VÍS-bikarinn

Fréttamynd

„Við þekkjum um­hverfið alla­vega betur“

Grindavík mætir Tindastóli í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í körfubolta í kvöld. Þorleifur Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, býst við erfiðum leik gegn liði með nýjan leikmann en vonar að toppliðið finni taktinn á sínum gamla heimavelli í kvöld.

Körfubolti
Fréttamynd

„Vitum hvernig Stjarnan spilar“

Það var létt yfir Jakobi Sigurðssyni, þjálfara KR, þegar hann mætti í viðtal strax eftir sigur liðsins gegn Tindastól í undanúrslitum Vís bikarkeppni karla nú í kvöld. Leikurinn var æsispennandi en úrslitin réðust á lokamínútu leiksins.

Körfubolti
Fréttamynd

„Við erum mjög hungraðir í þennan titil“

Stjarnan tryggði sér sæti í úrslitum VÍS bikarsins í kvöld þegar þeir lögðu Keflavík af velli í framlengdum leik 107-110. Hilmar Smári Henningsson átti stóra körfu undir lok leiks sem fór langt með þetta fyrir Stjörnuna.

Sport
Fréttamynd

„Byrjunin verður gríðar­lega mikil­væg“

Undanúrslitin í VÍS-bikarnum fara fram í Smáranum í kvöld. Keflavík mætir Stjörnunni klukkan 17:15 og Tindastóll mætir síðan KR klukkan 20:00. KR-ingar hafa nú unnið fjóra leiki í röð í Bónus-deildinni og þykja eitt heitasta liðið á landinu í dag. En Stólarnir hafa aftur á móti tapað tveimur leikjum í röð í deildinni og það illa fyrir Keflavík á dögunum og síðan Stjörnunni á föstudagskvöldið.

Körfubolti
Fréttamynd

Helgi Már: Lögðumst bara flatir fyrir þeim

Helgi Már Magnússon var allt annað en sáttur við hugarfar leikmanna sinna þegar Grindavík féll úr leik í VÍS-bikar karla í körfubolta með tapi gegn Stjörnunni í átta liða úrslitum keppninnar í kvöld. 

Körfubolti
Fréttamynd

Hilmar Smári: Gott að spila aftur í Garða­bænum

Hilmar Smári Henningsson snéri aftur í lið Stjörnunnar eftir dvöl sína í Litáen þegar liðið lagði Grindavík að velli í VÍS-bikar karla í körfubolta í kvöld. Hilmar Smári hélt til Litáen í kjölfar þess að hafa orðið Íslandsmeistari með Stjörnunni en lék í Stjörnutreyjunni að nýju í sigrinum gegn Grindvíkingum. 

Körfubolti
Fréttamynd

Pa­vel hjálpar Grind­víkingum

Körfuboltasérfræðingurinn Pavel Ermolinskij er mættur aftur í þjálfun, að minnsta kosti í kvöld, því hann er til aðstoðar hjá Grindvíkingum í stórleiknum við Stjörnuna í VÍS-bikarnum.

Körfubolti
Fréttamynd

„Auð­vitað var þetta sjokk“

Landsliðsmaðurinn Haukur Helgi Pálsson, leikmaður Álftaness, segir það hafa verið sjokk að heyra að Kjartan Atli Kjartansson væri hættur sem þjálfari liðsins. Hans verði saknað en nú verði menn að þjappa sér vel saman og finna meiri gleði og baráttu í sínum leik.

Körfubolti
Fréttamynd

Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“

Hjalti Þór Vil­hjálms­son, settur þjálfari Álfta­ness, segir leik­menn hálf skammast sín eftir þungt tap gegn Tindastól á dögunum og af­sögn Kjartans Atla Kjartans­sonar úr starfi þjálfara liðsins. Kjartan bað Hjalta um að taka við af sér fljót­lega eftir tapið gegn Stólunum á föstu­dag. Álfta­nes heimsækir nágranna sína í Stjörnunni í kvöld í bikarnum.

Körfubolti
Fréttamynd

Aftur og ný­búnir en núna í bikarnum

Grindvíkingar unnu Ármenninga í annað skiptið á fjórum dögum í kvöld og að þessu sinni tryggðu Grindvíkingar sér sæti í átta liða úrslutum VÍS-bikars karla í körfubolta.

Körfubolti