Samstarf gegn hryðjuverkum 29. júní 2004 00:01
Mikið hefur verið fjallað um aukið samstarf ríkja gegn hryðjuverkum á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem nú fer fram. Lagt hefur verið til að auka upplýsingaflæði á milli aðildarríkja bandalagsins og samstarfsríkja til að sporna við alþjóðlegum hryðjuverkum. Á fundinum, sem fram fer í Istanbúl í Tyrklandi, lýstu leiðtogar Atlantshafsbandalagsins yfir sérstakri ánægju með stækkun bandalagsins og buðu leiðtoga sjö nýrra aðildarríkja velkomna. Samþykkt var á fundinum að verða við ósk stjórnvalda í Afganistan um aukna öryggisgæslu í landinu til að tryggja framkvæmd kosninga síðar á árinu. Leiðtogarnir lýstu einnig yfir fullum stuðningi við ný stjórnvöld í Írak og samþykktu að verða við beiðni þeirra um aðstoð við þjálfun öryggissveita og hers. Í málefnum Balkan-skaga var samþykkt að ljúka friðargæslu Atlantshafsbandalagsins í Bosníu-Hersegóvínu en Evrópusambandið tekur við friðargæslu þar frá og með haustinu. Í tengslum við baráttuna gegn alþjóðlegum hryðjuverkum var einnig ákveðið að Úkraína og Rússland skyldu taka þátt í eftirlitsaðgerðum á Miðjarðarhafi. Þá var ákveðið að efla samstarf Atlantshafsbandalagsins við miðjarðarhafslönd sem einnig eigi að ná til þeirra ríkja sem ekki hafa áður tekið þátt í samstarfi á svæðinu.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Skotmennirnir feðgar Erlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Fleiri fréttir Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Sjá meira