Viðskipti innlent
1 2 3 4 5 6 7 … 334 ›
Kastrup opnar á ný eftir karp við heilbrigðiseftirlitið Veitingastaðurinn Kastrup við Hverfisgötu hefur opnað dyr sína á ný en nýir rekstraraðilar ráku sig á vegg í regluverki heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sem tafði fyrir opnuninni. Búið er að afnema reglugerðina. Viðskipti innlent 13.6.2025 11:31
Kjarasamningar undirritaðir fyrir nær allt launafólk Kjarasamningar til ársins 2028 hafa verið undirritaðir fyrir nær allt launafólk bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði í yfirstandandi samningalotu sem hófst í febrúar 2024. Í heild er áætlað að gerðir hafi verið um 250 kjarasamningar í núverandi lotu. Á kjörskrám stéttarfélaganna voru um 189 þúsund manns. Viðskipti innlent 13.6.2025 10:40
Enn færri komast að í HR en vilja Heildarfjöldi umsókna í Háskólann í Reykjavík, að meðtöldum óyfirförnum umsóknum erlendis frá, er tæplega 4.400 og því á pari við aðsóknina fyrir haustönn 2024. Yfirfarnar umsóknir í ár eru þó eilítið færri, tæplega 2.800 en voru á sama tíma í fyrra tæplega 2.900. Viðskipti innlent 13.6.2025 10:00
Sigríður Theódóra til Aton Sigríður Theódóra Pétursdóttir hefur verið ráðin til starfa sem ráðgjafi hjá samskipta- og hönnunarstofunni Aton. Viðskipti innlent 13.6.2025 09:55
Dæmdur skattsvikari beri enga ábyrgð á fjármálum fyrirtækisins Forstjóri Úrvals Útsýnar segir að Viktor Heiðdal Sveinsson, sem sakfelldur var árið 2021 fyrir skattalagabrot í tengslum við ferðaskrifstofur sínar en starfar nú sem ráðgjafi hjá Úrval Útsýn, hafi ekkert með fjármál fyrirtækisins að gera. Hann sjái aðeins um skipulagningu ferða. Viðskipti innlent 12.6.2025 21:52
Stórfyrirtæki flýi borgina vegna skatta Sjálfstæðismenn í Reykjavík munu leggja til að borgarstjórn samþykki að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði og íbúðarhúsnæði við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026, þannig að tekjur borgarsjóðs af álögðum fasteignagjöldum hækki ekki milli áranna 2025 og 2026. Oddviti þeirra segir að mörg stærstu fyrirtæki landsins hafi flúið borgina undanfarin ár vegna hæstu fasteignaskatta á höfuðborgarsvæðinu. Viðskipti innlent 12.6.2025 17:06
Skúli og félagar aftur sýknaðir af milljarðakröfum Skúli Mogensen og aðrir stjórnarmenn Wow air hafa verið sýknaðir af öllum kröfum þátttakenda í skuldafjárútboði Wow air rétt fyrir fall félagsins. Þátttakendurnir kröfust ríflega 2,6 milljarða króna í skaðabætur. Viðskipti innlent 12.6.2025 16:05
Magnús Þór leggur Samtökum iðnaðarins ráð Magnús Þór Gylfason hefur verið ráðinn til Samtaka iðnaðarins sem ráðgjafi og hefur þegar hafið störf. Viðskipti innlent 12.6.2025 13:22
Búinn að afnema regluverkið sem tafði fyrir opnun Kastrup Regluverk sem hefur gert veitingamönnum í Reykjavík lífið leitt að undanförnu hefur að hluta verið afnumið. Regluverkið olli því meðal annars að Kastrup þurfti að fresta opnun sinni á ný. Þá hyggst ráðherrann einnig aflétta regluverki sem hefur tafið fyrir opnun kaffirisans Starbucks á Íslandi. Viðskipti innlent 12.6.2025 13:19
Segir ljóst að SVEIT hafi eitthvað að fela Formaður Eflingar segir tregðu Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði eða SVEIT til að afhenda samkeppniseftirlitinu gögn er varða kjarasamninga við stéttarfélagið Virðingu vera skýrt merki um að samtökin hafi eitthvað að fela. Framkvæmdarstjóri SVEIT segir ekki koma til greina að afhenda gögnin ef þeim verður deilt með Eflingu. Viðskipti innlent 12.6.2025 12:21
