Hrein eign lífeyrissjóðanna minnkar 12. september 2006 11:29 Glitnir banki.
Hrein eign lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris nam um 1350 milljörðum króna í lok júlí en það er 8,4 milljarða króna samdráttur á milli mánaðasamkvæmt tölum sem Seðlabankinn birti í gær. Í Morgunkorni greiningardeildar Glitnis segir að eignir sjóðanna í erlendum verðbréfum hafi lækkað um 3 prósent milli mánaða. Gengi krónunnar hafi styrkst um 3,8 prósent í júlí og megi skýra lækkun sjóðanna í erlendum eignum að mestu leyti með þeirri lækkun. Flestar erlendar hlutabréfavísitölur hækkuðu lítillega í júlí fyrir utan bandarísku Nasdaq vísitöluna sem lækkaði um 3,7 prósent á tímabilinu. Þá lækkuðu eignir lífeyrissjóðanna í innlendum hlutabréfum um 1,5 prósent í júlí. Íslensk hlutabréf lækkuðu í verði samkvæmt úrvalsvísitölunni um 3,7 prósent. Sjóðirnir hafa því væntanlega fjárfest í nýjum bréfum á tímabilinu, að mati greiningardeildarinnar. Vænta megi að sá hluti eignasafns sjóðanna hafi hækkað í takt við mikla hækkun í Kauphöllinni í ágúst. Lán til sjóðfélaga jukust um 1,3 prósent milli mánaða og hafa þau aukist jafnt og þétt frá því í desember í fyrra. Á síðustu 12 mánuðum hafa lán til sjóðfélaga aukist um 16,5 prósent. Þegar litið er yfir árið í heild megi sjá að eignir lífeyrissjóðanna hafa aukist um 11 prósent frá áramótum miðað við 9,3 prósent á sama tíma í fyrra, að sögn greiningardeildar Glitnis.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Sambíóin í Mjóddinni víkja fyrir Nova Viðskipti innlent Hulunni svipt af vaxtaviðmiðinu Viðskipti innlent Ætlað að verða nýtt íslenskt kennileiti á heimsmælikvarða Viðskipti innlent Jensens Bøfhus lokað Viðskipti erlent Gætu flýtt fyrir með því að gera við biluðu spennana Viðskipti innlent Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Samstarf „Íslenski neytandinn er allavega ekki að sýna merki um samdrátt“ Neytendur SFS vilja margfalda fiskeldi og fagna erlendri fjárfestingu Viðskipti innlent Grafalvarleg staða Viðskipti innlent Græða á tá og fingri á svikum og prettum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hulunni svipt af vaxtaviðmiðinu Grafalvarleg staða Sambíóin í Mjóddinni víkja fyrir Nova Bein útsending: Umræður á seinni degi Sjávarútvegsráðstefnunnar Gætu flýtt fyrir með því að gera við biluðu spennana Ætlað að verða nýtt íslenskt kennileiti á heimsmælikvarða Óvissu á lánamarkaði eytt í byrjun næsta árs Telja viðgerð geta tekið allt að ár Ráðin forstöðukona Þjónustu Veitna Bretar veita Alvotech leyfið sem fékkst ekki í Bandaríkjunum Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Samorku Útlit fyrir „hrollkaldan vetur“ en eitt ljós í myrkinu Bein útsending: Leiðir til að efla hlutabréfamarkaðinn Ómögulegt sé fyrir fólk á Eflingarlaunum að komast á húsnæðismarkað Bein útsending: Kanónur ræða sjávarútveginn í Hörpu Farþegum fjölgaði um 14 prósent í október Steinunn frá UNICEF til Festu Ætla í hart vegna ákvörðunar Fjarskiptastofu Sýn tapaði 239 milljónum Engin u-beygja vegna pillu forstjóra Icelandair Segja fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu efnahags og vinnumarkaðar „Óveðurský á lofti í ferðaþjónustu“ Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Bein útsending: Í hvað á orkan að fara? Sækja á fjórða milljarð króna Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Amaroq staðfestir merkilegan fund sjaldgæfra jarðmálma Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Sjá meira