Stjórnarflokkarnir funda stíft 2. júlí 2004 00:01
Ríkisstjórnarfundi, þar sem leggja átti fram frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu, var óvænt frestað í morgun vegna þess að frumvarpið var ekki tilbúið. Stjórnarflokkarnir hafa enn ekki náð saman í málinu en ríkisstjórnarfundur hefur verið boðaður að nýju klukkan 14 í dag. Boðað hafði verið til ríkisstjórnarfundar klukkan hálf ellefu í morgun þar sem helsta umræðuefnið var frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslur sem verið hefur í smíðum í forsætisráðuneytinu. Brýnt er að ljúka gerð frumvarpsins sem fyrst þar sem leggja á það fyrir Alþingi strax eftir helgi. En fréttamenn fóru fýluferð í stjórnarráðið. Fundinum var frestað og var skýringin sögð að frumvarpið væri ekki tilbúið. Ljóst er að erfiðlega gengur að ná lendingu um ákvæði er varða lágmark þeirra atkvæðisbærra manna sem þurfi til að fella fjölmiðlalögin úr gildi. Starfshópur ríkisstjórnarinnar leggur á það áherslu að þetta lágmark verði að vera hóflegt en nefndi bil frá 25-44% atkvæðisbærra manna. Það bil er raunar mjög stórt í atkvæðum talið. 25 prósent atkvæðisbærra manna eru um 53 þúsund atkvæði og 44 prósent eru 94.000 kjósendur eða talsvert fleiri en kusu Ólaf Ragnar Grímsson um síðustu helgi. Ef við gefum okkur að kjörsókn í þjóðaratkvæðagreiðslunni verði 70% þá þyrftu minnst 63 prósent þeirra sem greiða atkvæði til að fella lögin, en ekki 50 prósent. Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur sjálfur ekki nefnt neitt lágmark í prósentum en aðrir forystumenn í ráðherraliði sjálfstæðismanna, þeir Geir H. Haarde og Björn Bjarnason, hafa báðir tekið undir hugmyndina um að minnst 44 prósent atkvæðisbærra manna þurfi til að fella fjölmiðlalögin úr gildi. Geir bætti raunar um betur og nefndi 50 prósent. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur sagt að til greina komi að setja hófleg skilyrði í þá veru. Ljóst er að framsóknarmenn vilja fara mun vægar í sakirnar í þessum efnum en sjálfstæðismenn. Sumir framsóknarmenn sem fréttastofan ræddi við í morgun telja jafnvel að ekki eigi að setja nein skilyrði af þessu tagi frekar en í öðrum almennum kosningum hér á landi. Þessa stundina er fundað stíft í ráðherraliði beggja flokka. Þrír ráðherrar framsóknarmanna, Jón Kristjánsson, Guðni Ágústsson og Siv Friðleifsdóttir, komu af fundi með formanni sínum nú rétt fyrir fréttir en þau Árni Magnússon og Valgerður Sverrisdóttir eru ekki í bænum. Ráðherrarnir þurfa að hafa hraðar hendur því eins og áður sagði er ríkisstjórnarfundur boðaður að nýju klukkan 14 í dag.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Hasar við Bríetartún 20: Verið að bera konuna út Innlent „Þetta er salami-leiðin“ Innlent „Ástandið er að versna“ Erlent Fækkar herforingjum um fimmtung Erlent Konan í Bríetartúni komin á götuna Innlent Konan „terroríseri“ alla í hryllingshúsinu Innlent Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Erlent Gunnlaugur Claessen er látinn Innlent Byssum stolið úr bílskúr í Kópavogi Innlent Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna Erlent Fleiri fréttir Konan í Bríetartúni komin á götuna Hækkandi matarverð hringir bjöllum hjá ráðherra Viðvörunarbjöllur óma vegna verðhækkana Lítur það grafalvarlegum augum ef ráðherra fari ekki að lögum Treystir Ingu til að leggja mat á hæfi stjórnarmanna og að lögum sé fylgt Konungshjónin tóku á móti Höllu og Birni Hasar við Bríetartún 20: Verið að bera konuna út „Þetta er salami-leiðin“ Gunnlaugur Claessen er látinn Bætir í vind og úrkomu í kvöld Byssum stolið úr bílskúr í Kópavogi Ekki standi til að sækja strandveiðiheimildir í aflamarkskerfið Ný stjórn Ungra umhverfissinna kjörin Skjálfti 4,8 að stærð í Bárðarbungu Konan „terroríseri“ alla í hryllingshúsinu Mannréttindastofnun Íslands tekin til starfa Segist „eiginlega sammála“ ákvörðun Amgen Vaknaði eldsnemma til að hefja veiðar þrátt fyrir slæma veðurspá „Engin örugg skref, bara eitt illa unnið pennastrik“ Kári Stefánsson í beinni, „hryllingshús“ og trillukarlar Gekk inn á lögreglustöðina í annarlegu ástandi og var snarlega handtekinn Kári segist hafa verið rekinn vegna lygasögu Halla og Björn halda til Svíþjóðar Brosa hringinn á upphafsdegi strandveiða Strandveiðar hafnar og óvissa í kvikmyndagerð Í beinni: Málþing um snjóflóð og samfélög Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Skallaði mann og dónalegur við lögregluþjóna Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Allt of mikið af svipuðum íbúðum á markaði skapi misræmi Sjá meira