Vandræði ítölsku liðanna eru fjárhagsleg 12. mars 2009 18:15 Milan hefur verið fastagestur í úrslitaleikjum Meistaradeildarinnar undanfarin ár, en nú hefur haldur hallað undan fæti hjá stórveldinu Nordic Photos/Getty Images
Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, segir að heimskreppan sé að skella hvað þyngst á ítölskum knattspyrnufélögum. Mikið hefur verið gert úr stöðubaráttu enskra og ítalskra knattspyrnufélaga í Evrópukeppninni að undanförnu og því er ekki að neita að ensku félögin hafa haft vinninginn síðustu ár. AC Milan hefur verið flaggskip ítalskrar knattspyrnu í Evrópukeppnunum undanfarin ár og hefur þrisvar komist í úrslitaleikinn á síðustu sex árum. Liðið komst ekki einu sinni í Meistaradeildina í ár og Galliani rekur það til efnahagsástandsins. "Kreppan er ástæða þess að ítölsku félögin eru fallin úr leik í Meistaradeildinni. Ensku félögin eiga sína eigin leikvanga sem eru nær alltaf fullir og því þéna þau miklu meira en við. Fyrir tíu árum þénuðu ítölsku félögin miklu meira en þau spænsku og ensku og voru alráð í Evrópukeppnum. Það yrði stórslys ef við snúum þessari þróun ekki við og missum sæti okkar sem þriðja sterkasta deildin í Evrópu," sagði Galliani í útvarpsviðtali á Ítalíu. Hann var ekki hissa á því að Inter félli úr leik fyrir Manchester United í Meistaradeildinni og minnti um leið á sína menn. "Mig langar að minna fólk á að síðast þegar United tapaði í Meistaradeildinni var í undanúrslitunum árið 2007 þegar liðið tapaði fyrir Milan. Síðan þá hefur liðið ekki tapað í 21 leik og síðasti leikur sem liðið tapaði heima þar á undan var gegn Milan árið 2005," sagði Galliani.
Ítalski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Goðsögn fallin frá Enski boltinn Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport „Ég elska peninga“ Sport Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Fleiri fréttir United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Sjá meira