Bíó og sjónvarp

Fréttamynd

„Ég er enn að venjast and­litinu á mér“

Hollywood-leikarinn John Goodman segist enn vera að venjast andlitinu á sér eftir að hafa lést um hátt níutíu kíló á síðustu árum. Hann glímdi lengi við áfengissýki og varð edrú árið 2007 en viðhélt óheilbrigðum lífsstíl með því að borða óhóflega. Hann hugsi lítið um almenningsálit sem sé þó ákveðinn partur af bransanum.

Bíó og sjónvarp

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Iceguys beint á toppinn og ís­lenska bíóárið mallar

Gamanmyndin Iceguys: The Movie var frumsýnd í síðustu viku og fór beint á toppinn á aðsóknarlista íslenskra bíóhúsa. Tæplega 6.600 gestir sáu kvikmyndina um helgina sem var sýnd í tíu bíósölum. Um 35 þúsund manns hafa séð íslenskar kvikmyndir í bíó í ár og fimm íslenskar kvikmyndir farið yfir fjögur þúsund gesta-múrinn.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Skaut sig ó­vart í fótinn

Hollywood-leikstjórinn Michael Mann lenti í því óhappi að skjóta sig í fótinn á skotsvæði í Los Angeles á laugardag. Leikstjórinn var fluttur á sjúkrahús þar sem hlúð var að sárum hans sem reyndust vera minniháttar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum

„Ég var þekktur sem strákurinn sem elskaði Glee og eldri strákarnir voru oft á göngunum að öskra „Binni Glee“ á mig. Ég veit ekki hvort það hafi átt að vera móðgun en ég tók því ótrúlega vel. Það er þeim að þakka að ég sé Binni Glee,“ segir raunveruleikastjarnan Brynjar Steinn, sem er líklega þekktasti Glee-aðdáandi landsins og er fullur tilhlökkunar fyrir endurkomu þáttanna.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Balti og Sunn­eva brugðu sér af bæ

Fjölmenni var á frumsýningu rúmensk-norsku kvikmyndarinnar Fjarðar í Bíó Paradís á fimmtudagskvöldið. Kvikmyndagerðarfólk, blaðamenn og menningarsprautur horfðu þar á þetta æsispennandi fjölskyldudrama sem vann Gullpálmann á Cannes fyrr í ár.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar

Fámennur hópur leikara mun spreyta sig í prufutökum fyrir hlutverk breska njósnarans 007 á næstu dögum. Reiknað er með því að í það minnsta þrír leikarar taki þátt í tökunum í von um að taka við af hinum breska Daniel Craig sem lék njósnarann James Bond frá árinu 2006 til ársins 2021.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn

Kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri seríu gamanþáttanna White Lotus, hefur bæst í leikhóp kvikmyndarinnar Hafið er svart. Hann mun þar leika á móti Baltasar Kormáki og Ólafi Darra í spennumynd um martraðarkennda sjóferð.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar

Framkvæmdastjóri Smárabíós segist varla hafa undan við að svara fyrirspurnum um það hvenær heimildarmyndin You can See Everything mætir í kvikmyndahúsin. Hann segir allar líkur á því að myndin verði sýnd hér á landi, von sé á svörum í vikunni vegna réttindamála en framkvæmdastjórinn segist ekki muna eftir annarri eins eftirvæntingu fyrir einni mynd. Myndin muni líklega fara í kvikmyndahús í lok nóvember á Íslandi.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra

Kanadíski leikstjórinn Kari Skogland mun leikstýra spennuþáttaseríunni Stóra bróðir (Vigilant á ensku) sem byggir á samnefndri glæpasögu eftir Skúla Sigurðsson og fjallar um blaðamann sem tekst á við dularfulla tálbeituglæpi. Serían hefur verið í þróun í nokkur ár, Ólafur Darri Ólafsson leiðir handritaskrifin og hefjast tökur hérlendis í lok mánaðar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Glee snýr aftur

Tónlistardramaþættirnir Glee snúa aftur á skjáinn og verða endurræstir með nýrri seríu á streymisveitunum Disney+ og Hulu. Litlar upplýsingar liggja fyrir um seríuna sem mun þó innihalda bæði ný andlit og einhverja leikara úr upprunalegu seríunni.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Cage og Banderas  í næstu seríu True Detective

Tvenn ný þekkt nöfn bætast nú við langan lista þeirra sem farið hafa með aðalhlutverk í bandarísku spennuþáttunum True Detective en þeir Nicolas Cage og Antonio Banderas eru staðfestir að leika í næstu þáttaröð. Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda og var síðasta þáttaröð True Detective: Night Country tekin að mestu leyti upp á Dalvík.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Ís­landi

