Evrópumöguleikar Davíðs Þórs og Elfars Freys Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. júlí 2013 15:45 Mynd/Samsett
Óhætt er að fullyrða að stærstu félagaskiptin í íslenskri knattspyrnu í dag, á lokadegi félagaskiptagluggans, sé heimkoma Elfars Freys Helgasonar í Breiðablik og Davíðs Þórs Viðarssonar í FH. Elfar Freyr er snúinn aftur í raðir Kópavogsliðsins eftir tveggja ára fjarveru og skrifaði undir tveggja ára samning. Félagaskipti Elfars Freys hafa fengist staðfest á vef KSÍ sem bendir til þess að miðvörðurinn geti leikið með Blikum seinni leikinn gegn Aktobe frá Kasakstan í Evrópudeildinni. Liðin mætast í fyrri leiknum í Kasakstan á morgun og eru Blikar mættir til Kasakstan. Skilafrestur á félagaskiptagögnum í forkeppni Evrópudeildarinnar og Meistaradeildarinnar er að kvöldi fyrir fyrri viðureign liða. Því ætti Elfar Freyr að vera klár í síðari leikinn í Kópavogi annan fimmtudag. FH-ingar biðu lægri hlut 1-0 í fyrri leik sínum gegn Austria Vín í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í gær. Davíð Þór, sem samdi við FH til ársins 2015, getur því ekki spilað síðari leikinn í Kaplakrika á fimmtudaginn. Hann verður þó gjaldgengur með FH í næstu Evrópuleikjum hvort sem um verður að ræða umspili um sæti í Meistaradeildinni eða Evrópudeildinni.
Evrópudeild UEFA Meistaradeild Evrópu Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti Fleiri fréttir Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Sjá meira