna sem millilið friðar fólk þó samviskuna enda segir hann förgun bóka ekki ósvipaða því að að lóga gæludýrum. Lífið 31. mars 2026 10:01
Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar. Innlent 26. mars 2026 21:21
Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Einhverjir mestu þungaflutningar sem sést hafa á íslenska vegakerfinu fara fram á Suðurlandi fyrri hluta sumars þegar risastórar vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Innlent 25. mars 2026 22:10
Fjórar Kappahl-verslanir til viðbótar opnaðar á morgun Fjórar Kappahl-verslanir verða opnaðar klukkan 12 á morgun; á Glerártorgi á Akureyri, á Akranesi og Selfossi og í Krossmóa á Suðurnesjum. Stefnt er að því að opna samtals átta Kappahl-verslanir á næstu misserum og að minnsta kosti eina Newbie-verslun. Viðskipti innlent 20. mars 2026 08:49
Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur við Eyrarbakka Maður og kona voru flutt með þyrlu á sjúkrahús eftir árekstur tveggja fólksbíla í nágrenni við Eyrarbakka í kvöld, en aðeins maðurinn var fluttur „vegna ástands“ að sögn lögreglu. Innlent 20. mars 2026 00:08
Bætum heimaþjónustu aldraðra Hlutfall aldraðra í samfélaginu hækkar stöðugt. Bætt heilsa og betra heilbrigðiskerfi hafa gert það að verkum að flestir geta búist við að lifa langt fram yfir sjötugt. Skoðun 18. mars 2026 15:00
Stöðvuðu stút með naglamottu Lögregluþjónar frá Lögreglunni á Suðurlandi, Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og úr sérsveit ríkislögreglustjóra veittu um helgina ökmanni sem neitaði að stöðva bíl sínn eftirför. Beita þurfti naglamottu til að stöðva hann á endanum. Innlent 16. mars 2026 16:54
Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Starfsemi Félags eldri borgara á Selfossi hefur sjaldan eða aldrei verið eins öflug eins og í vetur enda er boðið upp á um 35 dagskrárliði alla vikuna. Stólaleikfimi, perlusaumur og Kínaskák njóta til dæmis mikilla vinsælda. Það nýjasta er að nú vilja eldri borgarar rauðvín með matnum á föstudögum en nautakjöt hefur verið tekið út af matseðlinum því það er svo erfitt að tyggja það. Lífið 15. mars 2026 13:03
Matthías leiðir Framsókn í Árborg Matthías Bjarnason, tæknimaður og varabæjarfulltrúi, leiðir lista Framsóknar í Árborg fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 2026. Ellý Tómasdóttir, bæjarfulltrúi, verkefnastjóri og forvarnarfulltrúi, skipar annað sætið. Innlent 14. mars 2026 01:43
Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi Allt besta fimleikafólk Danmerkur er hér á landi þessa dagana til að heimsækja fimleikadeildir víða á landinu til að kenna og vera með vinnustofur. Hópurinn, sem er á heimsmælikvarða, hefur á síðustu sex mánuðum verið á ferðalagi um heiminn. Innlent 11. mars 2026 21:02
Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Sigurjón Vídalin Guðmundsson, sérfræðingur hjá Vegagerðinni og bæjarfulltrúi, leiðir lista Samfylkingarinnar í Árborg. Sitjandi oddviti flokksins skipar heiðurssætið. Innlent 11. mars 2026 18:30