Hagnaður jókst á milli ára 21. júlí 2006 16:05
Hagnaður eignarleigufyrirtækisins SP-Fjármögnunar hf., dótturfélags Landsbankans og sparisjóða, nam 245 milljónum króna á fyrri helmingi ársins. Afkoman er 57 milljónum krónum eða 30,7 prósentum betri en ásama tíma fyrir ári. Rekstur SP-Fjármögnunar er í samræmi við áætlanir, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar. Hreinar tekjur voru 656 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins en það er 38 prósenta aukning frá fyrri hluta árs 2005. Efnahagreikningur félagsins hefur stækkað um tæp 50 prósent á árinu og er nú 33,5 milljarðar króna en var um áramót 22,4 milljarðar króna. Þá var eigið fé SP-Fjármögnunar rúmir 2,7 milljarðar króna í lok júní. Eiginfjárhlutfall félagsins ,sem reiknað er samkvæmt 84. gr. laga um fjármálafyrirtæki (CAD hlutfall) er 12,2 prósent en má skv. lögum ekki vera lægra en 8 prósent. Í tilkynningunni kemur fram að vanskil voru í lágmarki. Þau námu 0,9 prósentum af heildarútlánum í júnílok og höfðu lækkað úr 1,1 prósenti frá ársbyrjun. Á sama tíma í fyrra námu vanskil um 1,2 prósentum af heildarútlánum. Heildarvanskil voru í júnílok um 287 milljónir króna en á sama tíma í fyrra nam virðisrýrnunarreikningur útlána og eignaleigusamninga hins vegar tæpum 2,5 prósentum af heildarútlánum eða 807 milljónum króna. Afkoma SP-Fjármögnunar hf. er í samræmi við áætlanir og eru horfur góðar með árið í heild sinni, að því er fram kemur í tilkynningunni.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Olís sektað um kvartmilljón vegna fullyrðinga um kolefnisjöfnun Neytendur Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Viðskipti erlent Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Viðskipti innlent Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Viðskipti innlent Forstjóraskipti hjá Ice-Group Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Viðskipti erlent Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Sjá meira