Hækkaði vísitöluna um 0,06% 12. júlí 2005 00:01
Kerfisbreyting stjórnvalda á sölu á gasolíu á bíla hækkaði ein og sér vísitölu neysluverðs um 0,06 prósent frá fyrra mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Þungaskattur af díselbílum var felldur niður um síðustu mánaðamót en í staðinn tekið upp olíugjald þannig að díselolían hækkaði um tæp 106 prósent, sem hækkar vísitöluna um 0,61 prósent. En þungaskatturinn, sem var felldur niður, var inni í vísitölunni og með niðurfellingu hans lækkaði vísitalan um 0,48 prósent. Mismunurinn, 0,13 prósent, er því til hækkunar vísitölunni og þar af er helmingur vegna breytingarinnar einnar og helmingur vegna hækkunar á olíuverði, eða smásöluverði. Bensínverð, húsnæðisverð og verð á dagvöru hækkaði vísitöluna enn frekar en meðalvextir lækkuðu. Og vegna sumarútsala snarlækkaði verð á fatnaði og skóm og var heildarniðurstaðan sú að vísitalan á milli mánaða hækkaði um 0,12 prósent. Þetta er talsvert minni hækkun en greiningardeildir bankanna höfðu gert ráð fyrir en þær höfðu spáð 0,3 til 0,4 prósenta hækkun á milli mánaða.
Innlent Viðskipti Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira