Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran

Fréttamynd

Heimta enn að­stoð sem þeir segjast ekki þurfa

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tekur undir með Donald Trump, forseta, um að bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu þurfi að gera meira þegar kemur að því að opna Hormússund fyrir umferð olíuflutningaskipa á nýjan leik. Rubio segir Bandaríkjamenn sífellt beðna um að styðja Úkraínu og hjálpa til í stríði sem sé á annarri heimsálfu. Þegar Bandaríkjamenn þurfi á aðstoð að halda hafi Trump fengið neikvæð svör.

Erlent
Fréttamynd

Segir við­semj­endur ekki þora að gangast við við­ræðum

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stjórnvöld í Íran áfjáð í að komast að samkomulagi til að binda enda á árásir Bandaríkjanna og Ísrael en að þau séu hrædd við að viðurkenna það. Viðsemjendur Bandaríkjanna óttist að vera myrtir af eigin stjórn. „Þeir eru líka hræddir um að verða drepnir af okkur,“ sagði forsetinn í gær.

Erlent
Fréttamynd

Sjálf­skipaður Yoda okkar Ís­lendinga hefur rangt fyrir sér

Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga: Hann er góður landafræðikennari. Þótt gáfulegir stjórnmálaskýrendur tali eins og þeir hafi fæðst með vitneskjuna um hvar Hormús-sund er að finna á korti, höfðu fæst okkar heyrt af þessari lífæð nútímans fyrr en í síðasta mánuði – þar með talinn Trump sjálfur, af atburðum síðustu vikna að dæma.

Lífið
Fréttamynd

Íranir hafna friðartillögu Banda­ríkja­manna

Íranir hafa hafnað tillögu Bandaríkjamanna um friðarsamkomulag vegna yfirstandandi stríðs Ísraela og Bandaríkjamanna á hendur Írönum. Þetta hefur íranski ríkismiðillinn Press TV eftir embættismanni þar í landi.

Erlent
Fréttamynd

Hafa á­hyggjur af hús­næðis- og byggingamarkaði

Það er áhyggjuefni að mati fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands hversu mjög hefur hægst á sölu eigna á byggingamarkaði, bæði sölu á eignum í nýbyggingum og nú einnig eldri íbúðum. Seðlabankastjóri segir góðærinu að einhverju leyti lokið en að viðnámsþróttur í hagkerfinu sé með ágætum.

Innlent
Fréttamynd

Lán­veit­endur þurfa að vera vakandi fyrir „aukinni á­hættu“ í bygginga­geiranum

Vaxandi óvissa í alþjóðamálum samhliða versnandi verðbólguhorfum og væntingum um hærri vexti og hægari efnahagsumsvif gæti haft þau áhrif að það mun reyna á fjármálastöðugleika hér á landi, að mati Seðlabankans, en þjóðarbúið og fjármálakerfið stendur sterkt til að mæta þeim áskorunum. Fjármálastöðugleikanefnd brýnir einnig lánveitendur til að vera vakandi fyrir „aukinni áhættu“ í byggingageiranum en skuldir hafa þar farið vaxandi.

Innherji
Fréttamynd

Íranir segja engar við­ræður í gangi þvert á yfir­lýsingar Trumps

Fulltrúar Írans hjá Sameinuðu þjóðunum hafa ítrekað að olíuskip sem eru á vegum þjóða sem eru ekki óvinir Írans geti vel siglt um Hormus sund þrátt fyrir hótanir þeirra um að loka sundinu fyrir óvinum sínum. Talsmaður hersins hafnar því að viðræður við Bandaríkjamenn standi yfir.

Erlent
Fréttamynd

Sendir líka fall­hlífar­her­menn til Mið-Austurlanda

Forsvarsmenn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna eru sagðir undirbúa það að senda um þrjú þúsund fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda. Hlutverk þeirra yrði að styðja við aðgerðir gegn Íran. Einnig er verið að senda landgönguliða á svæðið.

Erlent
Fréttamynd

Ísraelar hyggjast her­nema suður­hluta Líbanon

Stjórnvöld í Ísrael hyggjast taka yfir suðurhluta Líbanon að ánni Litani, það sem þau kalla „öryggissvæði“. Áin liggur í um 30 kílómetra fjarlægð frá landamærum Ísrael og Líbanon. Að sögn utanríkisráðherrans Israel Katz munu Ísraelar einnig stjórna þeim brúm yfir ána sem enn standa.

