Andlát Hayden Panettiere

Fréttamynd

Barnastjörnurnar sem Hollywood brást

Leikkonan Hayden Panettiere lést á sunnudaginn, aðeins 36 ára gömul, en hún er ein af mörgum barnastjörnum sem sködduðust við að alast upp í Hollywood og báru þess aldrei bætur. Börn sem frá unga aldri eru berskjölduð fyrir gráðugum og stjórnsömum foreldrum, bransafólki sem misnotar stöðu sína, stöðugu áreiti fjölmiðla og auðveldu aðgengi að vímuefnum.

Lífið
Fréttamynd

Kærastinn var á staðnum

Kærasti Hayden Panettiere og bróðir hans voru í íbúðinni þegar hún lét lífið um helgina. Þeir tóku á móti fyrstu lögregluþjónunum sem mættu á staðinn, en um er að ræða íbúð í eigu fjölskyldu þeirra í Greenville í Suður-Karólínu. Bræðurnir fylgdust með endurlífgunartilraunum sjúkraflutningamanna.

Erlent
Fréttamynd

Lofar að minnast Panettiere á­vallt af virðingu

Vladimir Klitschko, barnsfaðir leikkonunnar Hayden Panettiere, segir fjölskylduna í mikilli sorg. Panettiere hafi yfirgefið þessa jörð allt of snemma og að þó svo að þau hafi ekki verið saman hafi hún verið mikilvægur hluti lífs hans og móðir dóttur þeirra, Kayu. Hann biður um frið til að glíma við sorgina og andlát hennar. 

Lífið
Fréttamynd

Leik­konan var úr­skurðuð látin á vett­vangi

Lögreglufulltrúar í Greenville í Suður-Karólínufylki í Bandaríkjunum voru sendir að fjölbýlishúsi þar sem leikkonan Hayden Panettiere dvaldi í gær eftir að þeim barst tilkynning um meðvitundarlausa konu. Ekki liggur fyrir hvað dró hina 36 ára gömlu Panettiere til dauða en það virðist á öllu sem andlátið hafi ekki borið að með saknæmum hætti. Hún var úrskurðuð látin á vettvangi.

Lífið
Fréttamynd

Bestu hlut­verk Hayden Panettiere

Leikkonan Hayden Panettiere er látin, 36 ára að aldri, en hún var sannkölluð barnastjarna. Panettiere byrjaði að leika í auglýsingum aðeins ellefu mánaða gömul, sjónvarpsþáttum fjögurra ára og kvikmyndum níu ára. Leiklistarferill hennar spannaði því rúm þrjátíu ár og nánast alla hennar ævi. Vísir hefur tekið saman tíu bestu hlutverk hennar.

Bíó og sjónvarp