Lights on the Highway safnar fyrir London 28. apríl 2010 17:30 Piltarnir í Lights safna í Londonbaukinn á Dillon á morgun.
Hljómsveitin Lights on the Highway er í mikilli sveiflu þessa dagana. Lagið Leiðin heim er í fyrsta sæti á vinsældarlista Rásar 2 þriðju vikuna í röð og leiðin er sett á meikið í London. Á sunnudag heldur sveitin í sjö daga reisu til London þar sem spilað verður á nokkrum tónleikum, bæði rafmögnuðum og órafmögnuðum. Til þess að eiga fyrir þessu ætlar hún að troða upp á Dillon á morgun og verður þar boðið upp á órafmagnað sett. Hljómsveitin kemur síðan aftur fram á Rósenberg á föstudaginn. Þegar heim er komið ætla piltarnir í sveitinni síðan að setjast við skriftir og semja fleiri lög á íslensku fyrir sumarvertíðina. Smellurinn Leiðin heim er þeirra fyrsta lag á ástkæra ylhýra. Tónleikarnir á Dillon á morgun hefjast klukkan 22 og er 20 ára aldurstakmark. Miðaverð er 500 krónur en frjáls framlög í ferðasjóð eru vel þegin. Tónleikarnir á Rósenberg á föstudag hefjast að sama skapi klukkan 22.
Lífið Mest lesið Typpi í einu gati, tæki í öðru Lífið Daði Freyr og Árný keyptu einbýli á 86 milljónir Lífið Afhjúpaði óléttuna á epískan hátt enn og aftur Tíska og hönnun Eitt merkilegasta verk 21. aldarinnar á Íslandi Menning Héldu upp á eins árs afmæli Heiðdísar Emblu Lífið Klækir, prettir og kardínálaklíkur í páfakjöri Gagnrýni Þau allra nettustu á Met Gala Tíska og hönnun Jóhanna og Geir trúlofuðu sig við Eiffel-turninn Lífið Sígild sumarterta að hætti Dana Lífið Handtekinn eftir að hafa keyrt niður hliðið að heimili Aniston Lífið Fleiri fréttir Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira