Real Madrid ásakar Sergio Busquets um kynþáttaníð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. maí 2011 09:45 Sergio Busquets og Jose Mourinho ræða málin í fyrri leiknum. Mynd/Nordic Photos/Getty
Orðastríð Real Madrid og Barcelona er enn í fullum gangi þótt að það sé að flestra mati orðið ljóst að Barcelona sé komið áfram í úrslitaleik Meistaradeildarinnar eftir 2-0 sigur í fyrri leiknum í Madrid. Liðin mætast í seinni leiknum á Camp Nou í kvöld. José Mourinho, þjálfari Real Madrid, mætti ekki á blaðamannafund í gær en lét þess í stað aðstoðarmann sinn, Aitor Karanka, svara spurningum blaðamanna. Karanka gerði reyndar gott betur en það því hann kallaði enn á ný eftir refsingu frá UEFA gagnvart spænska landsliðsmanninum Sergio Busquets sem Madridar-menn ásaka um kynþáttaníð. Karanka rökstuddi mál sitt með því að bjóða upp á myndband af því þegar Sergio Busquets kallar Brasilíumanninn Marcelo apa í fyrri leiknum. „Það verður leikmaður að spila í kvöld sem varð vís að kynþáttarníði gagnvart öðrum leikmanni á sama tíma og það munu leikmenn missa af þessum leik sem gerðu ekkert rangt," sagði Aitor Karanka á blaðamannafundinum. Pepe og Sergio Ramos verða báðir í banni í kvöld sem og Mourinho. Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, svaraði þessum ásökunum þannig að Sergio Busquets hafi gert þarna mistök en það sé undir UEFA komið að refsa honum. Guardiola ætlar sjálfur ekki að aðhafast neitt eða að refsa sínum manni.
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Sjá meira