Bretar samþykkja stjórnarskrá ESB 22. júlí 2004 00:01
Evrópumálaráðherra Bretlands, dr. Denis MacShane, er þess fullviss að Bretar samþykki stjórnarskrá Evrópusambandsins þegar hún verður lögð fram í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann telur að stjórnarskráin verði rædd í þinginu fram á næsta vetur og að Verkamannaflokknum og Frjálslyndum demókrötum, sem báðir eru hlynntir Evrópusambandinu, muni ganga vel í kosningunum í Bretlandi næsta vor. Ráðherrann spáir því hins vegar að Íhaldsflokkurinn, sem verið hefur á móti ESB síðastliðin tíu ár, muni bíða mikinn ósigur. Síðan verði haldin þjóðaratkvæðgreiðsla í Bretlandi, eins og í Frakklandi og öðrum löndum, og segist MacShane þess fullviss að Bretar muni ekki vilja einangra sig frá Evrópu. Aðspurður hvort mögulegt sé að Bretar muni aldrei gefa pundið upp á bátinn segir ráðherrann hagkerfi landsins vera það besta í Evrópu sé litið á atvinnusköpun, hagvöxt og fjárfestingar í almenningsþjónustu og félagslegri þjónustu. Þeir séu þess vegna ekki mótfallnir því að skipta út pundinu en ákvörðun um slíkt verði að stjórnast ag hagsýnissjónarmiðum. Spurður um skoðun sína á Brussel, sem gjarnan er talið of mikið skriffinskubákn, segir MacShane færri starfa í Brussel og Birmingham-borg - jafnvel færri en í borgarstjórn Reykjavíkur. Hann viðurkennir að „báknið“ þar fari stundum í taugarnar á sér en sömu sögu sé að segja af ýmsum ráðuneytum í London. Ráðherrann flytur fyrirlestur á morgun í Norræna húsinu klukkan 12 um hina nýju stjórnarskrá Evrópu og áhrif á EES löndin. Sólveig Pétursdóttir, Jónína Bjartmarz og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir munu síðan skiptast á skoðunum við hann um efni fyrirlestrarins.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Erlent Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Fleiri fréttir Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Þingið ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Evrópu Bandaríkjamenn leggja hald á olíuflutningaskip undan ströndum Venesúela Sjá meira