Benedikt: Enn nóg eftir af tímabilinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. desember 2009 21:50 Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR. Mynd/Vilhelm
Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR, fór varlega í yfirlýsingarnar eftir að hans lið vann sinn tíunda sigur í röð í Iceland Express-deild kvenna. KR vann öruggan sigur á sterku liði Grindavíkur, 81-56, en fyrir leikinn voru Grindvíkingar búnir að vinna fjóra leiki í röð. En þeir virtust lítið eiga í KR-inga. „Fyrst og fremst fannst mér við byrja gríðarlega vel og við náðum góðum tökum á leiknum mjög snemma," sagði Benedikt. „Svo meiddist Hildur [Sigurðardóttir] í baki og spilaði því lítið sem ekkert. Fyrir voru tveir leikstjórnendur meiddir og var ég því eiginlega ekki með neina leikstjórnendur í leiknum í kvöld." Þar að auki eru fjórir leikmenn KR meiddir, þeirra á meðal Bandaríkjamaðurinn Jenny Pfeiffer-Finora. „Það eru ekki mörg lið sem mega við því að missa svo marga leikmenn. Ég var mjög ánægður með hversu sannfærandi sigur okkar var." KR er með fjögurra stiga forystu á næsta lið í deildinni en Benedikt segir ekkert farinn að hugsa um neina titla enn. „Maður er búinn að sjá svo margt í gegnum tíðina. Allir héldu í fyrra að karlalið KR myndi rúlla deildinni upp en þá kom einn Nick Bradford til Grindavíkur og breytti öllu," sagði Benedikt en hann var þjálfari karlaliðs KR í fyrra. „Það er heil eilífð þar til tímabilið klárast og maður veit ekkert hvað getur gerst í vetur."
Dominos-deild kvenna Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Willum vill fara norsku leiðina Sport Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Fleiri fréttir Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Sjá meira