Smygl

Fréttamynd

Viðar Örn gaf Sæ­vari Louis Vuitton-tösku

Vinir Sævars Arnar Hilmarssonar, sakbornings í Dettifossmálinu, báru skýrslu fyrir dómi í dag til þess að svara fyrir ýmsan varning sem lögreglan lagði hald á, meðal annars Rólex-úr, Louis Vuitton-tösku og Kawasaki-mótorhjól. Meðal vitna var þjóðþekktur knattspyrnumaður.

Innlent
Fréttamynd

„Get ég komið fjór­tán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“

Ætla má að sakborningar í Dettifossmálinu hefðu getað búið til um 8,6 kíló af amfetamíndufti úr fjórtán lítrum af ætluðum amfetamínvökva sem þeir eru sakaðir um að flytja inn, að sögn dómskvadds matsmanns. Þeim er gefið að sök að flytja inn amfetamínvökvann í fjórum Absolut-vodkaflöskum en óskýrt er hversu stórar þær flöskur eru.

Innlent
Fréttamynd

Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu

Eldri maður frá Albaníu bar vitni í Dettifossmálinu svokallaða í gegnum fjarfundarbúnað við aðalmeðferð málsins síðdegis. Viðstaddir gátu ekki haldið í sér hlátri yfir vitnisburði hans. Hann spurði til að mynda hvers vegna verið væri að ræða sakamál á Íslandi við hann, þar sem nóg væri af sakamálum í Albaníu. Þá kom teiknimyndapersónan Herra Lína við sögu.

Innlent
Fréttamynd

Þögull sem gröfin um Sæ­var

Annar skipverjanna í Dettifossmálinu svokallaða segist einfaldlega hafa verið að fylgja fyrirmælum þegar hann náði í fjórtán lítra af ætluðum amfetamínbasa í Þýskalandi og flutti til Íslands. Hann vill ekkert tjá sig um samskipti sín við Sævar Hilmarsson, sem grunaður er um að hafa skipulagt innflutninginn.

Innlent
Fréttamynd

„Ég myndi segja að ég væri burðar­dýr“

Annar skipverjanna í Dettifossmálinu svokallaða segist hafa fengið áfall þegar hann tók við flöskum af amfetamínbasa í Bremerhaven í Þýskalandi. Honum hafi verið tjáð að um sjö lítra af efnum yrði að ræða en þeir reyndust fjórtán. Í hita leiksins hafi ekki verið um annað að ræða en að taka allar flöskurnar, hann hafi verið að verða seinn í vinnuna. 

Innlent
Fréttamynd

Aðal­með­ferð hafin í Detti­fossmálinu

Aðalmeðferð í máli Héraðssaksóknara á hendur þeim Sævari Erni Hilmarssyni, Kastriot Pepaj og tveimur skipverjum á Dettifossi, vegna umfangsmikils fíkniefnasmygsl með skipinu, er hafin.

Innlent
Fréttamynd

Skipu­leggjandi smygls hand­tekinn á Spáni og á­kærður hér

Karlmaður frá Dóminíska lýðveldinu var ákærður í sumar fyrir að hafa skipulagt tvo smyglleiðangra frá Spáni til Íslands, annars vegar í gegnum Þýskaland og hins vegar í gegnum Sviss. Burðardýr í málunum hafa þegar hlotið þriggja ára og 21 mánaða dóma fyrir smyglið. Maðurinn var einn 24 handtekinna í umfangsmikilli aðgerð fjölþjóðlegs lögregluliðs.

Innlent
Fréttamynd

Fjöl­skyldan með á þriðja kíló af kókaíni

Þrír Kólumbíumenn, sem sætt hafa gæsluvarðhaldi frá 29. júlí, voru gripnir með 2,4 kíló af kókaíni í farangri sínum. Daginn eftir voru tveir Kólumbíumenn til viðbótar teknir með 1,7 kíló af sama fíkniefni á Keflavíkurflugvelli.

