Hagnaður Glitnis tæplega tvöfaldaðist 31. október 2006 09:05
Glitnir banki skilaði 8,8 milljarða króna hagnaði á þriðja fjórðungi ársins. Þetta er 1,2 milljarða króna lækkun á milli fjórðunga. Til samanburðar nam hagnaður bankans á sama tíma fyrir ári 4,8 milljörðum króna. Hagnaður bankans á fyrstu níu mánuðum ársins nemur 28,9 milljörðum króna sem er tæp tvöföldun á milli ára. Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að hagnaður fyrir skatta hafi numið 10,4 milljörðum króna á fjórðungnum samanborið við 13,1 milljarð króna öðrum ársfjórðungi. Hagnaður fyrir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins nam hins vegar 34,7 milljörðum króna samanborið við 18,2 milljarða á sama tíma í fyrra. Á fyrstu níu mánuðum ársins myndaðist 38 prósent af hagnaði bankans fyrir skatta af starfsemi utan Íslands eða 13,2 milljarðar af 34,7 milljörðum króna, að því er segir í tilkynningunni. Eigið fé Glitnis jókst um 53 prósent á tímabilinu og nam 130 milljörðum króna í lok tímabilsins. Eiginfjárhlutfall á CAD grunni var 15,9 prósent, þar af A-hluti 10.9 prósent. Haft er eftir Bjarna Ármanssyni, forstjóra Glitnis, að afkoman sé ánægjuleg. Tekjumyndun bankans sé nú dreifðari og tekjusviðin skili öll góðum hagnaði. „Í lok ágúst tilkynnti Glitnir að fjármögnun bankans fyrir árið 2007 væri tryggð. Við væntum þess að sú góða afkoma sem við kynnum nú sé vísbending um framhaldið og hlökkum til að takast á við það sameiginlega verkefni okkar að Glitnir nái nýjum hæðum á komandi mánuðum og misserum," segir Bjarni í tilkynningunni. Tilkynning frá Glitni til Kauphallar Íslands
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Sjá meira