Íris nýr sviðsstjóri hjá VSB verkfræðistofu Íris Þórarinsdóttir hefur tekið við stöðu sviðsstjóra samgangna og skipulags hjá VSB verkfræðistofu. Viðskipti innlent 12.6.2025 10:27
SVEIT kærir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) mun kæra ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um álagningu dagsekta. Engar sektir verða lagðar á SVEIT þar til niðurstaða áfrýjunarnefndar liggur fyrir um skyldu SVEIT til afhendingar gagna. Viðskipti innlent 12.6.2025 09:17
Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport sameinast undir merki Sýnar Í dag sameinast vörumerkin Vodafone, Stöð 2, Stöð2+ og Stöð 2 Sport undir merki Sýnar. Viðskipti innlent 12.6.2025 08:30
Starbucks frestar opnun fram í lok sumars Opnun kaffihúsa Starbucks á Íslandi hefur verið frestað fram í ágúst. Framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi segir ástæðu tafanna vera seinagangur við leyfisveitingar. Ný reglugerð borgarinnar um hollustuhætti hafi tafið ferlið enn frekar. Viðskipti innlent 12.6.2025 07:07
SVEIT þarf að greiða milljón á dag þar til gögn eru afhent Samkeppniseftirlitið hefur lagt dagsektir á Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) vegna brota samtakanna á lagaskyldu til þess að afhenda eftirlitinu gögn. Dagsektirnar eru lagðar á til þess að knýja á um að SVEIT fari að samkeppnislögum og afhendi umkrafin gögn. SVEIT hefur kært álagninguna. Viðskipti innlent 12.6.2025 06:56
Embla Medical hlaut útflutningsverðlaun forsetans og Ragnar Kjartans heiðraður Fyrirtækið Embla Medical hlaut í dag Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2025. Sveinn Sölvason, forstjóri fyrirtækisins veitti verðlaununum viðtöku við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Samhliða var Ragnar Kjartansson heiðraður fyrir störf sín á alþjóðavettvangi. Vegna fjarveru Ragnars tók Börkur Arnarson, eigandi i8 gallerí, við verðlaununum fyrir hans hönd. Viðskipti innlent 11.6.2025 16:02
Aukinn samdráttur á flugi til Íslands með breyttu Play Fyrirhugaðar breytingar á rekstri flugfélagsins Play mun auka samdrátt á framboði flugsæta til Íslands að sögn greinanda. Gengi hlutabréfa Play rauk upp við opnun markaða í morgun. Viðskipti innlent 11.6.2025 13:22
Skattur á atvinnuhúsnæði hækkað um helming á áratug Félag atvinnurekenda hefur sent öllum sveitarfélögum í landinu erindi, þar sem hvatt er til þess að álagningarprósenta fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði verði endurskoðuð til að mæta hækkunum fasteignamats, þannig að sköttum á atvinnuhúsnæði verði haldið óbreyttum á milli ára. Viðskipti innlent 11.6.2025 11:17
Tekur við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka Einar Pálmi Sigmundsson hefur tekið við starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar Arion banka. Viðskipti innlent 11.6.2025 11:13
Hlutabréf Play ruku upp við opnun markaða Gengi flugfélagsins Play sem til stendur að afskrá úr Kauphöll verði yfirtökutilboði tveggja hluthafa samþykkt hækkaði um rúman fimmtung við opnun Kauphallar í dag. Viðskipti innlent 11.6.2025 10:30
