Mér skilst að Ísland sé stórt og fallegt 27. september 2012 12:00 Áhrifamikill Nýjasta mynd heiðursgests RIFF í ár, Dario Argento, verður sýnd á hátíðinni auk tveggja annarra mynda eftir leikstjórann, hinnar víðfrægu hrollvekju Suspiria frá 1977 og Inferno frá 1980.nordicphotos/afp
Dario Argento, hinn goðsagnakenndi ítalski kvikmyndaleikstjóri og einn áhrifamesti hrollvekjuleikstjóri allra tíma, er heiðursgestur kvikmyndahátíðarinnar Reykjavík International Film Festival sem sett verður með pompi og prakt í dag. Ferill Argento spannar rúm fjörutíu ár og hann er hvergi nærri hættur, en í ár sendi hann frá sér kvikmyndina Dracula 3D. Haukur Viðar Alfreðsson tók Argento tali og óhætt er að segja að hann sé töluvert geðþekkari en yrkisefnin gefa til kynna. Eftir örstutt spjall um veðrið hófst alvaran. Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig sem listamann að vera heiðursgestur RIFF? Mér finnst það mikill heiður. Ég er mjög spenntur fyrir Íslandsförinni og hlakka mikið til. Ég hef séð íslenskar kvikmyndir á kvikmyndahátíðum og einnig hef ég hlustað á íslenska tónlist, en um landið sjálft veit ég ekki mikið. En mér skilst að það sé stórt og fallegt. Nú sendir þú nýlega frá þér kvikmyndina Dracula 3D. Hver myndirðu segja að væri helsti munurinn á því að gera kvikmynd í dag og fyrir fjörutíu árum? Tilfinningin á tökustað er sú sama en markaðs-yfirráð bandarískra stórmynda hafa gert minni myndum erfiðara fyrir. Með tilkomu stafrænnar kvikmyndatöku er orðið nær ómögulegt að taka mynd á gamaldags filmu. Til dæmis er hvergi hægt að framkalla filmu á Ítalíu í dag, þannig að kvikmyndagerðarmenn verða að aðlagast breyttum tímum. Hvernig leggjast þessar breytingar í þig? Þetta er hræðilegt (hlær). En það var virkilega gaman að prófa sig áfram með þrívíddina og ég leit á þetta sem spennandi tilraun. Þarna næ ég dýpt sem ég hef aldrei náð áður. Það er óhjákvæmilegt að spyrja einn áhrifamesta hrollvekjuleikstjóra allra tíma hvernig honum líki við hryllingsmyndir nútímans. Sérðu eitthvað sem er þér að skapi? Það er ekkert að gerast í Ameríku, en mér líkar mjög vel við það sem er að gerast í Frakklandi og á Spáni. Þaðan koma margar góðar myndir, sem og frá Japan, Taívan og Suður-Kóreu. Ætli það sé ekki hinn nýi heimavöllur hryllingsins? Myndir þínar eru fullar af fallegum sjónarhornum og þú hefur óvenjulega nálgun á liti og ljós. Sækir þú innblástur í myndlist? Ég sæki mikið í myndlist og arkitektúr og myndirnar mínar eru uppfullar af vísunum í málverk og skúlptúra. Til dæmis í kvikmyndinni Deep Red, þar endurskapa ég sjónarhorn úr málverkinu Nighthawks eftir Edward Hopper. Þetta er bara eitt dæmi af mörgum. Myndlist og kvikmyndagerð eru náskyldar listgreinar. Hrollvekjan Suspiria er vafalaust sú þekktasta af þínum verkum. Nú er unnið að endurgerð myndarinnar fyrir bandarískan markað. Hvernig leggst verkefnið í þig og ertu viðriðinn það að einhverju leyti? Ég hef ekki hugmynd um hver stendur á bak við þetta verkefni og kem eiginlega alveg af fjöllum. Ég hef þó heyrt af því að þetta standi til og undra mig á því hvers vegna enginn hefur haft samband. Mér finnst það bæði ófagmannlegt og dónalegt. Nú hefur þú bæði skrifað fyrir sjálfan þig og aðra, meðal annars sjálfan Sergio Leone. Hvort veitir þér meiri ánægju, að sitja við ritvélina eða að standa á bak við tökuvélina? Hvort tveggja finnst mér fallegt og veitir mér gleði. Þegar ég skrifa er ég að setja drauma mína á blað en þegar ég fer í tökur finnst mér ég vera að uppfylla þá. Þetta er nátengt og ég get ómögulega gert upp á milli. Má eiga von á því að sjá þig í bíó á RIFF-hátíðinni? Engin spurning. Ég ætla að horfa á myndirnar mínar með áhorfendum og hafa gaman af.
Lífið Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Craig hafi átt hugmyndina að því að drepa hana Bíó og sjónvarp „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Janosch er allur Menning Alsæla á Akranesi Tónlist „Götustelpan“ glöð Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“