Ólafur og Rúna gáfu flestar stoðsendingar 11. desember 2013 16:15 Ólafur Páll Snorrason úr FH og Rúna Sif Stefánsdóttir úr Stjörnunni.
Ólafur Páll Snorrason úr FH og Rúna Sif Stefánsdóttir úr Stjörnunni áttu flestar stoðsendingar í Pepsi-deildum karla og kvenna á árinu 2013. Þetta kemur fram í bókinni Íslensk knattspyrna 2013 eftir Víði Sigurðsson sem var kynnt á fréttamannafundi í dag, þar sem þau fengu verðlaun fyrir frammistöðu sína frá Bókaútgáfunni Tindi. Þetta er í annað sinn á þremur árum og í þriðja sinn alls sem Ólafur Páll á flestar stoðsendingar en þær voru 11 talsins hjá honum í deildinni í ár. Rúna Sif hlýtur hinsvegar þessa viðurkenningu í fyrsta skipti en hún lagði upp 16 mörk fyrir Íslandsmeistara Stjörnunnar. FH átti tvo efstu menn í Pepsi-deild karla því Samuel Tillen varð annar með 10 stoðsendingar og þriðji varð síðan Atli Sigurjónsson, leikmaður Íslandsmeistara KR, sem átti 9 sendingar sem gáfu mörk. Í Pepsi-deild kvenna varð Harpa Þorsteinsdóttir úr Stjörnunni í öðru sæti með 14 stoðsendingar en hún varð jafnframt markadrottning deildarinnar með 28 mörk. Jafnar í 3.-5. sæti urðu síðan Dóra María Lárusdóttir úr Val, Sigrún Ella Einarsdóttir úr FH og Teresa Rynier úr FH, með 10 stoðsendingar hver. Bókaútgáfan Tindur veitti jafnframt árleg heiðursverðlaun sín og þau hlutu að þessu sinni Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson, þjálfarar karlalandsliðs Íslands, fyrir frábæran árangur liðsins sem komst í umspil fyrir heimsmeistarakeppnina í Brasilíu.
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Kane sleppur með sekt og spilar á morgun Körfubolti Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni Fótbolti Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Körfubolti Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Enski boltinn Elías bikarmeistari í Danmörku Fótbolti Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Enski boltinn McIlroy klár þrátt fyrir sársauka Golf „FH er bara á sinni vegferð“ Íslenski boltinn Stefnir á að slá heimsmetið aftur í september Sport Fleiri fréttir Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni „Ég tek fulla ábyrgð“ „FH er bara á sinni vegferð“ Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Elías bikarmeistari í Danmörku Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Ægir sló KA út og bikarmeistararnir flengdir Glódís bikarmeistari annað árið í röð Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Benóný stýrði fögnuðinum Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Sjáðu Foden stela senunni í sigri City „Eins og súpa sem vantar salt og pipar“ „Þú þarft raunverulega að þjást“ „Mann fyrir mann eigum við að vinna þá“ Benóný Breki fer á Wembley ÍA vann Grindavík í vítakeppni eftir mikla dramatík Uppgjörið: Stjarnan - KR 2-1 | Stjarnan náði fram hefndum Umdeilt víti gefur Celtic séns á titlinum en jafntefli dugir Tómasi og félögum Afturelding skoraði fimm mörk og flaug áfram með Víkingum Safonov hetjan er PSG tryggði titilinn í toppslag Inter er bikarmeistari Ítalíu „Tímapunkturinn hefði ekki getað verið mikið verri“ City fagnaði gríðarmikilvægum sigri gegn Palace Birta mynd af „njósnara“ Southampton „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Þróttur R. - Breiðablik 1-2 | Tíu Blikar tryggðu sig í átta liða úrslitin „Það var bara eins og kóngurinn væri mættur í bæinn“ Sjá meira