„Erum bara að hætta þeirri starfsemi sem hefur gengið illa“ Forstjóri Play hefur fulla trú á fyrirhuguðum breytingum á rekstri félagsins sem kynntar voru í tilkynningu til kauphallar síðdegis í dag. Félagið verði áfram íslenskt þó verið sé að færa stóran hluta starfseminnar til útlanda. Viðskipti innlent 10.6.2025 19:09
Áttatíu milljóna gjaldþrot Heimabakarís á Húsavík Heimabakarí -Eðalbrauð ehf., sem hélt utan um rekstur Heimabakarís á Húsavík, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Engar eignir fundust í búinu og skiptum var því lokið án þess að greiðsla fengist upp í lýstar kröfur, sem hljóða upp á 84,904,533 krónur. Viðskipti innlent 10.6.2025 18:12
Vilja taka yfir Play Einar Örn Ólafsson, fjárfestir og forstjóri Fly Play hf., og Elías Skúli Skúlason, fjárfestir og varaformaður stjórnar Fly Play hf., hafa tilkynnt að þeir hyggist gera valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Play. Þeir stefna á að skila íslenska flugrekstrarleyfinu og að auka áherslu á skrifstofur félagsins á Möltu og í Litháen. Fjórar flugvélar munu sinna flugi til og frá Íslandi, einkum til sólarlanda. Viðskipti innlent 10.6.2025 16:18
Boða komu HBO Max til landsins á ný Streymisveitan HBO Max verður aðgengileg landsmönnum í júlí, að því er segir í tilkynningu frá eiganda veitunnar. Koma HBO Max til landsins hefur þegar verið boðuð tvisvar en hún átti upphaflega að fara í loftið fyrir þremur árum. Viðskipti innlent 10.6.2025 10:45
Pála ráðin kynningarfulltrúi BHM Pála Hallgrímsdóttir hefur tekið við stöðu kynningarstjóra BHM. Hún kemur til BHM frá Veðurstofu Íslands þar sem hún hefur starfað sem samskiptafulltrúi. Viðskipti innlent 10.6.2025 10:36
Bjarki og Axel Valdemar nýir forstöðumenn hjá atNorth Gagnavers- og ofurtölvufyrirtækið atNorth hefur ráðið Bjarka Björnsson sem forstöðumann fjármögnunar og fjárstýringar og Axel Valdemar Gunnlaugson í starf forstöðumanns upplýsingatækni. Viðskipti innlent 10.6.2025 10:27
Umsóknir í HA aldrei verið fleiri Umsóknir í Háskólann á Akureyri hafa aldrei í sögu skólans verið fleiri, en alls bárust um 2.340 umsóknir að þessu sinni. Um er að ræða 15 prósenta aukningu frá síðasta ári og rúmlega átta prósenta aukning frá árinu 2018, sem var fyrra metár umsókna við háskólann. Viðskipti innlent 10.6.2025 07:23
Keyptu Brauðhúsið til að fara ekki á hausinn Eigandi bakarísins Hygge hefur beðið í yfir tvö hundruð daga eftir að fá leyfi til að opna það á nýjum stað í húsnæði við Barónsstíg 6. Hann kvartar undan óskilvirku kerfi í kringum starfsleyfisveitingar og segist hafa orðið fyrir stórtjóni í hinni löngu bið eftir starfsleyfi. Eigendur neyddust til að kaupa bakarí í Grímsbæ til að fyrirtækið færi ekki á hausinn. Viðskipti innlent 9.6.2025 23:06
118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Ljósmyndaverslun Hans Petersen við Grensásveg 12 í Reykjavík verður skellt í lás næstkomandi föstudag. Um er að ræða einu verslun Hans Petersen og er þar með ljóst að 118 ára sögu fyrirtækisins er lokið. Viðskipti innlent 7.6.2025 10:18
Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Íslandsbanki hefur boðað alla hluthafa sína á hluthafafund sem haldinn verður næstu mánaðamót. Hluthafar í bankanum eru ríflega 30 þúsund talsins. Viðskipti innlent 6.6.2025 16:47