Grimmd Tsjetsjena 7. september 2004 00:01
Viðbrögð Pútíns, Rússlandsforseta, við hörmungaratburðunum í Beslan í Norður-Ossetíu vekja undrun margra. Stjórnmálaskýrendur víða um heim eiga erfitt með að skilja hvers vegna forsetinn kýs að tengja ódæðið alþjóðlegum hryðjuverkum og baráttunni gegn þeim og benda á að rót vandans liggi innan landssteina en ekki utan. Í ávarpi sínu til þjóðarinnar um helgina minntist forsetinn ekki einu orði á Tsjetsjeníu en sagði voðaverkin hluta alþjóðlegrar hryðjuverkaógnar. Þá hafa aðgerðir, eða aðgerðaleysi, rússneskra stjórnvalda vakið hörð viðbrögð en svo virðist sem yfirmenn lögreglu í Norður-Ossetíu hafi stýrt aðgerðum gegn ódæðismönnunum en ekki þrautþjálfaðir stjórnendur sérsveita hers og öryggislögreglu Rússlands. Í ofanálag hefur Pútín alfarið hafnað hugmyndum um að óháð rannsókn á blóðbaðinu verði gerð en að vísu sagt að atburðarrásin verði könnuð innan raða stjórnkerfisins svo greina megi hvar ábyrgðin liggi. Árni Bergmann rithöfundur segir erfitt að meta hvaða áhrif atburðirnir hafa á stöðu Pútíns í Rússlandi. "Það er erfitt að spá fyrir um það. Menn reiðast auðvitað þegar svona gerist og vilja jafnvel hefna og það er ekkert ólíklegt að rússneska þjóðin sameinist í andstöðu sinni við þessi öfl." Guðmundur Ólafsson hagfræðingur og háskólakennari tekur sterkar til orða. "Pútín er sterkur foringi og við atburði sem þessa verða sterkir foringjar enn sterkari." Gömul saga og ný Saga illdeilna Tsjetsjena og Rússa nær næstum tvö hundruð ár aftur í tímann en um 1850 var héraðið innlimað í Rússneska keisaradæmið. Öllu seinna, eða í heimsstyrjöldinni síðari, náðu Þjóðverjar höfuðborginni Grosný á sitt vald og mættu velvilja heimamanna. Afstaða þeirra var sú að óvinir Rússa voru vinir Tsjetsjena. "Stalín hefndi sín svo með því að flytja alla þjóðina til Síberíu," segir Árni og bendir á að þjóðarflutningarnir hafi haft sín áhrif. "Það er talið að um fjórðungur Tsjetsjena hafi dáið í þessum nauðungarflutningum og harðræðinu sem fylgdi." Krutsjov heimilaði Tsjetsjenum svo að snúa aftur til síns heima nokkru síðar. Guðmundur Ólafsson segir Tsjetsjena hafa stundað mannrán og þrælahald frá aldaöðli. "Vopnaburður og manndráp eru þeim í blóð borin og gamall tsjetsjenskur málsháttur segir að vopnlaus maður sé eins og kona með skegg." Rússneski rithöfundurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Alexander Solzhenitsyn sagði Tsjetsjena bæði mannræningja og þjófa. Sjálfstæðisbaráttan Tsjetsjenía er eitt af fjölmörgum sjálfsstjórnarsvæðum í Rússlandi og hafa heimamenn forræði yfir ýmsum málaflokkum. Á flestum svæðunum búa tvær til þrjár heimaþjóðir og Rússar eru fjölmennir á þeim öllum. Misjafnt er hvort vilji og tilburðir til fullkomins sjálfstæðis hafa verið uppi en heita má ógjörningur fyrir stjórnvöld í Moskvu að verða við slíkum óskum. "Ef allir ætla að verða sjálfstæðir þá hefur það í för með sér endalausar þjóðarhreinsanir og djöfulgang eins og gerðist í Júgóslavíu," segir Árni Bergmann. "Í raun vill enginn nema Tsjetsjenarnir sjálfir að þeir fái sjálfstæði." Í þessu ljósi er afstaða Pútíns og annarra ráðamanna í Moskvu skiljanleg en þó ekki nema upp að vissu marki. Forsetinn hefur ekki reynt að ná samkomulagi við Tsjetsjena og sagt útilokað að ræða við hryðjuverkamenn. Honum hefur verið bent á að í héraðinu séu aðrar og hófsamari fylkingar sem hægt sé að nálgast með útrétta sáttahönd en forsetinn hefur skotið skollaeyrum við öllum slíkum ráðleggingum. Hans afstaða er sú að með illu skuli illt út reka. Segja má að Tsjetsjenía sé í dag á mörkum hins byggilega. Höfuðborgin Grosný er rústir einar og sjö af hverjum tíu íbúum héraðsins eru atvinnulausir. Við sundrungu Sovétríkjanna árið 1991 lýstu flest lýðveldanna innan ríkjabandalagsins yfir sjálfstæði enda heimilt samkvæmt stjórnarskrá. Tsjetsjenía, eins og fleiri héruð, var hinsvegar ekki lýðveldi og hafði því ekki þennan sama stjórnarskrárbundna rétt til að stonfa sjálfstætt ríki. Engu að síður var sjálfstæði lýst og lengi vel gerði Moskvustjórnin ekkert með þá yfirlýsingu enda annirnar innan Kremlarveggja miklar og örðugt að sinna málefnum allað leið undir Kákasusfjöllum. Tsjetsjenskir hryðjuverkamenn hafa, í nafni sjálfstæðisbaráttunnar, framið fjölmörg mannskæð ódæðisverk á undanförnum árum og hafa nokkur þúsund óbreyttir borgarar fallið fyrir þeirra hendi. Ekkert gefur tilefni til að ætla að þessir sömu menn slíðri sverð sín á næstunni, þvert á móti bendir flest til að enn fleiri deyi vegna grimmdar þeirra í framtíðinni.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Innlent Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs Innlent „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Innlent Eldur í íbúð við Snorrabraut Innlent Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Erlent Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Innlent Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Erlent Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Þingið ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Evrópu Bandaríkjamenn leggja hald á olíuflutningaskip undan ströndum Venesúela Heimila nú birtingu gagna úr rannsókn á Epstein Telur það landráð að skrifa um heilsu sína Sætir líflátshótunum og nær ekki að veita friðarverðlaununum viðtöku Vilja skoða samfélagsmiðla íslenskra ferðamanna Fyrirskipa notkun Times New Roman í stað Calibri Selenskí segist reiðubúinn til að boða til kosninga Sjá meira