Golf
171 172 173 174 175 176 177 178 179 … 180 ›
Alfreð, Ottó og Sigmundur deila efsta sæti Alfreð Brynjar Kristinsson úr GR og þeir Ottó Sigurðsson og Sigmundur Einar Másson úr GKG deila efsta sæti eftir fyrsta hring af þremur á 2. stigamótinu á Kaupþings mótaröðinni sem fram fer á Korpúlfsstaðavelli. Þeir léku allir á 74 höggum, eða 2 höggum yfir pari. Mjög hvasst var í dag og þá gekk á með skúrum fyrir hádegi. Golf 2.6.2007 18:29
Birgir Leifur úr leik Birgir Leifur komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna velska Meistaramótinu í dag. Hann náði sér ekki strik og endaði á átta höggum yfir pari. Hann lauk hringnum á 73 höggum. Golf 1.6.2007 19:12
Birgir Leifur á einu höggi yfir pari Birgir Leifur hefur lokið 9 holum af 18 á öðrum keppnisdegi á Opna velska Meistaramótinu í dag. Hann fór þessar 9 holur á einu höggi yfir pari og því samtals á 5 höggum yfir pari. Golf 1.6.2007 15:57
Birgir Leifur ósáttur við fyrsta hringinn Birgir Leifur Hafþórsson var ekki sáttur við spilamennsku sína á fyrsta hringnum á opna velska mótinu í dag þar sem hann lauk leik á 73 höggum eða fjórum yfir pari. Í samtali við Kylfing.is sagði Birgir að hann hefði verið að missa of mörg stutt pútt og það hefði kostað sig dýrt. Golf 31.5.2007 18:08
Birgir Leifur á fjórum höggum yfir pari Birgir Leifur lauk fyrsta degi sínum á opna welska meistaramótinu á fjórum höggum yfir pari en mótið fer fram á The Celtic Manor vellinum. Birgir Leifur fékk 5 skolla og einn fugl. Golf 31.5.2007 15:33
Anders Hansen sigraði á BMW mótinu Englendingurinn Justin Rose og Daninn Anders Hansen urðu efstir og jafnir á BMW PGA meistaramótinu sem fram fór um helgina á Wentworth-vellinum í Surrey á Englandi. Þeir Rose og Hansen léku hringina fjóra á 8 höggum undir pari, einu höggi færra en Vijay Singh og Richard Sterne sem deildu 3.-4. sæti. Golf 27.5.2007 18:49
Stefán Már og Sigmundur í hópi efstu manna í Austurríki Stefán Már Stefánsson, kylfingur úr GR, lék frábærlega á Opna austurríska áhugamannamótinu í golfi í dag en hann lék hringinn á 68 höggum, fjórum höggum undir pari. Eftir því sem fram kemur á vefnum kylfingur.is er Stefán á einu höggi undir pari líkt og Sigmundur Einar Másson úr GKG sem á titil að verja á mótinu. Golf 25.5.2007 13:21
Sigurpáll lék vel í Lundi Sigurpáll Geir Sveinsson, kyflingur úr Kili, spilaði lokahringinn á Gambro-mótinu í Lundi í Svíþjóð á 67 höggum, eða þremur höggum undir pari. Lék hann hringina þrjá á 210 höggum eða pari og hafnaði í 12. sæti og fékk 73 þúsund krónur í verðlaunafé. Golf 18.5.2007 15:40
Kaupþingsmótaröðin að hefjast Golfssamband Íslands hefur skrifað undir samning við Kaupþing banka vegna íslensku mótaraðarinnar í golfi og mun Íslandsmótið ganga undir nafninu, Kaupþingsmótaröðin. Fyrsta mót sumarsins fer fram á Garðavelli við Akranes og hefst á laugardaginn en 123 keppendur eru skráðir til leiks. Golf 16.5.2007 19:13
Phil Mickelson sigraði á Players Phil Mickelson fór með sigur af hólmi á Players meistaramótinu. Eftir glæsilegan lokahring endaði hann á 11 undir pari. Hlaut hann að launum 103 milljónir íslenskra króna. Golf 14.5.2007 14:20
Birgir Leifur 10 höggum á eftir efsta manni í Andalúcíu Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék þriðja hringinn á Opna Andalúsíumótinu í morgun á tveimur höggum undir pari. Hann er núna 10 höggum á eftir efsta manni, Englendingnum Lee Westwood. Golf 12.5.2007 15:20
