Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Samúel Karl Ólason skrifar 26. júlí 2026 08:38 Trump er sagður hafa hallast að því að auka umfang árása á Íran, áður en hann fundaði með ráðgjöfum sínum og ráðherrum. Þeir lýstu margir yfir áhyggjum af stöðunni og sérstaklega skorti Bandaríkjamanna á flugskeytum í loftvarnarkerfi. AP/Rod Lamkey, Jr. Bandaríkjamenn gerðu engar árásir á Íran í nótt, eftir tæplega tvær vikur af daglegum árásum. Donald Trump, forseti, hefur íhugað að auka umfang árása gegn Íran enn frekar en JD Vance, varaforseti, Dan Caine, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, og aðrir ráðgjafar forsetans eru sagðir hafa lýst yfir áhyggjum vegna þeirra ætlana.
Áhyggjurnar snúa meðal annars að því hve átökin hafa gengið á birgðir af flugskeytum í loftvarnarkerfi Bandaríkjanna og ríkja Mið-Austurlanda. Það á sérstaklega við flugskeyti í Patriot-loftvarnarkerfi, sem eru mikilvæg þegar kemur að því að skjóta niður skotflaugar. Þessi dýru flugskeyti, sem kosta jafnvel yfir fjórar milljónir dala (504 milljónir króna) stykkið, hafa verið notuð til að skjóta niður ódýra sjálfsprengidróna frá Íran. Ráðgjafar forsetans lýstu einnig yfir áhyggjum af því að stríðið gæti breiðst út enn frekar. Sjá einnig: Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Í frétt New York Times segir að á fundi í Hvíta húsinu á föstudaginn hafi Trump rætt við helstu ráðgjafa sína og ráðherra um það að mögulega auka umfang árása á Íran. Heimildarmenn miðilsins segja sérstaka áherslu hafa verið lagða á skort á flugskeytum en þrír bandarískir hermenn féllu nýverið þegar írönsk skotflaug komst í gegnum varnir Bandaríkjamanna í Jórdaníu. Þó árásir hafi ekki verið gerðar í nótt, svo vitað sé, eru Bandaríkjamenn enn með Íran í herkví og koma í veg fyrir að skipum sé siglt þaðan eða þangað. Eitt skip var stöðvað í gær með árás og hermenn fóru þangað um borð. The U.S. naval blockade against Iran remains in full effect. As of July 25, CENTCOM has redirected 12 commercial vessels trying to run the blockade, disabled 2 that didn't comply, and boarded 2 to ensure total compliance.Earlier today, U.S. forces completed a verification… pic.twitter.com/eyp1N2B9sO— U.S. Central Command (@CENTCOM) July 25, 2026 CNN hefur einnig sagt frá þessum fundi og því að Caine hafi þar sagt Trump að herinn gæti vel aukið umfang árása gegn Íran. Það gæti þó haft miklar afleiðingar og lýsti hann yfir sérstökum áhyggjum af því hve birgðastaða Bandaríkjanna á flugskeytum fyrir Patriot og ýmis önnur hergögn væri lítil. Viðræður sagðar snúast um stjórn Hormússunds Eftir fundinn á föstudaginn sagði Trump að bandarískir embættismenn ættu í viðræðum við klerkastjórnina í Íran. Þá gaf hann í skyn að klerkastjórnin virtist hafa meiri áhuga á viðræðum en áður. Enn er þó óljóst hvort einhverjar viðræður eða jafnvel þreifingar hafi farið fram. Einn heimildarmaður AP fréttaveitunnar, sem er sagður vera embættismaður frá Mið-Austurlöndum og mun þekkja til, segir að bæði Íranir og Bandaríkjamenn vilji aftur vopnahlé. Verið sé að ræða möguleikann á því að Íranir haldi áfram að stjórna Hormússundi, sem þeir gerðu ekki fyrir stríðið, en með færri takmörkunum á skipasiglingar en á undanförnum vikum. Utanríkisráðherra Íran sagði í morgun að klerkastjórnin ætti í viðræðum við yfirvöld í Óman um það hvernig slíkt myndi ganga fyrir sig. Fáir höfðu trú á að áætlun Trumps myndi skila árangri Trump sagði einnig eftir fundinn að mögulega myndu árásirnar halda áfram og að þær yrðu umfangsmeiri. Hann sagði Bandaríkjamenn klára í slaginn. Þeir gætu aukið umfangið til muna með litlum fyrirvara. Þá sagði Trump einnig að hann hefði ekki áhyggjur af kosningunum í haust. Fáir, ef einhverjir, sem sátu fundinn á föstudaginn. eru sagðir hafa trú á því að það að auka umfang árása á Íran myndi bera þann árangur sem Trump vonaðist eftir. NYT hefur eftir heimildarmönnum sínum að fyrir fundinn hafi Trump virst tilbúinn til að skipa hernum að gera umfangsmeiri árásir en á undanförnum dögum hafa Bandaríkjamenn aukið viðbúnað í Mið-Austurlöndum töluvert með því að senda hergögn, hermenn og herflugvélar á svæðið. Sjá einnig: Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Jared Kushner, tengdasonur forsetans og ráðgjafi hans, er sagður hafa lagt til á fundinum að í stað árása myndu Bandaríkjamenn beita viðræðum og efnahagslegum þrýstingi gegn Íran og til lengri tíma. Næsta þriðjudag munu átökin, að stuttu vopnahléi meðtöldu, hafa staðið yfir í fimm mánuði. Stríðið hefur haft mikil áhrif á olíuverð og þar af leiðandi á verð á bensíndælum víðsvegar um heim. Repúblikanar hafa sérstakar áhyggjur af því að hærra verð muni koma niður á þeim í þingkosningum í haust. Trump hefur þó sagt að hann hafi litlar áhyggjur af því. Upprunalega tóku Ísraelar þátt í stríðinu en það hafa þeir ekki gert eftir að vopnahléið féll saman. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, mun sækja Trump heim í næstu viku.
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Donald Trump Bensín og olía Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Fleiri fréttir Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Sjá meira