Kvennalið Njarðvíkur með þrjá erlenda leikmenn á móti KR í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2011 17:15 Julia Demirer í leik með Hamar í fyrra.
KR og Njarðvík leika í kvöld síðasta leikinn áður en Iceland Express deild kvenna í körfubolta verður skipt upp í A og B-deild. Það er þó þegar ljóst að KR verður í A-deild og Njarðvík í B-deild. Njarðvíkurliðið teflir fram nýjum leikmanni í leiknum í kvöld því pólski miðherjinn Julia Demirer, fyrrum leikmaður Hamars, er kominn til liðsins. Njarðvíkurliðið er því komið með þrjá erlenda leikmenn því fyrir eru bandaríska stelpan Shayla Fields (23,7 stig, 9,8 fráköst og 3,6 stoðsendingar í leik) og lettneska stelpan Dita Liepkalne (15,5 stig, 9,5 fráköst og 3,3 stoðsendingar í leik). Julia Demirer var með 19,8 stig, 13,3 fráköst og 2,2 stoðsendingar að meðaltali með Hamar í fyrra og hún átti þá mikinn þátt í því að liðið fór alla leið í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn. „Okkur vantaði sterkan leikmann í teiginn því við erum með margar ungar sem hafa spilað mikið og skilað fínum mínútum, en okkur vantaði þessa stöðu og hefur vantað í allan vetur," sagði Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Njarðvíkur í samtali við Karfan.is. „Julia er komin til að hjálpa okkur í lokabaráttunni, við erum að reyna að komast í úrslitakeppnina, á sama tíma er stutt í botninn og við erum líka í fjögurra liða úrslitum í bikarkeppninni," sagði Sverrir ennfremur í viðtalinu á karfan.is Leikur KR og Njarðvíkur fer fram í DHL-Höllinni og hefst klukkan 19.15.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti Ólympíumeistarinn með skilaboð til Trump: „Ég er ekki trans. Ég er kona“ Sport „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Íslenski boltinn Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Körfubolti Fleiri fréttir Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Segir Grikkjanum haldið í gíslingu Fórnuðu Luka Doncic fyrir hann en Davis náði aðeins að spila 31 leik „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ „Þá er þetta munurinn á liðunum“ Uppgjörið: Tindastóll - Grindavík 74-99 | Grindavík eltir Keflavík í úrslit Martin með ellefu stig í magnaðri endurkomu Alba Berlin Uppgjörið: Keflavík - Hamar/Þór 82-77 | Keflvíkingar í bikarúrslit Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið „Við þekkjum umhverfið allavega betur“ James Harden skipt til Cleveland og titillíkur Cavaliers aukast „Vitum hvernig Stjarnan spilar“ Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 107-110 | Stjarnan í úrslit eftir háspennu í framlengdum leik KR - Tindastóll 85-87 | KR-ingar í úrslit eftir háspennu „Byrjunin verður gríðarlega mikilvæg“ „Þeir setja pressu á alla og gera allt óþægilegt“ KR-ingur að fara á kostum með einu besta körfuboltaliði Bandaríkjanna Stólarnir fóru bara allir í fýlu saman og það er óafsakanlegt Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Martin fagnaði mikilvægum sigri eftir mistök toppliðsins LeBron James valinn í Stjörnuleikinn 22. árið í röð Finni á Krókinn og Þór skiptir um Kana Efins um Pargo-skiptin: „Held að þetta sé ekki rétt hjá þeim“ Ekkert lát á sigurgöngu Tryggva og félaga Paul George dæmdur í 25 leikja bann Sparkaði í og trampaði á mótherja Pargo snýr aftur og klárar tímabilið með Grindavík Uppgjörið: Þór Þ - Keflavík 78 - 98 | Keflavíkurhraðlestin brunaði heim með öll stigin Shabazz látinn fara frá Grindavík Sjá meira