Kvikmyndin The Social Reckoning, sem fjallar um stóra Facebook-lekann árið 2021 sem afhjúpaði varhugaverða stjórnunarhætti fyrirtækisins, hefur fengið dræmar viðtökur hjá bæði gagnrýnendum og áhorfendum. Viðtökurnar hafa verið svo dræmar að hætt var við sýningu á kvikmyndinni á Íslandi, um þremur vikum fyrir frumsýningu.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Hleypur í skarðið vegna per­sónu­legra mála Reeves

Leikstjórinn Steven Soderbergh mun klára kvikmyndina The Batman: Part II vegna fjölskyldumála leikstjórans Matt Reeves. Fyrri myndin kom út vorið 2022 og átti framhaldið að koma út þremur árum síðar en útgáfunni hefur verið seinkað í þrígang til ársbyrjunar 2028. Ekki hefur komið fram hvers vegna Reeves steig til hliðar en um alvarlegt mál virðist vera að ræða.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Stelpurnar snúa aftur

Gamanþættirnir Girls eftir Lenu Dunham munu snúa aftur á HBO og hefjast tökur á næsta ári, tíu árum eftir að sjötta serían kom út. Nýja þáttaröðin verður fimm þættir og snúa aðalstelpurnar fjórar allar aftur þó óvíst sé með Hollywood-stjörnuna Adam Driver.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Horfa fram á sögu­legt tap Diggers

Stórmyndin Digger stefnir í að skrá sig á spjöld sögunnar vegna dræmrar aðsóknar. Heildartap myndarinnar gæti numið allt að 29 milljörðum króna þegar kostnaður markaðsherferðar og hlutur bíóhúsa af tekjum myndarinnar er tekinn inn í jöfnuna. Fari svo gæti hún skipað sér í flokk með stærstu floppum kvikmyndasögunnar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Kyn­líf mið­aldra kvenna í brenni­depli

Fleiri Pabbahelgar er ný íslensk gamandramaþáttaröð í sex hlutum sem verður frumsýnd á RÚV sunnudaginn 18. október. Þáttaröðin er framhald af Pabbahelgum og fjallar um Karen, einstæða þriggja barna móður og hjónabandsráðgjafa, sem þarf að takast á við unglingsbörn, fyrrverandi eiginmann á sama tíma og íslenskan stefnumótaheim.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Elma seld til út­landa

Íslenska framleiðslufyrirtækið Glassriver hefur samið við alþjóðlega dreifingaraðilann Mediawan Rights um erlenda dreifingu íslensku glæpaþáttaraðarinnar Elmu. Þættirnir byggja á Marrinu í stiganum eftir Evu Björgu Ægisdóttur og verða frumsýndir hérlendis á Sjónvarpi Símans 15. október næstkomandi.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu

Michael Douglas hefur gengist við enn einu framhjáhaldi í markaðsherferðinni fyrir nýja ævisögu sína. Nýverið greindi leikarinn frá því að hann hefði haldið framhjá fyrri eiginkonu sinni, Diöndru Luker, með leikkonunni Kathleen Turner. Í ævisögunni kemur fram að Douglas hafi líka haldið framhjá Luker með leikkonunni Jean Tripplehorn við tökur á kynferðislega spennutryllinum Basic Instinct.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Hrútar orðnir að kóreskum kálfum

Íslenska kvikmyndin Hrútar eftir Grím Hákonarson hefur verið endurgerð í annað sinn. Ástralir endurgerðu hana fyrst árið 2020 með stórstjörnunni Sam Neill og í vikunni verður suður-kóresku endurgerðina Cattle Run frumsýnd með kálfum í stað hrúta.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut

Skoski stórleikarinn Alan Cumming verður meðal leikara í væntanlegri ofurhetjumynd Avengers: Doomsday. Frásagnir hins 61 árs gamla leikara af tökustað hafa hinsvegar vakið athygli þar sem hann sagðist skilja hvorki upp né niður í söguþræði myndarinnar. Þá lék hann með áhættuleikara Florence Pugh en ekki leikkonunni sjálfri.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Bransafólk í blússandi fíling

Kvikmyndahátíðin RIFF opnaði með pomp og prakt um helgina og fjöldi fólks kom saman í Háskólabíói við hátíðlega athöfn. Ráðherrar, bransafólk, leikarar og plötusnúðar skemmtu sér fram eftir kvöldi.

Bíó og sjónvarp