Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður
1 2 3 4 5 6 … 8 ›
Hvað vakir fyrir ríkisstjórninni? Áður en þjóðin veitir ríkisstjórninni umboð til að hefja aðildarviðræður hlýtur hún því að eiga rétt á skýru svari við einfaldri spurningu: Hvaða markmið hyggst ríkisstjórnin leggja fram fyrir hönd Íslands í mögulegum viðræðum við Evrópusambandið? Umræðan 21.7.2026 06:41
Segir ótímabært að ræða undanþágur Utanríkisráðherra Frakklands segir ótímabært að ræða hugsanlegar undanþágur Íslands frá fiskveiðistefnu Evrópusambandsins og telur Íslendinga hafa engu að tapa segi þeir „já“ í ágúst. Hann átti í dag fund með utanríkisráðherra Íslands, sem segir slíkar undanþágur ekki hafa borið á góma í samræðum þeirra. Innlent 20.7.2026 18:52
Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Breski spunameistarinn og hlaðvarpsstjórnandinn Alastair Campbell, sem var lengi vel talsmaður Tony Blair, er staddur á Íslandi til að taka viðtal við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Campbell er feginn að komast undan hitanum á Bretlandi í kuldann og rigninguna á Íslandi. Lífið 20.7.2026 15:43
Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Samtökin Sjá, sem berjast fyrir því að þjóðin segi já við áframhaldandi aðildarviðræðum við ESB í ágúst, hafa fengið liðsauka með komu Grétu Maríu Grétarsdóttur, fyrrverandi forstjóra Prís, og Hrundar Rudólfsdóttur, framkvæmdastjóra Sólvalla rekstrarfélags, í stjórn hreyfingarinnar. Fyrir í stjórn eru þau Jónas Hagan, Hjálmar Vilhjálmsson og Berglind Guðmundsdóttir. Innlent 20.7.2026 10:19
Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Samtökin Áfram Ísland, sem berjast fyrir því að þjóðin segi nei við áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið, blása til opins fundar í Brekkubæjarskóla á Akranesi klukkan 17. Fundinn má sjá í beinni útsendingu hér á Vísi. Innlent 16.7.2026 16:43
„Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Margrét Rós Sigurjónsdóttir, sem fullyrti í gær í myndskeiði á Instagramsíðu SJÁ að mjólkurlítrinn kostaði 380 krónur, segir að um mannleg mistök hafi verið að ræða og málið allt sé „svolítið vandræðalegt.“ Innlent 16.7.2026 16:22
Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þrátt fyrir að einungis ein spurning verði á kjörseðlinum í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst er ekki víst að lokatölur liggi fyrr fyrir en í hefðbundnum kosningum. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst eftir rúma viku. Innlent 16.7.2026 11:54
Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Fulltrúa samtakanna SJÁ, sem berjast fyrir því að þjóðin greiði atkvæði með því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný, varð á í messunni í myndskeiði á Instagram þegar hann sagði mjólkurlítrann á Íslandi kosta 380 krónur. Hið rétta er að í Bónus kostar hann 234 krónur. Myndskeiðinu hefur nú verið eytt. Innlent 15.7.2026 13:24
Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Kjell Magne Bondevik, fyrrum forsætisráðherra Noregs, hefur snúist hugur varðandi mögulega ESB-aðild Noregs og vill nú þjóðaratkvæði um hvort fara skuli í aðildarviðræður strax á næsta ári. Bondevik var forsætisráðherra frá 1997 til 2000 og síðan aftur frá 2001 til 2005. Erlent 15.7.2026 12:43
„Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Prófessor við lagadeild Háskólans á Akureyri telur að ef verði af inngöngu Íslands í Evrópusambandið sé þjóðin ekki sömuleiðis að framselja löggjafarvaldið. Hins vegar felist í því að framselja dómsvaldið að hluta. Lagalega séð séu undanþágur frá samningnum mögulegar en á sama tíma séu þær háðar pólitískum vilja. Innlent 12.7.2026 14:01
Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Prófessor í hagfræði og fyrrverandi viðskiptaráðherra segir kostnaðinn við kortanotkun og aðra greiðslumiðlun vera háan á Íslandi og talsvert hærri en í nágrannalöndum. Telur hann að þessi kostnaður myndi lækka við upptöku evru þar sem Íslendingar myndu njóta hagkvæmni stórrekstrar í ríkari mæli. Viðskipti innlent 11.7.2026 22:46
Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB Umræða um mögulegar undanþágur Íslands frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins hefur vakið viðbrögð á þingum Danmerkur og Hollands. Innlent 10.7.2026 13:58
„Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir Ísland í sterkri stöðu komi til samningaviðræðna við ESB. Hún segist sannfærð um að undanþágur fáist í bæði sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum. Innlent 10.7.2026 09:50
„Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Nýr vefur sem á að auðvelda kjósendum lífið í aðdraganda kosninga um aðildarviðræður við Evrópusambandið hefur litið dagsins ljós. Formaður landskjörstjórnar segir hlutlausar upplýsingar mikilvægar þegar um jafn mikið hitamál sé að ræða. Innlent 9.7.2026 21:00
ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Hart var tekist á um Evrópusambandið, sjávarútveg og mögulegar sérlausnir Íslands í aðildarviðræðum þegar Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, og Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar sem á sæti í utanríkismálanefnd, ræddu málið í Reykjavík síðdegis í dag. Innlent 9.7.2026 20:02
„Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innganga Íslands í Evrópusambandið er svo gott sem úr myndinni áður en gengið er til hugsanlegra aðildarviðræðna. Þetta segir framkvæmdastjóri SFS í ljósi þess að forsætisráðherra Hollands tjáði sig um kröfu Íslands um undanþágu frá sjávarútvegsstefnu sambandsins. Innlent 9.7.2026 18:51
Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, telur nokkuð ófréttnæmt að Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti lýðveldisins, tali fyrir því að fólk svari neitandi í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Það sé vegna þess að hann hafi á sínum stjórnmálaferli verið hrifnari af því að segja „nei“ en „já“. Innlent 9.7.2026 17:59
„Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ „Þetta er ekki í samræmi við mín samtöl, meðal annars við Hollendinga og mína kollega. Ég spái því að þetta verði ekki síðasta fréttin sem Morgunblaðið flytur með þessum hætti.“ Innlent 9.7.2026 11:42
Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Hafrúnu Kristjánsdóttur, prófessor í sálfræði, brá í brún þegar hún skrollaði um Facebook í gær og sá að verið væri að líkja Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrrverandi forseta lýðveldisins, við engan annan Adolf Hitler. Hún hvetur fólk til að vera kurteisara í umræðunni nú þegar minna en tveir mánuðir eru til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Innlent 8.7.2026 21:34
Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Efnahagsstöðugleiki og upptaka evrunnar heilla formann Ungra Evrópusinna við aðild að ESB en hann líti á krónuna sem „misheppnaða tilraun.“ Ungt fólk víða um heim glími við atvinnuleysi og það sé ekki evrópskt vandamál. Innlent 8.7.2026 17:08
Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Ísland stendur heilt yfir mjög vel í samanburði við ríki Evrópusambandsins þegar horft er til lífskjara, kaupmáttar, atvinnuþátttöku, framleiðni og opinberra fjármála. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri greiningu Konráðs Guðjónssonar hagfræðings hjá Kontext. Innlent 8.7.2026 15:39
Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Ræða Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta á stofnfundi Áfram Ísland, samtök sem berjast fyrir Nei-i í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný, þykir á sumum bæjum einhver mesta þrumuræða sem haldin hefur verið á Íslandi. Innlent 7.7.2026 12:23
„Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar, sótti stofnfund samtakanna Áfram Ísland í gær. Bæði félög munu tala fyrir málstað nei-sinna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Haraldur fagnar stofnun samtakanna: „Þetta er algjörlega dásamlegt, bestu tíðindi vikunnar.“ Innlent 7.7.2026 11:09
„Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Fjölsóttur stofnfundur samtakanna Áfram Ísland fór fram síðdegis. Um átta hundruð manns sóttu fundinn og var húsfyllir var í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll. Samkvæmt fyrsta ræðumanni og fundarstjóra, Halldóri Benjamín Þorbergssyni, hafa á þriðja þúsund skráð sig í samtökin. Innlent 6.7.2026 19:58
Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Stofnfundur Áfram Íslands fer fram í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll. Samtökin munu tala fyrir málstað nei-sinna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Innlent 6.7.2026 17:12
Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Landskjörstjórn og Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands hafa tilkynnt um opnun nýrra vefsvæða í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst um hvort taka eigi upp þráðinn á ný í aðildarviðræðum við Evrópusambandið, þrettán árum síðar. Innlent 6.7.2026 17:07
„Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ spyr Kristján Loftsson, eigandi Hvals ehf., í viðtali við breska blaðið The Telegraph. Blaðið slær því upp að ríkisstjórn Íslands sé tilbúin til að banna hvalveiðar til að auðvelda inngöngu í ESB. Ísland sé eitt þriggja landa, auk Noregs og Japans, sem enn geri slíkt eftir að Alþjóðahvalveiðiráðið lagði bann við hvalveiðum árið 1986. Innlent 5.7.2026 10:54
Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Það var með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þetta segir forsætisráðherra sem telur fólk þurfa að fá að vera í friði til að melta sína ákvörðun. Þingið hafi tjáð sig lengi um málið. Innlent 4.7.2026 12:07
Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Almannatengill segir að ef upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu séu óskýrar eða ef á reiki sé um hvað kosið er geti það leitt til aðgerðarleysis að hálfu kjósenda. Innlent 3.7.2026 22:21
Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður telur einsýnt að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra veigri sér við að mæta sér í kappræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við ESB sem fram eiga að fara í lok ágústmánaðar. Innlent 3.7.2026 13:20