Golf

Fréttamynd

„Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“

„Hann er með allt sem til þarf að bera,“ segir Birgir Leifur Hafþórsson, fyrrverandi atvinnukylfingur, nýlentur heima á Íslandi eftir að hafa fylgst með Gunnlaugi Árna Sveinssyni verða fyrstur Íslendinga til að spila á Opna bandaríska mótinu í golfi karla.

Golf

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Gunn­laugur Árni hefur lokið keppni á US Open

Gunnlaugur Árni Sveinsson lék annan hringinn á sjö höggum yfir pari og endar því á 21 höggi yfir pari í frumraun sinni á Opna bandaríska risamótinu í golfi. Hann endar í neðsta sæti á mótinu en eftir daginn í dag verður skorið niður.

Golf
Fréttamynd

Rás­tími Gunn­laugs Árna nú settur klukkan 20:20

Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur í dag leik á U.S. Open, sem fer fram á hinum sögufræga Shinnecock Hills Golf Club í New York, en hann verður þá fyrsti íslenski karlinn til að taka þátt í þessu risamóti.

Golf
Fréttamynd

Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný

Veðrið er strax farið að setja strik í reikninginn á U.S. Open risamótinu í golfi. Mótið fór af stað í morgun en hafði ekki staðið lengi yfir þegar að leik var frestað vegna þoku. Frestunin stóð yfir í um tvær klukkustundir

Golf
Fréttamynd

„Að ganga í gegnum þetta gerði hann miklu sterkari“

Gunnlaugur Árni Sveinsson mun í dag opna nýjan kafla í íslenskri íþróttasögu er hann verður fyrsti íslenski kylfingurinn til að spila á U.S. Open risamótinu í golfi í karlaflokki. Gunnlaugur hefur komist hátt í háskólagolfinu í Bandaríkjunum og unnið sig í gegnum mikla erfiðleika í aðdraganda mótsins. 

Golf
Fréttamynd

Lengri út­sending frá Gunn­laugi á U.S. Open

Sýn Sport hefur tekist að landa samkomulagi um að hafa lengri útsendingu frá öðrum hring á U.S. Open risamótinu í golfi á morgun og mun útsending hefjast á Sýn Sport um leið og Gunnlaugur Árni Sveinsson fer af stað í sinn annan hring á mótinu.  

Golf
Fréttamynd

Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risa­mótum

Opna bandaríska risamótið í golfi hefst í dag og er Íslendingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson meðal kylfinga á mótinu. Keppt verður á Shinnecock Hills-vellinum í New York-fylki en völlurinn hefur að margra mati verið of erfiður á síðustu tveim risamótum sem hafa verið leikin á vellinum.

Golf
Fréttamynd

Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga

Frestað hefur verið áformum um að hægja á golfboltum atvinnukylfinga. Verið er að reyna að finna aðrar lausnir til þess að takmarka högglengd atvinnukylfinga þar sem að hægja á boltanum er ekki nóg. Búist er við að þær reglur verði settar árið 2030.

Golf
Fréttamynd

Ís­lendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed

Gunnlaugur Árni Sveinsson þarf að eiga meira en góð högg til að hitta flatirnar á Shinnecock Hills, þegar hann verður fyrstur Íslendinga til að keppa á Opna bandaríska mótinu í golfi á morgun. Hann býr núna að góðum ráðum frá Patrick Reed sem þekkir það að vinna risamót.

Golf
Fréttamynd

„Ís­land ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“

Gunn­laugur Árni Sveins­son er klár í stóra sviðið sem U.S. Open risamótið í golfi er. Þetta segir þjálfari hans við LSU háskólann í Bandaríkjunum. Gunn­laugur sé með nálgun at­vinnu­manns og geti nú sýnt heiminum hversu góður kylfingur hann sé.

Golf
Fréttamynd

Vann í „ís­lensku veðri“ og fagnaði með ís með pabba

Hulda Clara Gestsdóttir varð annar Íslendingurinn í sögunni til að vinna mót á LET Access, næststerkustu mótaröð Evrópu í golfi kvenna. Hún fékk sér sundsprett í tjörn á vellinum eftir sigurinn og kvaðst hafa notið sín vel í „íslenskum veðuraðstæðum“.

Golf
Fréttamynd

Hulda Clara vann í Tékk­landi

Hulda Clara Gestsdóttir vann RB Czech Ladies Challenge mótið á LET Access mótaröðinni í dag. Þetta er fjórða mót Huldu Clöru á mótaröðinni en hún er aðeins annar íslenski kylfingurinn til að vinna mót á mótaröðinni.

Golf
Fréttamynd

Gunn­laugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open

Gunnlaugur Árni Sveinsson fær dýrmæta reynslu í aðdraganda síns fyrsta risamóts á golfferlinum. Hann mun taka æfingarhring með besta kylfingi heims um þessar mundir, Scottie Scheffler. Þjálfari Gunnlaugs hjá LSU segir hann tilbúinn fyrir stóra sviðið. 

Golf
Fréttamynd

Stoltir for­eldrar: Gunn­laugur „mani­festaði“ birtu eftir erfitt vor

„Þetta er svo ofsalega stórt og ég held að maður átti sig ekki alveg á þessu fyrr en mótið rennur upp eftir rúma viku,“ segir Sveinn Kristinn Ögmundsson, pabbi Gunnlaugs Árna sem fyrstur íslenskra karla vann sig inn á Opna bandaríska mótið í golfi. Foreldrar Gunnlaugs Árna mættu í Bítið á Bylgjunni, eðlilega að rifna úr stolti.

Golf