Birgir komst í gegnum niðurskurðinn Birgir Leifur Hafþórsson heldur áfram að gera það gott á Evrópumótaröðinni en í gær komst hann í gegnum niðurskurð á móti sem fram fer á Spáni. Birgir Leifur lék á fjórum höggum undir pari í gær og er samtals á þrem höggum undir pari. Það setur hann í 30. sæti mótsins ásamt nokkrum öðrum kylfingum. Golf 12.5.2007 09:00
Tiger langt frá sínu besta á Players Besti kylfingur heims, Tiger Woods, var langt frá sínu besta á fyrsta hringnum á Players-meistaramótinu í golfi. Woods lék á 3 höggum yfir pari og er í 58.-74. sæti. Bein útsending verður á Sýn annað kvöld og á sunnudagskvöld. Golf 11.5.2007 11:26
Birgir Leifur nokkuð öruggur áfram í Andalúsíu Birgir Leifur Hafþórsson er á þremur höggum undir pari eftir annan keppnisdag á Andalúsíumótinu í golfi á Spáni í dag. Hann er sem stendur í 22. sæti og er öruggur áfram í gegnum niðurskurðinn. Golf 11.5.2007 11:14
Birgir Leifur á höggi yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson lék fyrsta hringinn á Opna Andalúsíumótinu á Spáni í dag á 73 höggum, eða einu höggi yfir pari. Hann lék fyrri níu á 37 höggum og seinni níu á 36 höggum. Hann fékk 3 fugla á hringnum, 12 pör, 2 skolla og einn skramba, sem kom á 7. braut. Hann er sem stendur í 81. - 94. sæti, en margir keppendur eiga eftir að ljúka leik í dag. Golf 10.5.2007 16:09
57. sigur Tiger Woods á PGA Það eru ekki mörg mót á PGA-mótaröðinni sem Tiger Woods hefur ekki unnið. Þeim fækkaði enn í kvöld þegar hann sigraði í fyrsta sinn á Wachovia Meistaramótinu í Norður-Karólínu. Þetta var jafnframt 57. sigur hans á PGA-mótaröðinni. Þetta var sjötta mótið sem hann tekur þátt í á þessu ári og hefur hann komist í gegnum niðurskurðinn í þeim öllum og sigrað í þremur. Golf 7.5.2007 02:26
Birgir Leifur upp um 52 sæti á peningalistanum Spánverjinn Gonzalo Fernandez-Castano sigraði á Opna ítalska mótinu í dag eftir bráðabana við Markus Brier frá Austurríki. Þeir léku báðir þrjá hringi á 16 höggum undir pari. Þeir léku 18. brautina tvisvar og í síðara skiptið hafði Castano betur og fékk um 25 milljónir króna í verðlaunafé fyrir fyrsta sætið. Brier fór heim með 16 milljónir. Golf 7.5.2007 01:15
Besti árangur Birgis Leifs á ferlinum Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék lokahringinn á Opna ítalska mótinu í Mílanó í dag á 69 höggum, eða 3 höggum undir pari. Hann lék hringina þrjá á samtals 13 höggum undir pari og er í 11. sæti og er ljóst að þetta er besti árangur hans á ferlinum og um leið besti árangur Íslendings á alþjóðlegu golfmóti. Hann fékk skolla á lokaholunni, sem kostaði hann nokkur þúsund evrur. Golf 6.5.2007 16:17
Birgir Leifur í beinni á Sýn á morgun Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beina útsendingu frá lokadegi opna ítalska mótsins í golfi upp úr klukkan 12 á morgun og þar gefst áhorfendum tækifæri til að fylgjast með Birgi Leifi Hafþórssyni keppa á Evrópumótaröðinni. Birgir Leifur hefur verið í miklu stuði á mótinu og er sem stendur í 7-12 sæti. Golf 5.5.2007 20:21
Birgir Leifur: Spennustigið verður hátt Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, er í 7.-12. sæti fyrir lokahringinn á Opna ítalska mótinu sem fram fer á morgun. Hann verður væntanlega í þriðja síðasta holli og fer þá út um klukkan níu að íslenskum tíma. Hann lék á 67 höggum, eða 5 höggum undir pari, í dag eins og fyrsta hringinn á fimmtudag. Birgir er því samtals á 10 höggum undir pari og er aðeins fjórum höggum frá toppsætinu. Golf 5.5.2007 16:49
