Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Nýjasta kvikmyndin um Köngulóarmannin, Spider-Man: Brand New Day, heldur áfram sigurgöngu sinni, hefur halað inn 1,6 milljarði dala og stefnir hraðbyri á að verða ein af aðsóknarmestu myndum sögunnar. Ódysseifur Christophers Nolan er sömuleiðis enn á siglingu, fór um helgina yfir milljarð dala-múrinn og er orðin aðsóknarmesta mynd leikstjórans frá upphafi. Bíó og sjónvarp 10.8.2026 14:46
Ben Jones er látinn Ben Jones, leikari og fyrrverandi þingmaður Demókrata, er látinn, 84 ára að aldri. Jones var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Cooter Davenport í sjónvarpsþáttunum Dukes of Hazzard en var einnig þingmaður í fjögur ár í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Bíó og sjónvarp 10.8.2026 12:11
Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Marciano Brunetti, raunveruleikastjarna úr þáttunum Vanderpump Villa, hefur nú varanlega merkt sig Jessi Draper, úr raunveruleikaþáttunum Secret Lives of Mormon Wives. Draper og Brunetti hafa verið að hittast síðustu vikur, allt frá því að sú fyrrnefnda tilkynnti um skilnað. Það styttist í næstu seríu mormónakvennanna. Bíó og sjónvarp 7.8.2026 20:02
Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Johnny Depp mun leika nánösina Ebeneser Skrögg í Ebenezeri, nýrri aðlögun á Christmas Carol eftir Charles Dickens, sem verður frumsýnd næstkomandi nóvember. Depp hefur verið fjarverandi Hollywood síðan Amber Heard, fyrrverandi eiginkona hans, sakaði hann um heimilisofbeldi árið 2018 og þau tókust í kjölfarið á fyrir dómstólum. Bíó og sjónvarp 24.7.2026 12:14
Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Auðkýfingurinn Elon Musk hefur ítrekað gagnrýnt leikstjórann Christopher Nolan síðustu mánuði vegna ráðningar hans á hörundsdökkum leikurum og trans manni í Ódysseifskviðu. Nú hefur Musk lýst því yfir að gervigreindararlíkan hans, Grok Imagine, muni ljúka við „sögulega nákvæmari“ aðlögun á Ódysseifskviðu fyrir árslok. Bíó og sjónvarp 23.7.2026 13:13
Ali G snýr aftur Gervitöffarinn Ali G sem varð frægur um aldamótin snýr aftur í framhaldsmyndinni Ali G: Who Iz I? í oktber. Fyrri myndin, Ali G In Da House, kom út 2002 og var fyrsta stóra kvikmyndahlutverk Sacha Barons Cohen. Bíó og sjónvarp 23.7.2026 10:13
Rýnt í stikluna: Smekkfull stikla af ofurhetjum Disney og Marvel birtu í gær fyrstu stikluna fyrir ofurhetjumyndina Avengers Doomsday. Stiklan er rúmlega tveggja mínútna löng og er smekkfull af ofurhetjum sem við höfum séð í fjölmörgum kvikmyndum Marvel undanfarinna ára, auk þess sem hún inniheldur fjölmargar tilvísanir í fyrri kvikmyndir og teiknimyndasögur Marvel. Bíó og sjónvarp 21.7.2026 10:27
Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Írska leikkonan Brenda Fricker er látin, 81 árs að aldri. Fricker hlaut Óskarsverðlaun árið 1989 fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni My Left Foot. Bíó og sjónvarp 17.7.2026 13:42
Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Leikarinn Ryan Hurst átti að fara með aðalhlutverk Kratosar í sjónvarpsþáttunum God of War sem byggja á samnefndri tölvuleikjaseríu en slasaðist alvarlega á tökustað og þurfti að leggjast undir skurðhnífinn. Af þeim sökum verður hann frá í marga mánuði og ákváðu framleiðendur að endurráða í hlutverkið. Bíó og sjónvarp 17.7.2026 10:30
Brjálaðar boltamömmur berjast Boltamömmur eru nýir gamanþættir sem segja frá nýfráskilinni konu sem hellir sér af lífi og sál í heim yngri flokka fótbolta og lendir á skrautlegu sviði foreldrasamskipta, keppnisskaps og tilfinninga. Vísir frumsýnir í dag stiklu fyrir þættina sem koma á Sjónvarp Símans í september. Bíó og sjónvarp 16.7.2026 13:26
Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Geislasverðið sem Logi Geimgengill sveiflaði í einu frægasta einvígi kvikmyndasögunnar gegn Svarthöfða í Stjörnustríði: Gagnárás keisaradæmisins seldist á uppboði fyrir 3,75 milljónir Bandaríkjadala, eða rétt rúmar 470 milljónir íslenskra króna. Bíó og sjónvarp 16.7.2026 10:26
Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Hollywood-stjarnan Tom Cruise ætlar að bjarga jörðinni enn einu sinni á stóra skjánum, núna sem aldraði milljarðamæringurinn Digger Rockwell í hamfaramyndinni Digger í leikstjórn hins mexíkóska Alejandro González Iñárritu. Fyrsta stiklan fyrir myndina er nýútkomin. Bíó og sjónvarp 14.7.2026 11:26
Bestu hlutverk Sams Neill: Andkristur, fornleifafræðingur og menn á barmi sturlunar Nýsjálenski leikarinn Sam Neill er látinn, 78 ára að aldri, eftir að hafa nýverið jafnað sig af eitilfrumukrabbameini. Leiklistarferill Neill spannaði rúma hálfa öld, ógrynni kvikmynda og var hann talinn einn fjölhæfasti leikari sinnar kynslóðar. Vísir hefur tekið saman tíu bestu hlutverk leikarans. Bíó og sjónvarp 13.7.2026 16:02
Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Leikarinn Josh Grisetti, sem er best þekktur fyrir leik sinn í gamandramaþáttunum The Marvelous Mrs. Maisel, er látinn, aðeins 44 ára að aldri. Bíó og sjónvarp 13.7.2026 10:03
Joanna Pettet er látin Bresk-kanadíska leikkonan Joanna Pettet, sem er þekktust fyrir leik sinn í Bond-paródíunni Casino Royale frá 1967, er látin, 83 ára að aldri. Pettet lést 31 ári, upp á dag, eftir að sonur hennar, Damien Zachary Cord, lést úr ofskömmtun heróíns. Bíó og sjónvarp 10.7.2026 17:01
Pulp Fiction-stjarna heiðursgestur á RIFF Portúgalska leikkonan Maria de Madeiros, sem lék Fabienne í Pulp Fiction, verður heiðursgestur á kvikmyndahátíðinni RIFF. Á hátíðinni verður haldin sérstök stemmingssýning á Pulp Fiction í samstarfi við Hamborgarabúllu Tómasar þar sem gestum gefst tækifæri á að smakka hamborgarana sem koma við sögu í myndinni. Bíó og sjónvarp 10.7.2026 15:03
Britney á stóra skjáinn Ævisöguleg kvikmynd um poppstjörnuna Britney Spears færist nær því að verða að veruleika. Aðlögunin á sjálfsævisögu Spears að stóra skjánum hefur verið í lausu lofti síðan 2024 en nú herma fregnir að búið sé að ráða handritshöfundinn Elizabeth Meriwether í verkið. Hún bætist í framleiðsluhópinn með leikstjóranum Jon M. Chu og framleiðandanum Marc Platt. Bíó og sjónvarp 7.7.2026 17:04
Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Fyrsta kvikmynd „gervigreindarleikkonunnar“ Tilly Norwood, sem uppskar gríðarlega reiði í kvikmyndabransanum þegar hún kom fyrst fram á sjónarsviðið í fyrra, er farin í framleiðslu. Myndin heitir Misaligned og er lýst sem gamandrama um gervigreindarveru. Bíó og sjónvarp 6.7.2026 16:30
Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Í nýjustu kvikmyndinni um Skósveinana svokölluðu kemur fram að þeir hafi þjónað mörgum af helstu skúrkum mannkynssögunnar. Leikstjóri teiknimyndanna segir aftur á móti að þeir hafi ekki þjónað Adolf Hitler Þýskalandskanslara í seinni heimsstyrjöldinni. Bíó og sjónvarp 4.7.2026 22:06
Danny Glover með Alzheimer Bandaríski leikarinn Danny Glover greindi frá því í dag að hann væri kominn með Alzheimer-sjúkdóm og hefði glímt við hann síðustu þrjú ár. Hann segist byrjaður að finna fyrir áhrifum sjúkdómsins á talanda sinn, hreyfingu og minningar. Bíó og sjónvarp 1.7.2026 16:10
Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Síminn hefur til skoðunar að framleiða íslenska útgáfu af raunveruleikaþáttunum Love Island. Til skoðunar er að taka upp þættina á Möltu. Samtal er sagt vera í gangi á milli Símans, Sagafilm og bresku sjónvarpsstöðvarinnar ITV vegna þáttanna. Bíó og sjónvarp 1.7.2026 14:29
Michael Byrne er látinn Breski leikarinn Michael Byrne, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Braveheart, Indiana Jones and the Last Crusade og Tomorrow Never Dies, er látinn, 82 ára að aldri. Bíó og sjónvarp 1.7.2026 10:13
Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Fyrsta stiklan í fullri lengd úr kvikmyndinni Werwulf, nýjustu hryllingsmynd bandaríska leikstjórans Robert Eggers en leikstjórinn skrifaði handritið í samstarfi við íslenska rithöfundin Sjón. Bíó og sjónvarp 30.6.2026 12:56
James Burrows látinn Bandaríski leikstjórinn James Burrows er látinn 85 ára að aldri en hann leikstýrði meðal annars þáttum af Friends, Big Bang Theory, Staupasteini (Cheers), Frasier, Will & Grace og Taxi. Áhrif hans á grín- og gamanþætti voru gríðarleg. Bíó og sjónvarp 19.6.2026 21:17