Erlent
Fréttamynd

Við­ræður eða ekki við­ræður, þarna er efinn

Einhverjar þreifingar virðast hafa átt sér stað á bakvið tjöldin milli stjórnvalda í Bandaríkjunum og Íran um mögulegar leiðir til að binda enda á átökin sem nú standa yfir, ef marka má erlenda miðla. Eiginlegar viðræður virðast þó ekki hafnar.

Erlent
Fréttamynd

Notuðu mynda­vélar klerka­stjórnarinnar til að fella Khamenei

Klerkastjórnin í Íran hafði um nokkurt skeið komið öryggis- og eftirlitsmyndavélum fyrir víðsvegar um landið til að fylgjast með og sporna gegn andófi. Ísraelskir hakkarar hafa í gegnum árin hakkað sig inn í margar þessara myndavéla, auk annarra sem finna má í verslunum og víðsvegar annars staðar, og hafa þær verið notaðar, með aðstoð gervigreindar, til að finna ráða- og embættismenn sem ráðnir hafa verið af dögum.

Erlent
Fréttamynd

Íranir segja engar við­ræður við Trump-liða eiga sér stað

Ýmsir ráðamenn í Íran segja Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, hafa sagt ósatt í dag. Þeir segja engar viðræður við Bandaríkjamenn eiga sér stað en fyrr í dag sagði Trump að viðræður hefðu gengið vel á undanförnum dögum og því hefði hann gefið þá skipun að stöðva árásir á orkuinnviði í Íran í nokkra daga.

Erlent
Fréttamynd

Gerir hlé á á­rásum á Íran

Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að gera hlé á árásunum sínum á Íran í kjölfar samningaviðræðna. Hann tilkynnir þetta með færslu á samfélagsmiðlum. Íranir segjast ekki hafa tekið þátt í neinum samningaviðræðum.

Erlent
Fréttamynd

Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakka­föll

Áhrif orkukreppunnar vegna árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran nú eru meiri en tveggja olíukreppa á 8. áratugnum og innrásarinnar í Úkraínu samanlagt. Forstjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar telur þjóðarleiðtoga hafa ekki gert sér greint fyrir alvarleikanum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Trump og Starmer ræddu Hormuz-sund

Ísraelsmenn gerðu umfangsmiklar árásir á Tehran, höfuðborg Íran, í morgun. Sprengingar heyrðust víða í borginni en talsmenn hersins sögðu innviði tengda hryðjuverkum skotmörk árásanna.

Erlent
Fréttamynd

Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist gefa Íran 48 klukkustundir til þess að opna Hormússundið að fullu, án nokkurrar ógnar. Verði það ekki gert muni Bandaríkin hæfa og gjöreyða ýmsum orkuinnviðum Írana.

Erlent
Fréttamynd

Í­hugar að draga úr hernaði í Íran

Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir Bandaríkjaher nálægt því að ná markmiðum sínum í Íran, og segist huga að því að draga úr hernaði þar sem hófst í lok síðasta mánaðar.

Erlent
Fréttamynd

Rekinn úr íranska lands­liðinu

Sardar Azmoun, einn besti leikmaður íranska landsliðsins í fótbolta, er sagður hafa verið rekinn úr landsliðinu fyrir meinta óhollustu við stjórnvöld landsins.

Fótbolti
Fréttamynd

Allir nema Trump skilja hvað hann hefur gert

Donald Trump hugsar ekki með strategískum hætti. Hann hugsar heldur ekki í sögulegu eða landfræðilegu samhengi, né heldur á rökréttan hátt. Hann tengir ekki saman ákvarðanir sem hann tekur einn daginn við atburði sem eiga sér stað vikum síðar. Hann veltir því ekki fyrir sér hvernig hegðun hans á einum stað hefur áhrif á viðbrögð annarra á öðrum stöðum.

Umræðan
Fréttamynd

Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, heldur því fram að Íranir geti ekki lengur auðgað úran, sem þarf til þess að búa til kjarnorkuvopn, eða framleitt frekari skotflaugar. Hann neitar því að Ísraelsmenn hafi dregið Bandaríkjamenn í stríðið og segir Ísraelsmenn ætla að hætta að ráðast á olíuinnviði Írans.

Erlent