Chelsea hélt hreinu í sjötta leiknum í röð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. mars 2008 11:07 Carlo Cudicini stóð í marki Chelsea í gær. Nordic Photos / Getty Images
Chelsea vann í gær 3-0 sigur á Olympiakos í Meistaradeild Evrópu og var það sjötti leikur liðsins í röð í keppninni þar sem liðið heldur marki sínu hreinu. Síðasti andstæðingur liðsins til að skora gegn Chelsea í Meistaradeildinni er Valencia sem tapaði 2-1 fyrir Chelsea á heimavelli þann 3. október síðastliðinn. Chelsea bætti í gær félagsmet með því að halda hreinu í sjötta leiknum í röð en gamla metið var sett árið 2004. Arsenal á metið en liðið hélt hreinu í tíu leikjum í röð tímabilið 2005-6. Þá hélt AC Milan marki sínu hreinu í sjö leikjum í röð tímabilið 2004-5. Panathinaikos og Ajax hafa einnig afrekað það að halda hreinu í sex leikjum í röð en það gerðu þau bæði leiktíðina 1995-6. Tvö önnur met voru slegin í leik Chelsea og Olympiakos í gær. Michael Ballack skoraði eitt marka Chelsea og varð þar með markahæsti Þjóðverjinn í Meistaradeildinni frá upphafi. Áður deildi hann þessum titli með Carsten Jancker sem skoraði þrettán mörk fyrir Bayern München í keppninni á sínum tíma. Ballack hefur nú skorað fjórtán mörk í Meistaradeildinni, flest með Bayer Leverkusen eða átta talsins. Þrjú komu með Bayern München og þrjú hafa þegar komið með Chelsea. Þá varð markvörður Olympiakos, Antonis Nikopolidis, leikjahæsti leikmaður Grikkja í Meistaradeildinni frá upphafi er hann lék sinn 53. leik í keppninni.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Fleiri fréttir Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Sjá meira