Celtic getur lært af Atletico Madrid Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. mars 2008 13:15 Samuel Eto'o, leikmaður Barcelona. Nordic Photos / AFP
Forráðamenn og leikmenn Celtic hafa væntanlega verið límdir við skjáinn er Atletico Madrid vann góðan 4-2 sigur á Barcelona sem mætir einmitt Celtic í Meistaradeildinni í vikunni. Barcelona vann fyrri leik liðanna í Skotlandi, 3-2, en leikurinn um helgina sýndi að Börsungar eru langt frá því ósnertanlegir. Barcelona komst yfir í leiknum um helgina þökk sé glæsimarki Ronaldinho en töpuðu á endanum 4-2 sem fyrr segir. Liðið skorti tilfinnanlega festu á miðjunni og bit í sókninni. Xavi, miðvallarleikmaður Barcelona, segir að mistök sinna manna hafi verið of mörg og of dýrkeypt. „Við verðum að læra að gera úr um leiki eins og þennan. Sérstaklega þegar við stjórnum leiknum. Þetta er sama gamla sagan, við gerðum of mörg mistök og var refsað fyrir þau." Frank Rijkaard stjóri Barcelona ákvað að hvíla bæði Lionel Messi og Yaya Toure en það má búast við því að þeir verði báðir í byrjunarliðinu gegn Celtic. „Úrslit þessa leiks hafa ekki áhrif á þann næsta," sagði Rijkaard. „Við vitum að við spiluðum ekki vel og að úrslitin voru slæm. En við verðum að halda áfram og undirbúa okkur vel fyrir Meistaradeildarleikinn."
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Sjá meira