Kobe ætlar sér að spila í gegnum meiðslin á jóladag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. desember 2011 18:15 Kobe Bryant. Mynd/AP
Kobe Bryant býst við því að spila með Los Angeles Lakers í fyrsta leik liðsins á nýju tímabilinu sem hefst á jóladag. Lakers-liðið mætir þá Chicago Bulls en fimm fyrstu leikir NBA-tímabilsins fara fram 25. desember. Bryant lék ekki með Lakers í síðasta æfingaleiknum á móti nágrönnunum í Los Angeles Clippers á miðvikudagskvöldið en hann er meiddur á hægri úlnlið. „Það hefur alltaf verið í mínu eðli að finna leiðir til þess að spila," sagði Kobe Bryant en það er ljóst að hann mun örugglega finna fyrir þessum meiðslum spili hann á jóladag. „Ég hef verið það heppinn að hafa getað spilað í gegnum hin ýmsu meiðsli á mínum ferli. Lykilatriði hefur verið að ég hef ekki gert illt verra með því að spila meiddur," sagði Bryant. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Kobe meiðist á hægri hendi en hann braut vísifingur á sömu hendi árið 2009 og spilaði með þau meiðsli út tímabilið. Lakers vann einmitt NBA-titilinn það tímabil.
NBA Mest lesið Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Áhorfendur beðnir um að mæta ekki Fótbolti Wimbledon-meistari í fjögurra ára bann Sport Einum mánuði yngri en Eiður Smári Íslenski boltinn Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti Uppgjörið: KR - ÍA 5-3 | Átta marka súpa á Meistaravöllum Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti „Hefðum við nýtt okkar færi væri ég ekki að fara heim með núll stig“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Sjá meira