Kláraði bara fimm holur Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur í GKG, náði bara að klára fimm holur á öðrum hring á opna Ítalíumótinu í golfi í Mílanó í gær. Golf 5.5.2007 00:01
Frábær fyrsti hringur hjá Birgi Leifi Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG byrjar einstaklega vel opna Telecom mótinu í golfi sem fram fer á Ítalíu. Birgir lauk hringnum á 67 höggum í dag eða fimm höggum undir pari. Hann er í 14. sæti í mótinu en sænski kylfingurinn Joakim Backström er í efsta sæti mótsins á tíu höggum undir pari. Golf 3.5.2007 19:05
Tiger og Michael Jordan saman í liði Tveir af frægustu íþróttamönnum sögunnar, körfuboltamaðurinn Michael Jordan og Tiger Woods, eru saman í liði í Pro/Am móti sem fram fer á Quail Hollow vellinum í Norður-Karólínu í dag. Golf 2.5.2007 19:49
Verplank sigraði á Byron Nelson mótinu Bandaríkjamaðurinn Scott Verplank sigraði á Byron Nelson PGA-mótinu, sem lauk í Dallas í Texas í kvöld. Hann lék lokahringinn á 66 höggum og hringina fjóra á samtals 267 höggum, eða 13 höggum undir pari. Golf 30.4.2007 04:08
Scwartzel sigraði á opna spænska Suður-afríski kylfingurinn Charl Schwartzel sigraði á Opna spænska mótinu sem lauk í Madríd í dag og var þetta annar sigur hans á Evrópumótaröðinni. Hann lék lokahringinn á 67 höggum og var samtals á 16 höggum undir pari, einu höggi á undan Indverjanum Jyoti Randhawa, sem varð annar. Heimamaðurinn Carlos Rodiles varð þriðji á samtals 14 höggum undir pari. Golf 30.4.2007 04:06
Birgir Leifur mætir Ronaldo á Pro-Am mótinu Brasilíski knattspyrnukappinn Ronaldo, sem leikur með AC Milan á Ítalíu og Roberto Donadoni, landsliðsþjálfari Ítala í knattspyrnu, verða meðal keppenda á Pro-Am móti sem fram fer á miðvikudaginn. Birgir Leifur Hafþórsson verður meðal keppenda í Telecom mótinu, sem er hluti af evrópsku mótaröðinni. Golf 28.4.2007 19:16
Slæmur endasprettur hjá Heiðari Heiðar Davíð Bragason úr Kili í Mosfellsbæ lék lokahringinn á Welness mótinu í Danmörku í dag á 77 höggum, eða 5 höggum yfir pari. Hann byrjaði vel og eftir 13 holur var hann á 2 höggum undir pari, en lék síðustu fimm holurnar á 7 höggum yfir pari. Hann lék hringina þrjá á samtals 222 höggum, eða 6 höggum yfir pari. Heiðar Davíð hafnaði í 31.-34. sæti í mótinu. Golf 26.4.2007 14:26
Heiðar í 11. sæti í Danmörku Heiðar Davíð Bragason úr Kili í Mosfellsbæ lék annan hringinn á Welness mótinu í Danmörku í dag á 73 höggum, eða einu höggi yfir pari. Hann hefur því leikið 36 holur á samtals einu höggi yfir pari og er í 11.-17. sæti fyrir lokahringinn á morgun. Golf 25.4.2007 17:02
Heiðar lék á 72 höggum í dag Heiðar Davíð Bragason, atvinnukylfingur úr GKj, hefur nú lokið leik á fyrsta hring á Wellness mótinu, sem er hluti af dönsku mótaröðinni, sem fram fer í Römö vellinum. Hann lék hringinn í dag á 72 höggum, eða pari vallar. Hann lék nokkuð stöðugt og gott golf - fékk 3 fugla á hringnum, 12 pör og 3 skolla. Heiðar hitti 7 brautir, 12 flatir og var með 30 pútt. Golf 24.4.2007 16:36
Sörenstam fallin úr efsta sæti heimslistans Það þykja stór tíðindi að Annika Sörenstam frá Svíþjóð er ekki lengur í efsta sæti heimslistans í kvennaflokki. Hún hefur verið í efsta sæti listans frá því hann var settur á laggirnar í febrúar 2006 og hefur undanfarin ári verið fremsta golfkona heims. Golf 24.4.2007 16:33