Indiana og Golden State stokka upp 18. janúar 2007 12:49 Vandræðagemlingurinn Stephen Jackson er farinn frá Indiana og anda Larry Bird og félagar eflaust léttar að vera lausir við hann NordicPhotos/GettyImages
Lið Indiana Pacers og Golden State Warriors gerðu með sér mikil og stór leikmannaskipti í NBA deildinni í gærkvöldi, en þessi viðskipti liðanna komu sérfræðingum í deildinni mjög á óvart. Svo virðist sem hvorugt liðið komi áberandi betur út úr skiptunum, en átta leikmenn skiptu um heimilisfang í viðskiptunum. Indiana sendi frá sér þá Stephen Jackson, Al Harrington, Sarunas Jasikevicius og Josh Powell og fékk í staðinn þá Troy Murphy, Mike Dunleavy jr, Ike Diogu og Keith McLeod. Það sem ef til vill stendur uppúr í þessum viðskiptum er að Indiana losar sig við vandræðagemlinginn Stephen Jackson sem hefur verið afar iðinn við að koma sér í vandræði innan sem utan vallar hjá liðinu undanfarin ár - nú síðast í haust þegar lenti í harðri rimmu fyrir utan súlustað í Indianapolis. Golden State er sömuleiðis að losa sig við leikmenn sem Don Nelson þjálfari gat ekki notað, en eiga eflaust eftir að henta liði Indiana mun betur. Liðin spila gjörólíkan leikstíl, en þó of snemmt sé að spá fyrir um útkomu þessara skipta, eru körfuboltaspekingar vestanhafs hóflega bjartsýnir á að þessi ráðstöfun eigi eftir að styrkja liðin sérstaklega.
NBA Mest lesið Gagnrýndur fyrir að ætla af HM til að vera viðstaddur fæðingu Fótbolti Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Fótbolti Dagskráin í dag: Risa leikur í Bestu deildinni og úrslitin ráðast á U.S. Open Sport Slógu met Íslands og markvörðurinn jafnaði met á HM Fótbolti Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Golf Hefja viðræður um kaup á Tonali Enski boltinn Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Fótbolti Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Sport Fleiri fréttir Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Sjá meira