Erlend sakamál
1 2 3 4 5 6 … 36 ›
Sátu um tóman banka í sex tíma Umsátri um banka í þýska bænum Sinzig lauk eftir um sex klukkustundir. Þegar lögregluþjónar fóru inn í bankanna fundu þeir eingöngu tvo starfsmenn sem höfðu verið læstir inni í hvelfingu. Ræninginn eða ræningjarnir virðast ekki hafa verið inni í bankanum og eru því taldir ganga lausir. Erlent 8.5.2026 14:35
Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Samföngum Ghislaine Maxwell, fyrrverandi kærustu og aðstoðarkonu Jeffreys Epstein, var refsað fyrir að kvarta yfir því að hún hefði verið sett í sama lágmarksöryggisfangelsi og þær. Nokkrar konur voru fluttar í verra fangelsi eftir að þær tjáðu sig um veru Maxwell í fangelsinu og voru skammaðar af yfirmanni fangelsisins, þótt reglur fangelsisins leyfðu þeim tæknilega séð að tjá sig við fjölmiðla. Erlent 8.5.2026 14:17
Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Sænsk yfirvöld lögðu hald á jafnvirði tæpra 1,7 milljarða íslenskra króna af rafmynt þegar lögregla stöðvaði starfsemi netverslunar með fíkniefni. Aldrei áður hefur verið lagt hald á svo mikil verðmæti í sýndareignum í Svíþjóð. Erlent 8.5.2026 12:14
Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Umfangsmikil lögregluaðgerð stendur nú yfir í bænum Sinzig í Þýskalandi þar sem bankaræningjar hafa tekið fólk í gíslingu. Þungvopnaðir lögregluþjónar sitja um útibú Volksbank í miðbæ Sinzig. Óljóst er hve margir ræningjarnir eru en þeir reyndu að ræna bankann þegar brynvörðum bíl var ekið þangað í morgun. Erlent 8.5.2026 11:11
Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Forsvarsmenn dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna segja að bréf sem Jefrey Epstein á að hafa skrifað áður en hann reyndi að svipta sig lífi í fangelsi hafi aldrei ratað til ráðuneytisins. Bréfið var opinberað fyrr í vikunni í tengslum við annað mál en starfsmenn ráðuneytisins eiga lögum samkvæmt að hafa opinberað öll skjöl þeirra sem tengjast máli auðjöfursins og kynferðisbrotamannsins heitna. Erlent 8.5.2026 10:40
Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Þrjár konur sem dvalið hafa um árabil í búðum fyrir fjölskyldur erlendra vígamanna Íslamska ríkisins lentu í Ástralíu í dag. Ein verður ákærð fyrir hryðjuverkastarfsemi og hinar tvær fyrir þrælahald. Konurnar eru hluti af stærri hópi kvenna frá Ástralíu sem ferðuðust á sínum tíma til Sýrlands til að ganga til liðs við Íslamska ríkið og börn þeirra. Erlent 7.5.2026 14:33
Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Fjórar konur og níu börn þeirra, sem dvalið hafa í búðum fyrir fjölskyldur erlendra meðlima Íslamska ríkisins í um sjö ár, eru á leið til Ástralíu. Til stendur að handtaka einhverjar kvennanna þegar þær koma aftur til landsins en þaðan ferðuðust þær á árum áður til að ganga til liðs við Íslamska ríkið og giftast vígamönnum hryðjuverkasamtakanna. Erlent 6.5.2026 08:08
Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Nathan Chasing Horse, sem er hvað þekktastur fyrir að hafa leikið hinn unga Smiles A Lot í kvikmyndinni Dansar við úlfa, frá 1990, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Hann var dæmdur fyrir nauðganir og kynferðisbrot gegn bæði konum og stúlkum yfir margra ára tímabil og í tengslum við sértrúarsöfnuð sem hann myndaði. Erlent 5.5.2026 12:01
Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Essa Suleiman, 45 ára bresk-sómalskur maður, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps eftir að hann stakk tvo menn af gyðingaættum í Lundúnum. Hann er talinn hafa stungið annan mann fyrr um daginn. Erlent 3.5.2026 18:08
Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í Austurríki eftir að rottueitur fannst í barnamat frá HiPP. Forstjóri fyrirtækisins segir að maðurinn hafi sent kröfu um háa fjárhæð á netfang sem er einungis skoðað á tveggja vikna fresti. Erlent 2.5.2026 21:42
Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps eftir stunguárás sem beindist að tveimur mönnum af gyðingaættum í Lundúnum á miðvikudag. Árásin hefur vakið óhug og reiði í gyðingasamfélagi borgarinnar. Erlent 1.5.2026 08:34
Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Tónlistarmaðurinn David Burke, eða D4vid, stakk hina fjórtán ára gömlu Celeste Rivas Hernandez ítrekað og sagaði lík hennar í sundur með keðjusögum í bílskúr hans. Þetta gerði hann, samkvæmt saksóknurum, svo hún segði ekki frá því hvernig hann hefði brotið á henni kynferðislega. Erlent 30.4.2026 08:26
Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Mexíkóskir sérsveitarmenn handtóku í gær einn af æðstu leiðtogum Jalisco New Generation Cartel-glæpasamtakanna. Þau eru talin einhver öflugustu glæpasamtök í heimi en, leiðtogi þeirra var felldur í áhlaupi hermanna og lögregluþjóna í febrúar. Erlent 28.4.2026 16:58
Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift Austurríkismaður á þrítugsaldri hefur játað að hafa lagt á ráðin um hryðjuverk á tónleikum Taylor Swift í Vínarborg í ágúst 2024. Upp komst um samsærið áður en tónleikarnir áttu að fara fram. Erlent 28.4.2026 16:47
Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín „Það er sótt að mér í draumum mínum hverja nótt. Það mun aldrei hætta. Það mun fylgja mér það sem eftir er ævi minnar,“ segir Ása Ellerup, fyrrverandi eiginkona Rex Heuermann, í lokaþætti þáttaraðarinnar The Gilgo Beach Killer: House of Secrets. Erlent 24.4.2026 07:15
Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Framleiðslufyrirtæki Jimmys Donaldson, einnar vinsælustu fígúru internetsins, hefur verið kært af fyrrverandi starfsmanni þess vegna meintrar kynferðislegrar áreitni og kynjamismunar. Erlent 23.4.2026 16:32
Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Bandaríska dómsmálráðuneytið sakar gamalgróin mannréttindasamtök í suðurríkjunum um fjársvik og peningaþvætti í sakamálarannsókn á hendur þeim. Ásakanirnar tengjast því að samtökin greiddu uppljóstrurum innan öfgasamtaka eins og Kú Klúx Klan. Erlent 22.4.2026 10:25
„Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Ása Ellerup, fyrrverandi eiginkona raðmorðingjans Rex Heuermann, hefur lýst því hvernig Heuermann játaði loks fyrir henni að hafa orðið átta konum að bana. Þetta kemur fram í nýjum heimildarþætti streymisveitunnar Peacock. Erlent 21.4.2026 13:36
Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Vopnaður maður skaut kanadískan ferðamann til bana og særði að minnsta kosti þrettán til viðbótar við Teotihuacán-pýramídann í Mexíkó í gær. Hann svipti sig lífi áður en lögreglu tókst að hafa hendur í hári hans. Erlent 21.4.2026 08:28
D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Bandaríski tónlistarmaðurinn David Burke, eða D4vid, hefur verið ákærður fyrir að myrða hina fjórtán ára gömlu Celeste Rivas Hernandez. Sundurbútað og rotið lík hennar fannst í yfirgefnum bíl hans í Los Angeles í september en hún hafði þá verið týnd um nokkuð skeið. Erlent 20.4.2026 18:08
Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu Vopnaðir ræningjar héldu 25 einstaklingum í gíslingu í útibúi bankans Crédit Agricole í Napólí á Ítalíu í gær. Fólkið, viðskiptavinir og starfsmenn, var frelsað af lögreglu eftir tvo tíma en þá voru ræningjarnir á bak og burt. Erlent 17.4.2026 11:01
D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Bandaríski tónlistarmaðurinn D4vd, hefur verið handtekinn vegna gruns um að hafa orðið Celeste Rivas Hernandez að bana. Líkamsleifar Hernandez fundust í skotti Teslu-bifreiðar hans í fyrra. Hún var aðeins fjórtán ára þegar hún lést. Rétt nafn tónlistarmannsins er David Anthony Burke, hann er í dag 21 árs. Erlent 17.4.2026 08:42
Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Rannsóknardómari í Madrid hefur ákært Begoñu Gómez, eiginkonu Pedro Sánchez forsætisráðherra Spánar, fyrir fjárdrátt og misferli. Ásakanirnar tengjast stöðu Gómez hjá háskóla í höfuðborginni. Erlent 14.4.2026 13:39
Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Franskur dómstóll dæmdi sementsframleiðandann Lafarge til þess að greiða sekt og stjórnendur þess í fangelsi fyrir að fjármagna hryðjuverkasamtök í Sýrlandi. Fyrirtækið greiddi samtökunum svokallað verndargjald til þess að halda starfsemi sinni í landinu stríðshrjáða gangandi. Viðskipti erlent 13.4.2026 15:47
Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Níu ára gömlum dreng var bjargað á dögunum eftir að hafa verið innilokaður í sendibíl föður síns í austurhluta Frakklands frá árinu 2024, að sögn saksóknara á svæðinu. Barnið hefur verið lagt inn á sjúkrahús og er faðir þess í haldi lögreglu. Erlent 11.4.2026 22:44
Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Dómstóll í Skotlandi dæmdi þarlendan karlmann í átta ára fangelsi fyrir manndráp vegna sjálfsvígs eiginkonu hans. Þetta er í fyrsta skipti sem maður sem beitir maka sinn ofbeldi er gerður ábyrgur fyrir sjálfsvígi. Erlent 10.4.2026 14:59
„Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Jasveen Sangha, eða Ketamín-drottningin, hefur verið dæmd til fimmtán ára fangelsis fyrir að selja Friends-leikaranum Matthew Perry vímuefni sem hann neytti og leiddu til andláts hans. Erlent 8.4.2026 19:58
Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Rex Heuermann hefur játað að hafa myrt sjö konur sem tengjast áralangri rannsókn lögreglu á Gilgo-raðmorðingjanum í Bandaríkjunum. Auk þess viðurkenndi hann að hafa myrt aðra konu sem hann hafði ekki verið ákærður fyrir. Konurnar hurfu á milli 1993 og 2010. Rannsókn málsins spannar mörg ár en Heuermann var ekki grunaður fyrr en árið 2022. Erlent 8.4.2026 16:55
Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Roberto Mazzarella, mafíuforingi sem var eftirlýstur fyrir morð, var handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-ströndinni eftir að hafa verið á flótta í meira en ár. Erlent 4.4.2026 16:01
Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Níu Bandaríkjamenn hafa verið ákærðir fyrir mannrán og vopnað rán eftir að hafa lokkað nokkra tónlistarmenn inn í upptökuver í Dallas, frelsissvipt þá og rænt af þeim fjármunum og lausafé fyrr á þessu ári. Meðal fórnarlamba er rapparinn og Íslandsvinurinn Gucci Mane. Lífið 2.4.2026 20:58