Lífið samstarf

Fréttamynd

„Ég fæddist nefni­lega á enda­lausu breytingar­skeiði“

Þegar dagarnir styttast og veturinn gengur í garð vaknar hjá mörgum löngunin til að gera heimilið hlýrra og notalegra. Soffía Dögg, sem heldur úti Skreytum hús, þekkir þá tilfinningu vel. Hún hefur um árabil veitt Íslendingum innblástur um liti, innréttingar og heimilishald í samstarfi við Slippfélagið.

Lífið samstarf

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Stóra stærðfræðikeppnin hafin í grunn­skólum landsins

Rúmlega 12.000 nemendur í um 130 grunnskólum víðs vegar um landið taka þátt í Stóru stærðfræðikeppninni sem hófst í gær. Næstu fimm vikur keppast nemendur um að leysa stærðfræðiverkefni, safna verðlaunum og sigra keppnina. Markmið keppninnar er bæði kveikja áhuga nemenda og byggja sterkan grunn í á stærðfræði.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Minna plast og meiri tenging við upp­runann hjá Nándinni í Firði

Íslenskir handverksostar, sveitamjólk á glerflöskum, glútenfrítt bakkelsi og sápur til áfyllingar. Matarbúðin Nándin í Firði sameinar fjölbreytt vöruúrval og skýra hugsjón um minni umbúðanotkun, endurnýtingu og náið samstarf við smáframleiðendur. Verslunin er meðal nýrra viðbóta í verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Kaffi Flauel er nýtt kaffi­hús í Ár­bæ

Ilmandi kaffi, freistandi tertur og léttar kvöldveitingar eru meðal þess sem tekur á móti gestum á Kaffi Flauel í Selási. Karen Olga Ársælsdóttir opnaði kaffihúsið í ágúst eftir að hafa lengi saknað þess að geta rölt á notalegt hverfiskaffihús. Nú hittast þar nágrannar yfir kaffibolla, vinir setjast niður með vínglas og börnin úr hverfinu líta inn eftir snúð.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Prótein á að vera í for­gangi

„Þegar fólk heyrir orðið prótein hugsar það ósjálfrátt um fólk sem er að styrkja sig eða byggja upp vöðva, en hlutverk próteins er svo miklu, miklu meira en bara það,“ segir Teitur Arason, íþróttafræðingur og einkaþjálfari hjá World Class.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu?

Þú stendur fyrir framan spegilinn, nýbúin að eyða góðum tíma í að blása hárið. Það er fullt af lífi með dásamlegri lyftingu, fyllingu og fallegri hreyfingu eða kannski ertu búin að móta þessar fullkomnu, mjúku krullur sem þú varst að vonast eftir. Þú ert hæstánægð með útkomuna. Klukkutíma síðar er lyftingin horfin, hárið orðið flatt og líflaust og krullurnar nánast horfnar. Öll vinnan fyrir lítið. Fríða Rut Heimisdóttir, hárgreiðslumeistari og eigandi Regalo gefur hér góð ráð.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus

Danól og Bónus bjóða upp á hrekkjavökufjör næstu tvo föstudaga og hvetja alla til að mæta í búningum í Bónus á Smáratorgi og í Miðhrauni. Haribo-bangsinn verður á staðnum og sérstakir hrekkjavökukastalar úr Haribo-nammi. Andlitsmálning í boði og skemmtilegir glaðningar.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Nýja Garmin Fenix 9 sam­einar allt það besta í einu úri

Nýjasta viðbótin í úrval Garmin, Fenix 9, er komin í verslanir hér á landi og hefur þegar fengið góðar viðtökur. Með mun bjartari skjá, auknum vinnsluhraða, endurbættri hönnun og fjölbreyttum eiginleikum fyrir íþróttir, útivist og heilsurækt er markmiðið að færa notendum enn öflugra úr.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Ár­lega greinast 2.146 ein­staklingar: Svona nýtist þinn stuðningur

Meginmarkmið Krabbameinsfélagsins er að færri fái krabbamein, fleiri læknist eða lifi lengi, og að þeim líði betur, með og eftir krabbamein. Að fá krabbamein er ein stærsta áskorunin í lífi fólks. Árlega greinast nú að meðaltali um 2.146 einstaklingar með krabbamein og við getum reiknað með því að 1 af hverjum 3 Íslendingum fái krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smá­at­riði

Í nýju og ört vaxandi hverfi í Hafnarfirði hafa risið sex glæsileg fjölbýlishús við Áshamar 12–26. Þar býður byggingafélagið Eykt upp á 154 nútímalegar og Svansvottaðar íbúðir sem sameina vandaða hönnun, góð rými og nálægð við náttúru og fjölbreytta þjónustu. Íbúðirnar eru allar fullbúnar og tilbúnar til afhendingar og því geta kaupendur flutt beint inn í nýtt heimili án þess að bíða eftir framkvæmdalokum.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Tryggðu þér nýtt raf­hjól fyrir 2027 á hag­stæðari kjörum

Rafhjól njóta sífellt meiri vinsælda enda sameina þau hreyfingu, útiveru, sparnað og þægilegan ferðamáta. Hvort sem ætlunin er að hjóla í vinnuna, skjótast í búðina, fara í fjallaferðir eða skutla börnunum í leikskólann er hægt að finna rafhjól við hæfi. Hjá Erninum hjólreiðaverslun er úrvalið fjölbreytt og nú geta viðskiptavinir einnig forpantað rafhjól úr 2027-línunni á sérstaklega hagstæðum kjörum.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Rafha fagnar 90 árum með pönnu­kökum, af­mælis­til­boðum og fjöri

Það verður sannkölluð afmælisstemning hjá Rafha við Suðurlandsbraut í Reykjavík um helgina þegar fyrirtækið fagnar 90 ára afmæli sínu. Boðið verður upp á nýbakaðar pönnukökur, vegleg afmælistilboð, gjafapoka og skemmtilegan lukkuleik. Þótt níu áratugir séu liðnir frá stofnun fyrirtækisins er Rafha enn í fullu fjöri og hefur sannarlega ýmsu að fagna.

Lífið samstarf