Matargjafir notaðar pólitískt 12. febrúar 2005 00:01
Stjórnarandstaðan í afríkuríkinu Zimbabwe segir að ríkisstjórnin noti matargjafir til þess að þvinga fólk til stuðnings við sig í komandi kosningum. Alþjóðlegar hjálparstofnanir sögðu í síðasta mánuði að tæplega sex milljónir manna líði skort í Zimbabwe en íbúar landsins eru tæpar þrettán milljónir. Robert Mugabe, forseti landsins, sagði þetta vera hreinan áróður sem væri ætlað að skemma fyrir sér í kosningunum. Á síðasta ári afþakkaði forsetinn matvælahjálp og sagði að landsmenn hefðu nóg að bíta og brenna. Nokkru síðar kom í ljós að ríkisstjórnin hafði keypt miklar kornbirgðir á alþjóðlegum mörkuðum og að fullyrðingar um metuppskeru í landinu sjálfu voru hreinn uppspuni. Dagblaðið The Herald, sem er hliðhollt ríkisstjórninni, hefur nú skýrt frá því að ríkisstjórnin ætli að útdeila fimmtán þúsund tonnum af korni til 1,5 milljóna manna sem líði skort. Renson Gasela, einn af leiðtogum stjórnarandstöðunnar, segir að ríkisstjórnin noti matargjafirnar til þess að þvinga fólk til stuðnings við sig. Þeir hafi fengið fregnir af því frá mörgum stöðum að til þess að fá gjafakornið verði menn að framvísa flokksskírteinum til þess að sanna að þeir styðji forsetann. Mannréttindasamtök hafa lengi haldið því fram að ríkissjórnin noti matvæli í pólitísku skyni en Mugabe segir að það sé lygi, eins og allt annað sem frá Vesturlöndum komi.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Fleiri fréttir Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Sjá meira