Viðtöl eftir annan leik San Antonio og Cleveland 11. júní 2007 15:58
Mike Brown, þjálfari Cleveland, átti fá svör við lélegum leik sinna manna í nótt þegar liðið steinlá öðru sinni fyrir San Antonio í lokaúrslitum NBA deildarinnar. Cleveland lenti mest um 30 stigum undir í leiknum en náði að bjarga andlitinu með góðri rispu í lokin. San Antonio sigraði 103-92 og hefur 2-0 forystu í einvíginu. Smelltu á spila til að sjá viðbrögð þjálfara og leikmanna í nótt. Fyrstur á svið stígur Gregg Popovich þjálfari San Antonio og talar um að lið hans hafi spilað vel í þrjá leikhluta en svo slakað á í restina. Hann segist þó ánægðastur með að hafa landað sigrinum. Mike Brown þjálfari Cleveland sagði sína menn verða að byrja miklu betur í leikjunum en þeir hafi verið að gera og sagði leikmenn vera að gera ódýr mistök og verða að vera miklu grimmari en þeir hafi sýnt í fyrstu tveimur leikjunum. LeBron James hjá Cleveland talar um að það hafi verið erfitt að lenda snemma í villuvandræðum og segir það hafa kostað liðið í byrjun. Manu Ginobili hjá San Antonio segir að liðið hafi alltaf unnið amk einn leik á útivelli í úrslitunum undanfarin ár og vill að liðið nái að gera það sem fyrst í Cleveland í næstu leikjum. Tony Parker hjá San Antonio varar við of mikilli bjartsýni og minnir á að liðið hafi unnið Detroit með 20 stigum í leik tvö á heimavelli í úrslitunum fyrir tveimur árum - en hafi svo verið burstað í leiknum á eftir í Detroit. LeBron kemur svo aftur í mynd og segir að lið Cleveland hafi enn nóg sjálfstraust og hafi áður lent í því að vera undir 2-0 en snúa seríu sér í hag.
NBA Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Sjá meira