Innlent
Fréttamynd

Burðar­dýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi

Tveir breskir ríkisborgarar hafa verið dæmdir í sex ára fangelsi fyrir umfangsmikinn innflutning á amfetamíni. Bæði voru burðardýr sem gerð voru út af örkinni af óþekktum aðila sem kallaði sig Stúart litla (e. Stuart Little) eftir þekktri teiknimyndapersónu.

Innlent
Fréttamynd

Atli sagður milli­liðurinn í Straumsvíkurmálinu

Tveir brasilískir kafarar eru í hópi þeirra níu sem sitja í gærsluvarðhaldi vegna Straumsvíkurmálsins svokallaða, mesta kókaínsmygli Íslandssögunnar. Atli Freyr Fjölnisson sem hlaut áður dóm í stóru fíkniefna máli er einnig í haldi.

Innlent
Fréttamynd

Af hverju fer sérsveitin í fleiri út­köll?

Er það vegna getuleysis í almennri löggæslu? Það líður varla sá morgunn að fréttamiðlar flytji okkur ekki fregnir af því að sérsveit ríkislögreglustjóra hafi verið kölluð út til að handtaka vopnaða einstaklinga eða bregðast við hættuástandi.

Skoðun
Fréttamynd

Kastriot og Sæ­var á­kærðir í Dettifoss-málinu

Kastriot Pepaj og Sævar Hilmarsson hafa verið ákærðir í umfangsmiklu fíkniefnamáli vegna innflutnings á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með Dettifossi, gámaskipi Eimskips. Tveir skipverjar á Dettifossi eru einnig ákærðir í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu

Einn þeirra níu sem eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á innflutningi á sögulegu magni fíkniefnis með flutningskipi sem kom til hafnar í  Straumsvík hlaut dóm fyrir morð í Danmörku árið 2011. Hann hefur áður verið í haldi lögreglu grunaður um stórfellt fíkniefnamisferli. 

Innlent
Fréttamynd

Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni

Lögregla réðst í húsleit víða á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn á 106 kílógrömmum af kókaíni sem fundust í álflutningaskipi við álverið í Straumsvík í síðustu viku. Níu hafa verið handteknir. Aldrei áður hefur verið lagt hald á jafnmikið magn af kókaíni í einni sendingu en virði fíkniefnanna er metið á hátt í þrjá milljarða króna.

Innlent
Fréttamynd

Dómur burðardýrs mildaður

Maður á fertugsaldri var dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar í héraðsdómi fyrr á árinu fyrir fíkniefnalagabrot. Málinu var skotið til Landsréttar en þar var refsing ákærða til endurskoðunar og dómur hans mildaður úr þremur og hálfu ári í þrjú ár. 

Innlent
Fréttamynd

Límdu efnin á fætur sína

Tveir voru dæmdir í þriggja ára fangelsi fyrir innflutning á tveimur og hálfu kílói af kókaíni. Málinu var áfrýjað til Landsréttar sem staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjaness.

Innlent
Fréttamynd

Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi

Alexandros Katsanos, grískur karlmaður á fimmtugsaldri, hefur verið ákærður fyrir að flytja 43 kíló af sterku kókaíni til landsins með Norrænu í mars síðastliðnum. Um er að ræða eitt stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar.

Innlent
Fréttamynd

Að­stand­endur „Kanna­bis Inc“ dæmdir í fangelsi

Fjórir karlmenn hafa verið dæmdir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa selt ótilgreint magn af amfetamíni, hassi, maríhúana, kókaíni, MDMA, metamfetamíni, LSD, Diazepam, sveppum, nammi sem innihélt kannabis og óþekktum töflum. Í fórum þeirra fundust límmiðar merktir „Kannabis Inc“ og þeir áttu í samskiptum í gegnum spjall með sama heiti á Telegram.

Innlent