Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran
2 3 4 5 6 7 8 … 8 ›
Annar tónn í Trump sem ráðleggur Íran að halda sig fjarri HM Bandaríkjaforsetanum Donald Trump hefur snúist hugur og segir hann nú að það sé ekki viðeigandi fyrir íranska landsliðið að mæta á HM í sumar. Fótbolti 12.3.2026 18:00
Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Mojtaba Khamenei, sem tók nýverið við embætti æðstaklerks Íran af föður sínum, heitir því að halda Hormússundi lokuðu. Hann segir einnig að árásir á nágrannaríki Íran muni halda áfram og þá sérstaklega á bandarískar herstöðvar í þessum ríkjum. Erlent 12.3.2026 14:10
Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Fyrrverandi sjónvarpsmaðurinn, Pete Hegseth, sem nú fer með hlutverk varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tjáði sig glaðhlakkalegur á fréttamannafundi í síðustu viku um stríðsaðgerðir Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Sagði hann Írani búna að vera – eða eins og upptendraður unglingur sem spilaði tölvuleiki með vinum sínum í stofunni hjá mömmu sinni myndi orða það eftir aðeins of margar dósir af Pepsi Max: Hann sagði að þeir væru „toast“. Lífið 12.3.2026 07:00
Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Verð á Brent hráolíu er komið aftur yfir 100 dollara á tunnu og ríki út um allan heim íhuga nú aðgerðir til að mæta yfirvofandi orkuskorti vegna aðgerða Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran og hefndaraðgerða Írana. Erlent 12.3.2026 06:50
Stórstjarnan flytur til Dúbaí í miðju stríði Þúsundir flýja frá Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en hnefaleikakappinn Anthony Joshua kaus það að flytja þangað þrátt fyrir að stríð geisi í Mið-Austurlöndum. Sport 12.3.2026 06:32
„Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Hartnær sexhundruð manns, þar af um eitthundrað og fimmtíu Íslendingar, eru að störfum fyrir Atlanta-flugfélagið á áhrifasvæði stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Forstjóri Air Atlanta segir félagið fara að öllu með gát og allt sé gert til að tryggja öryggi starfsfólksins. Innlent 11.3.2026 21:12
Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Donald Trump, Bandaríkjaforseti, segir að stríðið gegn Íran gæti verið búið innan skamms. Vísaði hann til þess að þar væri „nánast ekkert eftir til að ráðast á“. Embættismenn í bæði Bandaríkjunum og Ísrael segjast þó vera að undirbúa sig fyrir áframhaldandi árásir í að minnsta kosti tvær vikur. Erlent 11.3.2026 14:48
Utan vallar: Hjákátleg yfirlýsing í skugga stríðs Gianni Infantino, forseti FIFA, segir Donald Trump Bandaríkjaforseta hafa fullvissað sig um að landslið Írans sé velkomið til Bandaríkjanna á HM í sumar og að mótið muni sameina heiminn. Orð hans virka hjákátleg á meðan gestgjafinn ræðst á eitt þátttökuríkjanna og útilokar stuðningsmenn frá því að sjá þar leiki. Fótbolti 11.3.2026 11:30
Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Chris Wright, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, sendi olíumarkaði í enn eina sveifluna en gífurlegt flökt hefur verið á olíuverði undanfarna daga vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran. Með einu tísti frá Wright féll verðið mjög hratt en í einungis nokkrar mínútur. Viðskipti erlent 11.3.2026 10:32
Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Ráðist var á að minnsta kosti þrjú flutningaskip á og við Persaflóa í grennd við Hormuz-sund í nótt. Tvö þeirra urðu fyrir tiltölulega litlum skemmdum en áhöfn þess þriðja þurfti að yfirgefa skipið eftir að eldur kviknaði þar um borð. Svo virðist sem skipin hafi orðið fyrir eldflaugum en það hefur ekki verið staðfest. Erlent 11.3.2026 08:52
Mojtaba Khamenei særður en óhultur Mojtaba Kahmenei, nýr æðsti leiðtogi Íran, er særður en á lífi. Þetta segir Yousef Pezeshkian, sonur forsetans Masoud Pezeshkian. Erlent 11.3.2026 08:28
Hætti við að sækja um hæli og fór frekar heim til Írans Einstaklingur tengdur kvennalandsliði Írans í fótbolta hefur beðið um að fá að snúa aftur til heimalandsins þrátt fyrir að hafa fengið hæli í Ástralíu. Fótbolti 11.3.2026 08:05
Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Bandaríkjastjórn er sögð gæla við þá hugmynd að senda sérsveitir til Íran til að tryggja og sækja birgðir landsins af auðguðu úrani, sem sagðar eru duga til að búa til tíu kjarnaodda. Erlent 11.3.2026 06:51
„Þær eru öruggar hér og þeim ætti að líða vel“ Ástralía hefur veitt sex meðlimum íranska kvennalandsliðsins í knattspyrnu hæli, en þær voru í landinu vegna Asíubikarsins þegar stríð braust út í heimalandi þeirra. Fótbolti 11.3.2026 06:29
Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Bandaríkjaher segist hafa grandað sextán skipum sem leggja tundurdufl í eigu Írana. Herinn birti myndskeið af árásunum. Erlent 10.3.2026 23:14
Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlendir fjölmiðlar hafa birt sönnungargögn sem benda til þess að bandarískt flugskeyti hafi hæft stúlknaskóla í Íran. Að minnsta kosti 168 létust í árásinni, af þeim voru langflestir ungir nemendur við skólann. Bandaríkjaforseti segir Írani ábyrga. Erlent 10.3.2026 22:40
Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir að dagurinn í dag verði sá ákafasti hingað til, hvað varðar árásir Bandaríkjanna á Íran. Ráðamenn í Íran segjast ætla að berjast áfram en ráðgjafar Donalds Trump, Bandaríkjaforseta, eru sagðir hvetja hann til að finna leið til að binda enda á stríðið. Erlent 10.3.2026 13:39
„Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Fjármálaráðherra boðar enn aðgerðir gegn verðbólgu á næstu dögum, líkt og hann gerði fyrir tæpum tveimur vikum. Þá segir hann blasa við öllum að athugasemdir Samtaka atvinnulífsins muni engum árangri skila í baráttunni. Viðskipti innlent 10.3.2026 12:15
Hormuz sund og Ísland Hormuz sund við Persaflóa er merkilegur staður. Í gegnum þetta sund fara um 20% af olíu og fljótandi gasi sem notað er á heimsvísu. Flutningar um sundið hafa heldur betur hikstað undanfarið af augljósum ástæðum. Þessi staða hefur snarhækkað heimsmarkaðsverð á olíu og gasi með tilheyrandi verðbólguþrýstingi. Skoðun 10.3.2026 12:03
Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hringdi í Vladimír Pútín, kollega sinn í Rússlandi, í gær og ræddu þeir saman í klukkutíma. Meðal umræðuefna voru stríðið gegn Íran, Venesúela, staðan á olíumarkaði og stríð Rússa í Úkraínu. Erlent 10.3.2026 08:10
Landsliðskonur Íran strjúka eftir Asíumótið Í það minnsta fimm landsliðskonur Írans í fótbolta hafa strokið eftir þátttöku liðsins á Asíumótinu í Ástralíu. Leikmenn liðsins sættu harðri gagnrýni heimafyrir á meðan mótinu stóð og sagðar svikarar á stríðstímum. Fótbolti 10.3.2026 07:03
Íranir enn vígreifir Byltingavörðurinn í Íran segir að Íranir muni ákveða hvenær átökum lýkur, ekki Bandaríkin eða Ísrael. Þá muni stjórnvöld þar í landi ekki leyfa „einum dropa“ af olíu að komast frá Mið-Austurlöndum ef árásir halda áfram. Erlent 10.3.2026 06:42
„Höfum ekki unnið nóg“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að átökin við Íran verði yfirstaðin „innan tíðar“ en að Bandaríkin eigi enn eftir að hrósa fullnaðarsigri. Hann segir Bandaríkjaher hafa tekist að eyðileggja allt að níutíu prósent af hernaðarinnviðum í landinu undanfarna tíu daga. Erlent 10.3.2026 00:01
Vaxandi ótti við langvarandi átök Vaxandi ótti við langvarandi átök í Mið-Austurlöndum er meginástæða þess að heimsmarkaðsverð á olíu hefur rokið upp. Verðið á olíutunnunni hækkaði um tuttugu prósent á einum degi og segir hagfræðingur skell eins og þennan hafa sérlega mikil áhrif á litla þjóð. Erlent 9.3.2026 19:23
Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Stjórnvöld í Tyrklandi, Katar, Barein, Sádi Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum segjast hafa skotið niður íranskar eldflaugar í landhelgi þeirra í dag. Á sama tíma hafa Ísraelar og Bandaríkjamenn haldið linnulausum árásum á Íran áfram. Erlent 9.3.2026 18:55
Enginn sem hefur stjórn á því hvar olíuverð endar Hráolíuverð hefur ekki verið hærra í fjögur ár en við opnun markaða í morgun kostaði tunnan ríflega hundrað bandaríkjadali. Frekari hækkanir gætu orðið ef stríðið dregst á langinn. Innlent 9.3.2026 12:14
Eldrauð Kauphöll Gengi hlutabréfa í flestum félögum Kauphallarinnar hefur lækkað frá því að markaðir lokuðu á föstudag. Sjö félög standa í stað en ekkert félag hefur hækkað. Mest hafa hlutabréf í Amaroq og Skel fjárfestingafélagi lækkað, um 3,78 prósent og 3,59 prósent. Viðskipti innlent 9.3.2026 10:40
Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Stríð geisar í Mið-Austurlöndum, sem ógnar lífi og limum íbúa á svæðinu, orkubúskap heimsins og pólitískum- og efnahagslegum stöðugleika almennt. Þá er fátt eitt talið til. Tilefnislaust, segja sumir. Tímabært, segja aðrir. Eitt þykir víst; lagt var í styrjöldina án djúprar greiningar á mögulegum afleiðingum, sem gætu orðið gríðarlega umfangsmiklar og náð langt út fyrir Íran og nágrannaríkin. Enginn virðist vita hvert endamarkið er né hvenær því verður mögulega náð. Erlent 9.3.2026 07:05
Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stríðið við Íran aðeins munu enda með sameiginlegri ákvörðun hans og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, um að láta af árásum á landið. Erlent 9.3.2026 06:42
Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Mojtaba Khamenei er nýr æðstiklerkur Íran. Hann tekur við af föður sínum, Ayatollah Ali Khamenei, sem lést í loftárásum Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna þann 28. febrúar. Erlent 8.3.2026 21:27